Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1986, Síða 36
36
MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1986.
Fylgist með
afmæUstUboówmm.
Breytilegar vörur
á ajhueUstilboduuum sem
standa allan þennan mánuð.
Afsláttur á aJmælistUboðum
alh að 30%.
Kjötborg, Ásvallagötu 19, Kjötborg, Stórholti 16,
símar 14925 og 15690. sínti 23380.
LAUSAR STÖÐURHJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Staða rafmagnsiðnfræðings hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur er laus til umsóknar. Starfið er falið í eftir-
litsstörfum í innlagnadeild.
Upplýsingar um starfið gefur starfsmannastjóri RR.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
eyðublöðum er þar fást.
Stýrisvélar
SSL
fyrir;
FIAT 127
SAAB99
VOLVO 244......
■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■
kr. 2.933.-
kr. 17.405.-
kr. 24.860.-
moigna
...hei/sunnar vegna
Fréttir
Sr. Uifar Guðmundsson flutti ávarp og rakti sögu Stokkseyrarkirkju.
Stokkseyrar-
kirkja 100 ára
Sötvi Ólafesan, DV, Stoklcseyii;
Stokkseyringar minntust nýlega
100 ára afmælis kirkju sinnar,
Stokkseyrarkirkju.
Talið er að kirkjan sem nú þjónar
sókninni sé 22. eða 23. kirkjan sem
byggð hefúr verið á staðnum. Heim-
ildir telja að fyrsta kirkjan hafi verið
reist á 11. öld af kaþólskum mönnum
og hafi verið helguð Maríu guðs-
móður.
Forsaga kirkjunnar, sem nú er á
Stokkseyri, er sú að 1882 voru sett
lög um umsjón og fjárhald kirkna.
Þau lög gerðu söfhuðinum kleift að
að reka kirkjuna. Fram að þeim tíma
hafði kirkjan á Stokkseyri verið
bændakirkja þ.e.a.s. hún var rekin á
ábyrgð ákveðinna einstaklinga.
Á þessu ári eru liðin 100 ár frá því
að núverandi kirkja var bvggð.
Margir minntust afmælisins sl.
sunnudag, bæði heimamenn og
gestir. Fyrir altari þjónuðu Biskup
Islands, herra Pétur Sigurgeirsson
og fyrrverandi sóknarprestar . Kór
Stokkseyrarkirkju söng, ásamt Sigr-
únu Hjálmtýsdóttur. Orgelleikarar
voru þeir Pálmar Þ. Eyjólfsson og
Haukur Guðlaugsson.
Að messu lokinni var kaffisamsæti
í grunnskólanum, sem kvenfélag
staðarins sá um. Þar komu saman á
þriðja hundrað manns. I tilefni af-
mælisins voru kirkjunni færðar
fjölmargar gjafir.
Núverandi sóknarprestur er sr.
Úlfar Guðmundsson.
Kvenfélag Stokkseyrar sá um veitingar í afmælishófinu, sem haldið var í
grunnskólanum.
Þau voru meðal þeirra er heiðruðu Stokkseyrarkirkju á 100 ára afmæli
hennar, f.v.Torfi Nikulásson, Margrét Frimannsdóttir, Anna Hjaltadóttir og
Frímann Sigurðsson. DV-myndir Sölvi.
Annáll heimsviðburða árið 1985:
Islenskir stórviðburðir í myndum og máli
út er kominn 21. árgangur þessa
annáls heimsviðburða með íslenskum
sérkafla. Bókin er 344 blaðsíður í síma-
skrárbroti. Myndir í henni eru rúm-
lega 500 talsins, þar af 260 í lit.
Efhisskipun er með svipuðum hætti
og undanfarin ár. Atburðir eru raktir
í tímaröð og myndar hver mánuður
sérkafla, sem hefst á fréttaskýringu
þar sem helsta viðburði mánaðarins
eru gerð skil. Síðan eru atburðir rakt-
ir frá degi til dags og loks er svo
myndaannáll mánaðarins. Fyrir fram-
an þennan annál er á myndrænan
hátt gerð grein fyrir stöðu ýmissa
mála í heiminum. Á eftir annálnum
koma yfirlitsgreinar um ýmis mál.
íslenski kaflinn er á sínum stað í
bókinni. Þar er, eins og í fyrri árbók-
um, stiklað á stóru um helstu viðburði
ársins hér á landi og mynd frá hverjum
viðburði sem um er fjallað.
„Árið 1985“ er alþjóðleg útgáfa og
er aðalútgefandi „Weltrundschau
Verlag AG“ í Sviss. Bókin kemur út
á átta tungumálum, þýsku, ensku,
frönsku, íslensku, ítölsku, spænsku,
sænsku og finnsku. Gísli Ólafsson er
ritstjóri íslensku útgáfunnar, Bjöm
Jóhannsson er höfundur íslenska kaf-
lans en Hafsteinn Guðmundsson
hannaði hann. Útgefandi er bókaút-
gáfan Þjóðsaga. MS
Aðstandendur islensku útgáfunnar, Bjöm Jóhannsson, Hafsteinn Guðmunds-
son og Gísli Ólafsson. DV-mynd GVA