Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Qupperneq 32
32
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
Andlát
* Ólafía Kristín Snorradóttir lést 19.
júlí sl. Hún fæddist í Reykjavík 18.
maí 1955, dóttir hjónanna Snorra
Sturlusonar og Sigrúnar Jóhannes-
dóttur. Eftirlifandi eiginmaður
Ólafíu er Þorgeir Tryggvason. Þeim
hjónum varð þriggja bama auðið.
Útför Ólafíu verður gerð frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 15.
Regína Stefánsdóttir frá Tjamar-
lundi, Stokkseyri, andaðist í hjúkr-
unarheimilinu Ljósheimum, Selfossi,
þann 24. júlí.
Kristján Viðar Helgason lést föstu-
daginn 25. júlí á heimili sínu.
Sigurður Kristjánsson, fyrrver-
andi verkstjóri, lést á Sólvangi,
Hafnarfirði, 22. júlí. Jarðsett verður
frá kapellunni í Hafnarfirði 29. júlí
kl. 13.30.
Oddgeir Ágúst Kristjánsson,
Haukabergi 5, Þorlákshöfn, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju í
dag, 28. júlí, kl. 13.30.
Sólborg Sigursteinsdóttir, Hring-
braut 111, lést í Landspítalanum að
morgni 25. júlí.
Sigurður H. Einarsson vélstjóri,
Selvogsgötu 19, Hafnarfirði, lést
- þann 18. þ.m. í Landakotsspítala.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrr-
þev að ósk hins látna.
Útför Kristrúnar Finnbogadóttur
Nelson fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 29. júlí kl.13.30.
Ólafur Guðjónsson, Mundakoti,
Eyrarbakka, verður jarðsunginn frá
Eyrarbakkakirkju miðvikudaginn
30. júlí kl. 14.
Kristín Oddsdóttir verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 29. júlí kl. 15.
Tilkynningar
Grafísk mappa
eftir Ragnar Lár
1 tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkur
hefur Ragnar Lár teiknari gefið út gra-
físka möppu með fjórum teikningum af
Reykjavík á 19. öld. Myndimar eru unnar
með hliðsjón af gömlum myndum eftir
Auguste Mayer og A.W. Fowles. Myndirn-
ar era gefnar út í takmörkuðu upplagi
enda handmálar höfundur hverja mynd
fyrir sig þannig að engar tvær myndir era
eins. Ennfremur er hver mynd árituð af
höfundi. Pappírsstærð myndanna er 30x40
cm og era þær í möppu sem á er prentaður
texti á ensku og íslensku og einnig era
myndirnar sem mappan geymir prentaðar
þar í smækkaðri mynd. Prentnlma sf. á
Akureyri vann filmur og plötur en mynd-
irnar og mappan era prentaðar hjá
Alprent á Akureyri á 220 gramma inver-
cote-pappír. Hægt er að panta möppur hjá
höfundi í síma 96-23688
Kvenfélagasamband íslands
minnir á söfnunina fyrir lækningatæki á
krabbameinsdeild kvennadeildar Land-
spítalans. Gíróreikningur er nr. 528005.
Framleiðslukostnaður á heyi
Búreikningastofa landbúnaðarins hefur
áætlað framleiðslukostnað á heyi sumarið
1986. Er miðað við kostnað undanfarið ár
að viðbættum hækkunum. Framleiðslu-
kostnaðarverð er þannig áætlað um það
bil kr. 6,40 á kg af heyi fullþurra í hlöðu
(5,50 1985). Verð á teignum er áætlað 10:
15% lægra.
Bolvíkingafélagið
efnir til hópferðar heim til Bolungarvíkur
um verslunarmannahelgina. Lagt verður
af stað frá Hópferðamiðstöðinni, Bílds-
höfða 2, föstudaginn 1. ágúst kl. 14.
Tilkynnið stjórninni þátttöku í síma 12203
(Brynhildur), 40689 (Helga), 52343 (Jón
Ólafur) og 33174 (Óskar).
BYKO 25 ára
Byggingavöruverslun Kópavogs verður 25
ára á næsta ári. Á þessum tímamótum mun
BYKO sf. opna nýja verslun í Kringlunni
í nýja miðbænum i Reykjavík. Þar hefur
BYKO sf. nú fest kaup á 1.600 fermetrum
og mun opna verslun á 1.100 fermetra gólf-
fieti í húsinu.
Með þessari nýju verslun er vonast til
að geta bætt enn þjónustu við landsmenn
í almennum byggingavörum til viðhalds,
til heimilisnota og aðrar vörur sem tengj-
ast frítíma fjölskyldunnar. Megináhersla
verður lögð á góða þjónustu, vandað vöru-
úrval og samkeppnishæft verð.
Byggingavöruverslun Kópavogs rekur
þrjár söludeildir í dag. 1 Kópavogi, á Ný-
býlavegi 6, er aimenn verslun, á Skemmu-
vegi 2 er timbursala og tréiðnaðardeild og
í Hafnarfirði alhliða byggingavöraverslun
með verslunar- og timbursölu.
Gjöf til kvennaathvarfs í
Reykjavík
Starfsfólk verslunardeildar Sambandsins
afhenti fulltrúum Kvennaathvarfsins í
Reykjavík eitt hundrað þúsund krónur að
gjöf í morgun. Það var stjóm Menningar-
sjóðs Sambands íslenskra samvinnufélaga
sem ákvað styrkveitingu þessa á fundi sín-
um fyrir skömmu en fulltrúar starfsmanna
afhentu styrkinn fyrir hönd stjómarinnar.
Edda Scheving og Kristín Blöndal, fulltrú-
ar Kvennaathvarfsins, veittu styrknum
móttöku og létu þess getið að hann yrði
notaður til þess að hefja viðgerð á húsi
Kvennaathvarfsins í Reykjavík.
Tilboð
Brunabótafélag íslands óskar tilboðs í vörubifreið, MAN
19-321 FA órg. ’83, skemmda eftir veltu. Bifreiðin verður
til sýnis að Skemmuvegi M-26 Kóp. þriðjudaginn 29.7. frá
kl. 13-17.
Tilboðum sé skilað til aðalskrifstofu, Laugavegi 103, fyrir
hádegi 30.7.
Brunabótafélag íslands.
Útvarp - sjónvarp i>v
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögfræðingur:
Fréttirnar stundum hlutdrægar
Ég horfi reglulega á fréttir í sjón-
varpi og hlusta einnig á fréttatímann
i útvarpinu þegar ég kem því við.
Nú um helgina vöktu athygli mína
fréttir af skrítnum atburðum í sam-
bandi við hvalveiði og viðskiptabann
Bandaríkjanna. Fjallað var um þetta
efni í Kastljósi á föstudaginn og í
fréttunum en mér fundust aðalatriði
óljós í þessari umfjöllun. Var um
raunverulegar hótanir um við-
skiptabann að ræða eða voru íslensk
stjórnvöld að gera of mikið úr þessu?
Fréttir af verðákvörðun á loðnu
voru einnig athyglisverðar og sýndu
að þetta stjómskipaða verðákvörð-
unarkerfi hefúr gengið sér til húðar.
Enginn vill veiða loðnuna lengur.
Þetta sýnir augljóst réttmæti þess
að ákvarða verð í frjálsum viðskipt-
um. Almennt finnast mér fréttimar
þokkalegar en stundum gætir þó
hlutdrægni í fréttaflutningi. Eitt
augljóst dæmi um það er flutningur
útvarpsfréttamanna á fréttum af
kjaramálum ríkisstarfsmanna. Þar
gætir hlutdrægni sem ef til vill er
eðlileg en ég held að svarið við þessu
séu fleiri stöðvar með frjálsan frétta-
flutning.
Ég fylgdist með íþróttum um helg-
ina, bæði í útvarpi og sjónvarpi.
Þátturinn Við rásmarkið á rás tvö
finnst mér góður og skemmtilegur
enda er ég knattspymuáhugamaður.
í íþróttaþætti sjónvarpsins fannst
mér þó óþaríi að sýna slakan leik
Breiðabliks og Vestmannaeyja í
heild sinni. Á laugardagskvöldið var
skemmtilegur þáttur í sjónvarpinu
um Motown tónlistina. Ég hef gam-
an af tónlist af þessu tagi og þama
komu fram margir góðir kraftar, þar
á meðal Stevie Wonder og Lionel
Richie sem ég held mikið upp á. Ég
hlusta almennt mikið á tónlist í út-
varpinu og þá nær eingöngu á rás
tvö.
Frá samstarfsnefnd Landspít-
ala og Borgarspítala um
varnir gegn alnæmi:
Nýlega hafa farið fram umræður x fjölmiðl-
um um blóðgjafir einstaklings sem sýktur
er af alnæmisveirunni og afdrif þess blóðs
sem hann gaf. Þegar grunur vaknaði um
að sýkt blóð hefði komist í umferð vísaði
Blóðbankinn málinu til samstarfsnefndar-
innar, en eitt af hlutverkum hennar er að
vera til aðstoðar í slíkum málum.
Athuganir hafa leitt í ljós að einn sjúkl-
ingur fékk sýkta blóðeiningu. Haft hefur
verið samband við þann einstakling. Hann
er algerlega einkennalaus þótt merki smits
finnist í blóði hans. Þetta er eina tilfellið
af þessu tagi sem vitað er xim hérlendis.
Blóðbankinn hóf skimpróf á öllum blóð-
einingxim í nóvember 1985 eða um svipað
leyti og blóðbankar víða erlendis. Áður
höfðu sýni verið geymd í sama tilgangi
um alllangt skeið. Aðferðir þær, sem beitt
er hérlendis, era þær sömu og erlendis og
taldar nær útiloka útbreiðslu alnæmi-
sveirannar með blóðeiningum.
Umrædd blóðgjöf átti sér stað áður en
skimpróf hófust í Blóðbankanum.
Dreifing alnæmisveirunnar með blóð-
gjöfum er vel þekkt um allan heim. Sú
sorglega staðreynd að íslendingur hafi
orðið fyrir smiti á þennan hátt minnir
óþyrmilega á að útbreiðsla alnæmis hér-
lendis er ekkert frábrugðin því sem gerist
annars staðar á Vesturiöndum, og að smit
hefur verið hérlendis lengur en margan
grunar, sennilega frá 1981.
Viðgerð á Sundlaug vestur-
bæjar
Vegna viðgerða og endurbóta á Sundlaug
vesturbæjar verður laugin lokuð frá og
með mánudeginum 28. júlí nk.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að opna
aftur efir 2-3 vikur. Sxindlaugargestum er
bent á að aðrar sundlaugar í Reykjavík:
Sundlaugin í Laugardal:
Mánud-föstud. frá kl. 07.00-20.30,
laugardaga frá kl. 07.30-17.30,
sunnudaga frá kl. 08.00-17.30.
Sundlaug Fjöibrautaskólans í Breið-
holti:
Mánud.-föstud. frá kl. 07.20-20.30,
laugardaga frá kl. 07.30-17.30,
sunnudaga frá kl. 08.00-17.30.
Sundhöll Reykjavíkur:
Mánud.-föstud. frá kl. 07.00-20.30,
laugardaga frá kl. 07.30-17.30,
sunnudaga frá kl. 08.00-14.30.
Lokunartími er miðaður við þegar sölu
er hætt, en þá hafa gestir 30 mínútur áður
en vísað er upp úr laug.
Vonast er til að gestir Sundlaugar vest-
urbæjar taki þessari lokun með þolinmæði
og stundi íþrótt sína í öðrum sundlaugum
borgarinnar þar til við opnum á ný.
Siðferði í íslensku stjórnkerfi
Þríðjudaginn 29. júlí nk. kl. 18.00 gengst
Félag áhugamanna um íslenskt stjórn-
kerfi fyrir ráðstefnu á Hótel Borg undir
yfirskriftinni:
„Siðferði í íslensku stjórnkerfi"
Frummælendur verða Páll Skúlason
prófessor í heimspeki, Ólafur Oddur Jóns-
son sóknarprestur í Keflavík og fulltrúar
stjórnmálaflokkanna.
Eftir framsögu verða fyrirspurnir og síð-
an munu starfshópar ræða einstök mál,
s.s. íslensku stjómarskrána, valdsvið
þingmanna o.fl. og semja um þau ályktan-
ir.
Öllum er heimil þátttaka, einstaklingum
jafnt sem félagasamtökum.
Berkofsky - Liszt
Einn magnaðasti píanisti nútímans, Mart-
in Berkofsky, mun leika á vegum Tónlist-
arfélags Kristskirkju í safnaðarheimil-
inu. Hávallagötu 16, á fimmtudgagskvöld-
ið. Berkosky þarf að vísu ekki að kynna
fyrir íslenskum tónlistarunnendum. Hann
hefur vakið aðdáxm þeixra fyrir leik sinn
á einleikstónleikum og sem einleikari með
Sinfóníuhljómsveit íslands. En þessir tón-
leikar hans á vegum TK eru sérstakir að
því leyti að þar verða flutt eingöngu verk
eftir Franz Liszt, t.d. h-moll sónatan, sem
talin er eitt stórfenglegasta tónverk 19du
aldarinnar, „Viðræður heilags Frans við
fuglana", Kvöldhljómar úr Transidental
æfingunum o.fl. sem óumdeilanlega er með
því erfiðasta og um leið áhrifamesta sem
sett hefur verið á blað fyrir píanó fyrr og
síðar.
Tilefni tónleikanna, sem verða á dánar-
degi Liszts, fimmtudaginn 31. þ.m., er
lOOsta ártíð meistarans en Tónlistarfélag-
ið hóf reyndar Lisztkynningu sína fyrr í
vor með orgeltónleikum Ragnars Björns-
sonar í Kristskirkju. Seinna á árinu era
fyrirhugaðir ljóðatónleikar þar sem flutt
verða sönglög Liszts en þau þykja standa
fyllilega jafnfætis verkum mestu Lieder-
meistaranna ( t.d. Schuberts, Schumanns
og Wolfs) en af skiljanlegum ástæðum eru
hljómsveitarverk hans ekki í verkahring
félagsins þó þau hafi vissulega verið van-
rækt hér á landi meir en talið verður
skiljanlegt með góðu móti. En Liszt var
auðvitað mesti píanóleikari allra tíma og
það eru píanóverk hans sem jafnan hafa
mest aðdráttarafl, enda má segja að í sum-
um þeirra hafi fæðst sá píanóleikur eða
stíll sem við búum við í dag og njótum af
hendi allra færustu snillinga á því sviði.
Rokktónleikar á Arnarhóli
Afmælisnefnd Reykjavíkur hefur falið
íþrótta- og tómstundaráði að hafa umsjón
með rokktónleikum á Arnarhóli þriðju-
daginn 19. ágúst nk„ í tengslum við 200
ára afmæli borgarinnar. Þær hljómsveitir
sem áhuga hafa á að spila á AFMÆLIS-
ROKKI þurfa að skrá sig í síma:
35935 Olafur Jónsson, eða
622120 Jóhannes Hauksson.
Skráningarfrestur er til 6. ágúst. Sérstök
nefnd mun síðan velja hljómsveitir úr
hópi umsækjenda. Á tónleikunum verður
nýttur allur sá búnaður ljósa og hljóm-
tækja sem settur verður upp í tengslum
við afmælishátíðina og er það von af-
mælisnefndar að tónleikar sem þessir
verði rokktónlistinni í landinu lyftistöng
og að þeir setji skemmtilegan blæ á af-
mælishátíðina.
Samtökin Lögvernd
hafa flutt skrifstofu sína að Laugavegi 26,
4. hæð, gengið inn frá Grettisgötu. Fram-
vegis verður lögmaður samtakanna til
viðtals milli kl. 15 og 17 þriðjudaga og
fimmtudaga. Einnig verður skrifstofan
opin milli kl. 18 og 20 mánudaga og mið-
vikudaga. Sími Lögverndar er 622799.
Getraun Sjóvá - Matarlist
1986
Á sýningunni Matarlist sem haldin var í
Laugardagshöll nýlega stóð Sjóvá fyrir
getraun um hve dúkur, sem strekktur var
í loftið í miðjum sainum, væri stór. Dregið
hefur nú verið úr réttum lausnum og er
vinningshafinn 14 ára piltur úr Keflavík,
Pétur R. Jónsson. Rétt stærð dúksins var
86,943 fm. og giskaði Pétur á 86,9 fm. Hann
hlaut í verðlaun 15 þúsund krónur frá
Sjóvá og einnig gáfu nemendur Hótel og
veitingaskóla íslands honum bók. Þrír
aukavinningar vora sem fyrirtækin Sól
hf., Klettakjúklingur og Sund hf. gáfu.
Myndlist
Stokkseyri í smámyndum
Laugardaginn 26. júlí opnar Elfar Guðni
sína 14. einkasýningu í gruimskóla
Stokkseyrar. Á sýningunni verða olíu-
vatns- og pastelmyndir og einnig verða
nokkrar dúkristur. Myndefnið er aðallega
frá Stokkseyri og nágrenni. Fjaran, brimið
og gömlu þúsin eru áberandi myndefni.
Sýningin verður opin um helgar kl. 14-22
og virka daga kl. 20-22. Henni lýkur á
frídegi verslunarmanna og verður opin
þann dag kl. 14-20.
Málverkasýningar í
Ferstiklu og Þrastarlundi
Björg ísaksdóttir hefur opnað málverka-
sýningar í Ferstiklu og í Þrastarlundi.
Björg hefur dvalið erlendis undanfarin ár,
en haldið sýningar hér heima áður fyrr
og tekið þátt í samsýningum. Hún stund-
aði nám í Svíþjóð, Finnlandi og á Italíu.
Sýningarnar standa fram yfir mánaðamót.
A sýningunni í Ferstiklu eru aðallega ol-
íumálverk og í Þrastarlundi sýnir Björg
mikið af kolteikningum og olíumálverk-
um.
Tapað - Fundið
Hundur i óskilum
Á Dýraspítalanum er í óskilum síðan 20.
júlí sl. svartur og hvítur blendingur, með-
alstór karlhundur. Sími Dýraspítalans er
76620.
Kettlingur tapaðist
Tapast hefur 4 mán. kettlingur frá
Nökkvavogi 38, kjallara, á mánudaginn
sl. Hann er bröndóttur með hvítar loppur.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma 84874
eftir kl. 20. Fundarlaun.
Bandaríkja-
maðurinn
á fund
ráðherranna
í DV á laugardag var sagt í frétt xun
hvalveiðistöðvunina að forsætis- og
utanríkisráðherra hefðu gengið á fúnd
James Connelly, sendifulltrúa Banda-
ríkjanna, til að tilkynna honum um
stöðvun hvalveiðanna. Það var hins
vegar öfugt. Það var sendifulltrúinn
sem kom á fund íslensku ráðherranna
í forsætisráðuneytinu við Lækjartorg.