Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Page 36
36
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
Sviðsljós dv
Ólyginn
sagði . . .
Sarah prinsessa
getur alls ekki farið í klipp-
ingu vegna eiginmannsins,
Andrew. Hans skoðun er að
rauði hármakkinn sé það al-
fegursta við elskuna og því
situr hún uppi með alian
makkann, hvort sem henni
líkar betur eða verr. Þetta
vekur blendnar minningar
því að Andrew var vanur að
hárreyta hana hressilega í
barnæsku og hörð slagsmál
urðu oft útkoman úr þeim
samskiptum - nokkuð sem
er víst harðbannað að end-
urtaka í bresku höllinni.
Vilhjálmur prins
klóraði sig skammlaust í
gegnum hlutverkið brúðar-
sveinn númer eitt við
brúðkaup Söruh og
Andrews og létti þar með
þungu fargi af foreldrum sín-
um. Nú má öruggt telja að
ekki verður eitt einasta hefð-
arpar pússað saman í Breta-
veldi á næstu árum án þess
að greyið sitji í súpunni og
eins gott fyrir hann að sætta
sig endanlega við hlutskipt-
ið sem landsins höfðingleg-
asta hefðardúlla af yngri
kynslóðinni.
Diana prinsessa
frysti breska aðalinn í einu
búnti með því að mæta al-
sett plastskartgripum í
samkvæmi af betri gerðinni.
Þegar partígestirnir inntu
hana eftir verði og gæðum
gripanna svaraði hún því til
að þetta rándýra erfðagóss,
sem heima í hirslunum fynd-
ist, væri með afbrigðum
þung og þrautleiðinleg
framleiðsla. Fæstir sem telja
sér málið skylt hafa náð and-
anum ennþá.
Barnæska heimsins mestu kyn-
bombu var ekkert til að hrópa húrra
fyrir og Marilyn vildi tryggja öðrum
börnum betra hlutskipti en hún sjált
hafði hlotið.
„Við erum reglulega stolt af árangr-
inum sem náðst hefur hér við
stofnun Önnu Freud,“ segir Eliza-
beth Mondel, sem er einn yfirmann-
anna á staðnum.
blómstra
Kynbombubörnin
Hvað tengir saman Sigmund Freud
og Marilyn Monroe? í fljótu bragði
viðist fátt sameinlegt með sálfræð-
ingnum og kyntákninu en samt sem
áður er í London starfandi barna-
hæli sem kennt er við þau til skiptis.
Þetta hæli ber reyndar nafn dóttur
Freuds - Önnu Freudstofnunin - er
rekið að nokkru með fræði karlsins
í huga en kynbomban borgar brús-
ann.
Þann fyrsta júní hefði Marilyn
Monroe orðið sextug en hún lést sem
kunnugt er í blóma lífsins - þrjátíu
og sex ára gömul. Þessi dáða stjama
lét ekki eftir sig nein börn en aftur
á móti allnokkra fyrrverandi eigin-
menn og sæg elskhuga - sem spanna
allt frá verkamönnum og rónum upp
í heimsfræg skáld og forseta.
Barnaheimilið tekur á móti börnum úr nágrenninu sem búa við erfiðleika
heima fyrir.
Flótti í hjónaband
Sextán ára gömul giftist Marilyn
Monroe, sem þá hét Norma Jean,
Baker-stráknum í næsta húsi. Hann
hét Jimmi Dougherty og var tæplega
tvítugur stráklingur á leið í her-
þjónustu og vegna síðari heimsstyrj-
aldarinnar voru það vígstöðvamar
sem biðu brúðgumans. En hjóna-
bandið bjargaði Marilyn frá því að
lenda á enn einu munaðarleysingja-
hælinu til viðbótar. Fósturheimili og
munaðarleysingjahæli vom hennar
veröld frá bamæsku til fullorðinsára.
Síðar, þegar nokkur hjónabönd
vom að baki og ótal ástarævintýri,
heimsfrægðin í höfn og drykkju-
vandamálið að síaukast, ákvað
stjaman að arfleiða sálfræðinginn
sinn - Mariönnu Kris - að öllum
eigunum með því skilyrði að hún
kæmi þeim í hendur þeirra sem að-
stoðar þyrftu með vegna erfiðleika
af svipuðum toga og hún sjálf upp-
lifði í æsku.
Barnahælið í London
Marianna Kris fékk því ótaldar
milljónir í hendur við andlát kyn-
bombunnar og ákvað að láta þær
renna til Önnu Freudstofnunarinnar
í London. Hún var góð vinkona
Önnu og þekkti starfsemina því
nokkuð vel, allt frá stofnun. Þangað
koma sjúklingar hvaðanæva úr
heiminum til þess að leita sér hjálpar
og munaðarlaus börn, sem lent hafa
í miklum hrakningum, eiga þama
vísan samastað. Reksturinn er ennþá
miðaður við kenningar Freudanna
tveggja - Sigmunds og Önnu - þrátt
fyrir andlát Önnu fyrir fjórum ámm.
Og engar breytingar eru fyrirhugað-
ar á því fyrirkomulagi.
Hin óhamingjusama Marilyn fann
aldrei þann frið í sálinni sem hún
leitaði svo mjög eftir og barnið sem
hún óskaði svo heitt að eignast fædd-
ist aldrei. En fjármunirnir, sem
fagurt útlit og hæfileikar öfluðu,
koma nú ungum börnum til góða sem
eiga þá meiri möguleika á aðstoð í
sínum erfiðleikum. Og Monroebolir,
dúkkur, veggspjöld, póstkort og
minjagripir mala ennþá gull beint í
kassa barnaheimilisins sem þá nær
til fleiri hjálparþurfi bama sem kyn-
bomban vildi umfram allt forða frá
sömu örlögum og urðu hlutskipti
hennar sjálfi'ar.
* ...
Einhverjir láta sér
eflaust til hugar koma
að brúðhjón ársins fyr-
irfinnist von bráðar
innan bresku hallarinn-
ar eftir langa siglingu á
Britanniu um Miðjarð-
arhafið. Það er hinn
mesti misskilningur því
parið á meðfylgjandi
mynd er óumdeilanlega
ársins athyglisverðasta
brúðarpár og samband
þeirra veldur háværum
deilum hvar sem þau
koma. Þau heita Mary
Jane Graee og Jim
Brown, þyngdarmunur-
inn er lítil hundrað og
sjö kíló og þau hittust -
að sjálfsögðu - á fundi
fyrir fólk sem á við
þyngdarvanda að stríða.
Þau giftu sig í sumar og
eru alsæl með lífið og
tilveruna en Mary Jane
játar að hafa óttast mjög
að kremja Jim á góðum
stundum - en það voru
aðeins smávægilegir
byrjunarörðugleikar.
raunir
Þegar reikningamir flæða inn um
bréfalúguna eru margir á barmi ör-
væntingar og vita ekkert til hvaða
ráða væri helst að grípa. Gluggabréf
með kurteislegum hótunum um ill
örlög verði peningum ekki snarað
hið bráðasta á rétta staði eru með
því óskemmtilegra og mánaðamót
sem að öllu jöfnu ættu að vera gleði-
stundir þeirra sem þá opna launaum-
slagið breytast í martröð þess er ekki
getur skipt einni krónu í hluta þann-
ig að út komi tífalt verðgildi. Aðferð
Krists við brauðbrot er ekki á færi
óbreyttra.
Sumir hafa reynt allt - þar með
talið að negla tryggilega fyrir bréfa-
lúguna - en einhvem veginn finna
bréfberar og rukkarar sér smugu til
að koma af sér ófögnuðinum. Með
nýleyfðu hundahaldi um allt land
mætti hugsa sér bresk-bandarísku
aðferðina - stór heimaríkur hundur
gætir þess að enginn sem hefur um-
slag undir höndum komist nærri
húsinu. Og um mánaðamót mætti
þjálfa gripinn til þess að bíta betur
ef fast er sótt að bréfalúgum og póst-
kössum.