Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Page 37
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
37
Sviðsljós
Andrew og Sara
Nýjustu brúðhjónin - Andrew og
Sara hin bresku - eru lögð af stað í
brúðkaupsferð á hinu konunglega
fari hennar hátignar Elísabetar
Bretadrottingar, lystisnekkjunni
Britanniu. Þar ætti ekki að væsa um
turtildúfurnar næstu dagana því fátt
er hægt að upphugsa sem ekki fyrir-
finnst á staðnum.
Að vísu var þarna sárleg vöntun á
tvíbreiðum rúmum að dómi Díönu
og Karls ríkisarfa þegar þau tóku sér
í brúðkaupsferð
far með bátnum og kröfðust þau þess
að úr yrði bætt hið snarasta. Beiðnin
kom öllum á óvart í höllinni því El-
ísabetu og Philip hafði aldrei
hugkvæmst að hentugra væri að flat-
maga hlið við hlið á sjóferðunum.
En úr þessu var snarlega bætt og
njóta nú Andrew og Sara góðs af því
og hefur starfsliðið staðið í ströngu
við að dusta rykið úr sængurfötunum
síðustu vikurnar.
Förinni er heitið til Azoreyja og
Næstelsti sonur Elísabetar bresku - Andrew - er genginn út meö heilmiklu
brambolti og nú siglir hann um höfin blá ásamt eiginkonunni, Söru, í lysti-
snekkju hennar hátignar.
síðan á slóðir sem vandlega er haldið
leyndu fyrir heimspressunni því þeim
þykir heimilislegra að geta sólað sig
án þess að stíga ofan á ljósmyndara-
nef og skrifandi fingur í hverju
skrefi. Pressan hefur reynt að láta
þessar óskir sem vind um eyru þjóta
en líklegt er þó að síðari hluti brúð-
kaupsferðarinnar gefi færi á meira
einkalífi fyrir sjóhersprinsinn og
rauðbirknu prinsessuna.
Morgunstofan með útsýni á bakborða Britannia er myndarlegt sjófar sem kostar breska skattborgara ekki
er hlýleg með þægilegum sófum og nema 360 milljónir í rekstri árlega.
púðum.
stofan sem er rúmgóð og með opnum
arineldi.
„Sjáðu mamma,
það þurfti
ekkert að bora!"
Martraðir fólks af hinum ýmsum
stéttum eru mjög mismunandi. Leik-
arar standa á sviði án þess að hafa
hugmynd um hvað í handritinu
stendur, hlauparar geta ekki hreyft
sig, flugmenn hrapa, bílstjórar finna
ekki öktitækið, fararstjórar villast.
af leið og svo mætti lengi telja. Hinn
súpersæti Kári krókó hlýtur að vera
martröð tannlæknisins þrátt fyrir
holulausan tanngarð og því betra að
taka með sér stærri tækjasettin ef
leiðin liggur í Pessac Zoo í Bordeaux
í Frakklandi.
Ýmislegt er á sig lagt fyrir starfið ef vel á að vera - að minnsta kosti er
það þannig hjá lögreglunni í Reykjavík. Meðfylgjandi DV-myndir tók S. af
hluta úr vinnudegi lögreglukvennanna Jóhönnu Jóhannsdóttur og Tinnu
Gunnarsdóttur þegar æfð var meðferð gúmmíbjörgunarbáta og björgun
manns úr sjó. Kalt og blautt en sæmilega framkvæmanlegt - og allir önduðu
léttar þegar æfingin var yfirstaðin.
Lögreglukonurnar Tinna Gunnars-
dóttir og Jóhanna Jóhannsdóttir
byrjuðu á því að klæðast blautbún-
ingum.
Síðan tók sjórinn við - blautur og
kaldur.
,, Var þetta ekki allt í lagi, væna ?“ Tinna Gunnarsdóttir eftir volkið og
Haraldur Sigurðsson.
Öiyginn
sagði . . .
Farah Fawcett
fær að finna til tevatnsins í
móðurhlutverkinu. Hún var
í verslunarferð í París með
litla engilinn sinn, Red-
mond, þegar hann henti
demantsfestinni hennar -
þriggja milljóna króna stykki
- fram af hótelsvölunum.
Farah æpti upp yfir sig en
Ryan O'Neal hentist niður
stigana og út á stétt til að
endurheimta gripinn og var
svo heppinn að fyrirfinna
heiðarlegan Parísarbúa þar
fyrir sem stóð með festina í
höndum og horfði til lofts -
beið líklega eftir að eyrna-
lokkum í stíl rigndi líka af
himnum ofan. Óskiljanleg
taugaveiklup í foreldrunum
frægu - barnið verður að fá
að leika sér...
Alana Stewart
er aftur farin að tala við Rod
karlinn Stewart og þá vegna
þess að henni hefur tekist
að pressa það inn í höfuðið
á stjörnunni að samskiptin
við börnin þeirra tvö eigi að
vera honum mikils virði. Nú
sækir hann afsprengin í leik-
skólann þrisvar í viku þegar
hann er fyrir vestan og sér
um að fæða og koma í rúm-
ið á réttum tíma. Hún full-
yrðir að um ástarsamband
verði ekki að ræða en ein-
hver samskipti verði að vera
- og þá með vinsamlegu
formi-til þess að börnunum
líði sem allra best í framtíð-
inni.
Joan Collins
lenti í átökum við kvik-
myndaframleiðandann Elliot
Kastner á veitingastað í Can-
nes. Hún hélt því fram að
hann hefði viljandi sett stól
í gönguleið þannig að hún
missti fótanna - sem og
gerðist - og endaði þetta
með áflogum milli Elliots og
Peters Holm, núverandi
herra Collins. Grace Jones,
Placido Domingo og Regine
stóðu til hliðar og fylgdust
furðu lostin með atburðum.
Vikuna áður hafði Elliot
skvett úr vínglasi í andlit
systur Joan - Jackie. Það
gerðist á frægum veitinga-
stað í Los Angeles og nú
segja menn augljóst að
framleiðandinn telur sig eiga
eitthvað sökótt við systurn-
ar. Sannleikurinn um það er
væntanlegur í dagsljósið al-
veg á næstunni.