Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Qupperneq 40
'jj*
FRETTASKOTIÐ
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafirþú ábendingu eða
vitneskju umfrétt-
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjódst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 28. JÚLl 1986.
Gengissigið
ekki
alvariegt
-segir Bjöm Þóriialisson
„Við þessu gátu menn búist en þetta
er það lítið að ég tel það ekki alvar-
legt né stóran áhrifavald,“sagði Bjöm
Þórhallsson, varaforseti Alþýðusam-
bands íslands, í samtali við DV um
gengissig íslensku krónunnar.
Frá því að kjarasamningar vom
gerðir í febrúar hefur gengi íslensku
krónunnar lækkað um 1,6%. Á máli
hagfræðinga heitir þetta gengissig.
Stafar þetta einkum af því hve Evr-
ópugjaldmiðlarnir hafa styrkst en það
aftur leiðir af sér hærra vömverð hér-
lendis vegna þess hversu mikið er flutt
inn frá meginlandi Evrópu.
„Þetta kemur mér ekkert á óvart,“
sagði Bjöm. „Maður veit það að geng-
ið er ekki alltaf kolfast, það breytist
alltaf eitthvað. Það gat farið í hvora
áttina sem var. Þetta er hlutur sem
við ráðum ekki við.“
- Þetta breytir þá engu frá þínum
sjónarhóli?
„Það breytir alltaf einhverju en
þetta er það lítið að mér finnst engin
ástæða til að gera veður út af því,“
sagði Bjöm Þórhallsson. -KÞ
Sverrir hin
mesta veiðikló
Jóhannes Ámason, sýslumaður í
Stykkishólmi, og félagar veiddu frá-
bærlega í Hrútafjarðará um helgina,
þeir fengu 64 laxa og er það besta
veiði í ánni fyrr og síðar. Flesta laxana
veiddu þeir á maðk og eitthvað á flugu.
Sverrir Hermannsson menntamála-
ráðherra og fjölskylda komu næst á
eftir Jóhannesi, veiddu þau 35 laxa.
Sverrir veiddi 25 flugulaxa og er það
hans besta fluguveiði. Laxamir hjá
Sverri tóku Hary Mary og Blue
Charm. Þetta er metveiði hjá einstakl-
ingi á flugu í Hrútafjarðará. Nokkrir
af löxum Sverris vom vænir, sá stærsti
var 18 pund og nokkrir 17 og 15 pund.
Veiðst hafa 155 laxar í ánni og þegar
Svemr hætti á hádegi í gær tók Tóm-
as Amason við.
G. Bender.
Ávallt feti framar
SIMI 68-50-60.
lC,\BlLASrö
ÞRDSTUR
SIÐUMÚLA 10
LOKI
Hafa Kanarnir ekki sýnt
okkur kvalræði?
Eimi þeirra sem dæmdir vom í
Geirfinns- og Guðmundarmálinu á
sínum tíma var handtekinn fyrir ári
vegna brots á fíkniefnalöggjöfinni.
Þrátt fyrir að hann væri með skil-
orðsbundinn dóm fór hann ekki í
fangelsi.
Þetta orsakast af því að fíkniefna-
löggjöfin fellur ekki undir almenn
hegningarlög. Sama máli gegnir um
áfengis- og toUalögjöfina. Menn með
skilorðsbundna dóma, sem brjóta af
sér á þessum sviðum, er þvi ekki
hægt að setja beint í fangelsi, nema
um „ótvírætt brot“ sé að ræða. í öll-
um tilvikum er það dómsmálaráðu-
neytið sem tekur ákvörðun um hvað
gert skuli í málinu.
Saksóknari hefiir gefið út ákæm á
hendur þess manns sem fyrr um
ræðir. Beðið er úrskurðar dómara
fíkniefnadómstólsins í máli hans.
Reiknað er með að hann hljóti dóm
sem síðan verður væntanlega áfrýj-
að til Hæstaréttar. Á meðan á þessu
stendur gengur viðkomandi áfram
laus í skilorði.
Ýmsir innan lögreglunnar em ekki
alls kostar ánægðir með þennan
gang mála. „Okkur hefði þótt æski-
legt að menn, sem brjóta af sér með
skilorðsbundinn dóm, fæm inn og
sætu hann af sér,“ sagði heimildar-
maður DV. „Það er í sumum tilfella
ekki framkvæmanlegt þar sem af-
brotið fellur ekki undir almenn
hegningarlög. Þessir aðilar ganga
því lausir þar til nýr dómur fellur,
þrátt fyrir að þeir hafi brotið skilorð-
ið.“ -ÞJV
Danski bassaleikarinn Niels-Henning Örsted-Pedersen lék í tjaldinu við Háskólann í gær-
kvöldi. Með honum voru trompetleikarinn Palle Mikkelborg, sem sést til hægri, og
hljómborðsleikarinn Kenneth Knudsen. ov-mynd kae
Hvalamálið:
Veiðunum
Hvalveiðum var hætt á miðnætti
síðastliðna nótt. Allflestir starfsmenn
Hvalstöðvarinnar í Hvalfirði vom þó
enn að störfum í morgun og að sögn
Eggerts ísakssonar hjá Hval hf. verða
þeir það eitthvað áfram þar sem nóg
er að gera við ýmsar lagfæringar og
tiltektir.
Ekkert veiddist af hval í gær þar sem
mikil bræla var á miðunum. Það sem
af er hvalvertíðinni em komnar á land
59 langreyðar og 16 sandreyðar.
I fyrramálið verður haldinn ríkis-
stjórnarfundur um hvalamálið þar sem
tekin verður ákvörðun um hvemig
best sé að snúa sér í viðræðum við
Bandaríkjamenn er hefiast síðar í
þessari viku. -KÞ
Framsókn
4
4
4
Veðrið á morgun:
Hægviðri
um allt
land
Hægviðri verður um land allt, frem-
ur hæg norðan- og norðaustanátt.
Dálítil súld eða rigning verður á Norð-
austur- og Austurlandi en bjartviðri á
Suður- og Suðvesturlandi. Hitastig
verður á bilinu 7-16 stig.
„Mér er sagt að frumvarpið sé
óbreytt frá því vetur og ég á því ekki
von á að það verði samþykkt í mínum
flokki,“ sagði Páll Pétursson, for-
maður þingflokks Framsóknarflokks-
ins, í samtali við DV.
Páll á við frumvarp sem iðnaðarráð-
herra lagði fram á ríkisstjómarfundi
í síðustu viku. Þar er gert ráð fyrir
að iðnaðarráðherra geti gefið undan-
þágu frá þvi skilyrði að meirihluti
hlutafiár fyrirtækja skuli vera í eign
íslendinga.
„Þetta opnar of mikið dymar fyrir
útlendingum. Við teljum að ákvörðun
sem þessi eigi að vera hjá Alþingi í
hverju tilviki en ekki á höndum eins
ráðherra," sagði Páll.
I vetur náði frumvarp um sama efhi
ekki fram að ganga vegna andstöðu í
Framsóknarflokki.
-APH
Bflvelta í Kjós
Stór malarflutningabíll valt á hlið-
ina um hádegisbilið í gær. Atburður-
inn átti sér stað er unnið var við
vegaframkvæmdir á veginum frá Fé-
lagsgarði í Kjós. Talið er að vegkant-
urinn hafi ekki þolað þungan
vinnubílinn og hafði það fyrrgreindar
afleiðingar í for með sér. Engin slys
urðu á mönnum og skemmdir á bílnum
urðu heldur ekki miklar. -Ró.G.