Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1986, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1986, Síða 43
MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1986. 43 Sviðsljós Keppt við tímairn fyrir beina útsendingu Þátturinn í takt við tímann var send- ur út siðastliðið föstudagskvöld í fyrsta skipti með stjómendunum El- ínu Hirst, Jóni Gústafssyni og Ásdísi Loftsdóttur. Sent var út frá nýja út- varpshúsinu við Efstaleiti í húsnæði sem óneitanlega er líka í takt við tímann - hálfbyggt og hálfkarað eins og þorri íslenskra húsbyggjenda kannast allt of vel við. Innan um sementsryk og snúru- skóg fann hver sinn stað í verkinu. Á gólfinu var plast yfir órykbundu gólfinu. Eins gott að gleyma sér ekki með myndavélina því þegar inn í stofu áhorfenda var komið varð svið- ið að verka sannfærandi. Úti glumdu við stórhríðarhviður en fyrir innan fóm taugakerfi hamförum þegar leið að beinni útsendingu. Einn var kom- inn með gamalkunnar magahviður en annar kvartaði yfir þvi að finna ekki fyrir neinu - það þótti uggvæn- lega óeðlilegt og betra að hafa streituna með sér til að nýta kraft- inn. Aðalefni þáttarins var fjölmiðla- byltingin, tískuhræringar og heim- sókn til eiginkonu númer eitt í Reykjavíkurborg - Ástríðar Thorar- ensen, maka Daviðs Oddssonar borgarstjóra. Ekkert hik var á mönn- um þegar stóra stundin rann upp en meðfylgjandi myndir KAE voru teknar fimmtán til fimm mínútum fyrir útsendinguna. -baj í hálfbyggðu húsi - ilmandi af sementsryki - þræddu starfsmenn þáttarins veginn í þéttum snúruskógi. Mitt í ringulreiðinni sat Sigurbjörn Aðalsteinsson þögull og rólegur - umhverfið megnaði ekki að raska rólyndislegu yfirbragðinu. n bs, ÍaÉfllK I ■ 1 Guðrún Harðardóttir smellti andlitinu á Elínu Hirst með nokkrum vel æfðum handtökum. „Er ég ekki orðin alveg voðalega gelluleg með allt þetta meik?“ spurði Ásdís Loftsdóttir áhyggjufull. „Hárið á mér er alveg hræðilegt," sagði Elín og fékk sér góðan reyk niður í lungun til áhersluauka. Hún hefur liklega ekki fjárfest i tyggjótöflunum ennþá. VATN + VELUÐAN Það jafnast ekkert á við nýstandsett baðherbergi frá parma í Hafnarfirði. Útborgun 20%. Eftirstöðvar í allt að 9 mánuði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.