Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Side 31
MÁNUDAGUR 28. JÚLl 1986.
31
Sandkom
Diddú í Eurovision?
Diddú
Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
sem nú fer á kostum í Sumar-
gleðinni fékk alla með sér
þegar hún tók sigurlagið í
Eurovision, J’aime la Vie, í
Sjallanum á dögunum. Allir
voru á einu máli um að hún
hefði sungið það miklu betur
en Sandra Kim, sú 14 ára frá
Belgíu. Svo mikil var hrifn-
ingin að við lá að þak Sjallans
rifnaði af. Nú vilj a norðan-
menn að Diddú verði fulltrúi
Islands í Eurovision á næsta
ári.
Tengja
Bjarni Hafþór Helgason, höf-
undur Reykjavíkurlagsins og
viðskiptafræðingur hjá KEA,
stefnir hraðbyri í að verða ein-
hver vinsælasti lagahöfundur
Islendinga. Nú er lag hans,
Tengja, með Skriðjöklunum,
komið í 7. sæti á rás II og
stefnir upp á við. 1 textanum
segir: ,,Er ekki kominn tími
til að tengja?“ Sagan segir að
Bjarni hafi spurt Amar
Björnsson, höfund textans,
hvað ætti eiginlega að tengja.
„Hvað eru mennirnir að
lengja?”
Arnar sagðist ekki hafa hug-
mynd um það, textinn væri
bara svona.
Gullbrúðkaup
Víkurblaðið á Húsavík var í
gullbrúðkaupi Jóns Jónssonar
bónda og Friðriku Kristjáns-
dóttur í Fremstafelli ádögun-
um. Jón þessi þykir hnyttinn
maður enda sagði hann þessa
fleygu setningu í brúðkaup-
inu: „Jú, gullbniðkaupum
fækkar þegar meðallengd
hjónabanda er orðin 3 ár.“
KA-heimilið
Gléesilegasta félagsheimili
íþróttafélagshérlendis, KA-
heimilið, sem vígt var fyrir um
3 vikum, ætlar að verða félag-
inu mikil lyftistöng. A góð-
viðrisdögum fjölmenna gamlir
KA-menn í heimilið, rabba
saman og sleikja sólina um
leið og þeir fylgjast með poll-
unum spila fótbolta og svo
vinsælt er heimilið að fólk sem
býr á Brekkunni hér á Akur-
eyri og hefur lítinn áhuga á
fótbolta er líka farið að mæta
í KA-heimilið til að slappa þar
afáveröndinni.
Refurinn reyndist vera ugla.
Refurflýgur
I Degi á dögunum var frétt um
menn sem riðu um norðanvert
hálendið og ráku augun í eitt-
hvað kvikt. Töldu þeir fullvíst
að þar væri refur á ferð. En
skyndilega sáu þeir hvar kvik-
indið hóf sig til flugs — reynd-
ist vera um snæuglu að ræða.
Vænghaf uglunnar ku hafa
verið svipað og á álft.
Sólstóll
Nokkrar skammstafanir
blaðamanna eru hinar
skemmtilegustu. Þannig sér
fólk menn eins og SOS og SAS
og fleiri kvitta fyrir fréttir. Á
Degi er nú nýr sumarblaða-
maður sem skrifar meðal
annars fréttir af heyskap og
veðri, skammstöfun þessa
blaðamanns er SÓL og eins
og gcfur að skilj a er veðrið
hér fyrir norðan yfirleitt gott.
SÓL stendur fyrir Steingrím
Ólafsson, sennilega breytir
hann skammstöfuninni í
STÓL þegar hann skrifar um
húsgagnaiðnaðinn.
Sex tonn
„Sex tonn á íbúa“ þannig
hljóðaði fyrirsögn í Degi ný-
lega þegar blaðið sagði frá
miklum malbikunarfram-
kvæmdum á Hofsósi en þessa
dagana er verið að leggja þar
1600 1800tonnafmalbiki.
Margir óttast nú að Hofsós-
búar kikni undan þessum
framkvæmdum.
Orlofshús
Launþegasamtök og fyrirtæki
utan Akureyrar eiga nú um
25 íbúðir á Akureyri sem not-
aðar eru sem orlofsbúðir. 1
einu fjölbýlishúsinu eru 8
íbúðir af 19 í eigu launþega-
samtaka og fyrirtækja. Fjör'
þar
Bjössi Áma
Gengi Akureyrar-Þórs í 1.
deildinni í knattspyrnu hefur
ekki verið jafngott og búist
var við. Fyrir mótið áttu menn
von á íslandsmeistaratitlin-
um. Bj örn Árnason er aðal-
þjálfari liðsins. Eins og alltaf
þegar ekki gengur sem skyldi
er þjálfarinn gagnrýndur og
svo er með Björn. Hann er
sagður hafa miklar þrekæf-
ingar nú þegar mótið er meira
en hálfnað. Spyrja menn sig
hvort ætlunin sé að Þórsarar
eigi að vera í toppformi þegar
mótið er búið en vonandi hala
Þórsarar inn stig á næstunni.
í meðferð
Og svo var það alkinn sem
sagði: „Fyrr fer ég I meðferð
en hætta að drekka."
Umsjón:
Jón G. Hauksson
Endurbætur á
stíflunni
„Eg er ekki
fúll út
í Bubba“
Ekki í fýmta sinn voru ummæli
mín í útvarpi hölö rangt eflir er
Arnar Páll Hauksson sagði í Sand-
komi DV í vikunni að ég væri
ósáttur við Ijóð eftir Bubba Mort-
hens þar eð hann beindi spjótum
sínum að undirrituðum. Var einnig
fullyrt að ég hefði fengið tækifæri
til að svara fyrir mig á rás 2. Sé ég
mig nauðbeygðan til að leiðrétta
þennan misskilning.
Ég á langt í land með að verða
fúll út í Bubha Morthens þótt hann
ffli mig ekki. Hami má segja skoðun
fiína á hlutunum rétt eins og aðrir
íslendingar. Gildir þá einu hvort
hann er í sjónvarpssal eða einhvers
staðar annai-s staðar. Þó hann væri
í katli hjá Noima og Bubha í Kefla-
vík!
Ég reyndi ekki að svara fyrir mig
á rás 2 og ætla ekki að byrja á því
að misnota aðstöðu mína þar réttum
mánuði áður en ég hætti þar störf-
um. Margir hafu sjálfsagt beðið
spenntir eftir að heyra hvemig ég
myndi brogðast við örvaltríð trúbad-
orsins. Jafnmagir hafa sjálfsagt búist
við þvx að ég myndi reyna að svara
fyrir mig. Það hvaiflaði aldrei að
mér. Samt finna sumir hjá sér þörf
til að losa bölvað kjaftæði úr úr því
sem ég sagði áður en ég lék lag með
Bubba Morthens.
Ég sagði Bubba hafa komið fram
í jxættinum Rokkamir geta ekki
jxagnað og að undirtitillinn væri -
Bubbi getur ekki þagnað. Einnig
sagði ég hann góðan laga- og texta-
smið og að liann hefði komiö mér á
óvart með liprum munnhöqxu- og
gítarleik og af stað fór lagið um Litla
hennanninn. Undirtitillinn var víst
„og Bubbi ekki heldur“ og brast mig
þarna einfaldiega minni. Merkingin
er samt. nákvæmlega sú sama.
Hafi einhver skilið kynningu mína
sem kaldhæðni |xá er það alrangt og
út í hinn víðfræga Hróa hött. Hver
getur annars farið í fýlu Jxegar veð-
rið er svona gott? Ekki ég....
Jón Ólafsson.
Að undanfömu hafa átt sér stað
endurbætur á stíflunni í Elliðaánum.
Verktakafyrirtækið Ártak hefur unn-
ið við endurbætumar og er búið að
sprengja burtu það sem ónýtt var.
Hafa verið settar niður nýjar lokur,
svokallaðar botnlokur og þær gömlu
íjarlægðar. JFJ
(fij Husqvarna j
VERÐL/EKKUN
VEGNA NYRRA SAMNINGA VIÐ
VERKSMIÐJURNAR, TÓKST OKKUR'
AÐ L/EKKA VERÐIÐ Á HEIMILIST/EKJUM.
DÆMIUM VERD:
UPPÞV0TTAVÉLEL2,°
AÐURstgr.kr.42.060, KOSTAR NÚ stgr O0,ú0^T,“
UPPÞVOTTAVÉLEL200 Qinn4
AÐUR stgr.kr. 36.322 - KOSTAR NÚ stgr. 0 l,UO*T,”
dyvípfc4'
Gunnar Asgeirsson hf.
Suóurtandsbraut 16 Simt 9135200
fff IAUSAR STÖÐUR HJÁ
T' REYKJAVÍKURBORG
STAÐA FORSTÖÐUMANNS
Staða forstöðumanns DROPLAUGARSTAÐA,
vist- og hjúkrunarheimilis fyrir aldraða, er laus
til umsóknar. Áskilin er menntun hjúkrunar-
fræðings með reynslu á sviði stjórnunar og
hjúkrunar aldraðra. Allar frekari upplýsingar
gefur Guðjón Ó. Sigurbjartsson, yfirmaður
Qármála- og rekstrardeildar Félagsmálastofn-
unar Reykjavíkurborgar, í síma 25500. Athygli
skal vakin á því að umsóknarfrestur var rang-
lega gefinn upp 8. september í dagblöðum 20.
júlí sl.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á
sérstökum umsóknareyðublöðum, sem þar
fást, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 8. ágúst 1986.
IGALT/
Rútuferðir frá BSÍ Heimferðir
Föstud. 1. ág. kl. 20.30 Mánud. 4. ág. kl. 13.00
Laugard. 2. ág. kl. 13.30 og kl. 16.00
Subhud.i 3. íág. -.HL;1-6.00