Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1986, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1986, Side 24
24 MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1986. MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1986. 25 íþróttir íþróttir Verður Gunnar áfram hjá Schalke? Atii Hilmaisson, DV, V-Þýskalandi: Gunnar Gíslason hefur líkað vel dvöl sín hjá Schalke en hann hefur æft með félaginu um viku- tíma. Það er enn ekki ljóst hvort Schalke býður Gunnari samning en er talið frekar ólíklegt og þá sérstaklega þar sem félagið keypti leikmann fyrir nokkrum dögum. Gunnar mun vera hjá Schalke þar til á miðvikudaginn. Þá verður það ljóst hvort honum verður boð- inn samningur. Ef ekki þá heldur hann til íslands og síðan til Nor- egs. Gunnar hefur skrifað undir samning við norska 1. deildar liðið Moss. Hann skrifaði undir þann samning með fyrirvara. -SOS Afli fflmaisson, DV, V-Þýskalandi: Ásgeir Sigurvinsson, sem var skorinn upp við meiðslum í öxl fyrir helgina, er með bestu meðal- einkunn k nattspy m umanna í V-Þýskalandi hjá blaðinu Bild, þrátt fyrir að hann hafi ekki leikið með Stuttgart á laugardaginn. Ásgeir er með meðaleinkunnina 2,64. Waas hjá Leverkusen er í öóru sæti með 2,69 og Wuttke hjá Kaiserslautem er með 2,77. Ásgeir mun verða frá í sex vikur vegna axlarmeiðslanna, sem hann hlaup í Evrópuleik Stuttgart. -sos ÍS-stúlk- urnar þraut- seigari Stúlkumar í ÍS og Breiðabliki þurftu hundrað mínútur og fimm Itrinui- til að fá úrslit í viðureign þeirra í Hagaskóla í gær. Virðist stefria í að baráltan unt Islands- meistaratitilinn í blaki kvenna verði skemmtileg í vetur. Eftir að Breiðabliksstúlkurnar höfðu leitt fyrstu hrinu glopruðu þær henni niður í lokin og ÍS sigr- aði, 16-14. UBK, með Þorbjörgu Rögnvaldsdóttur. Oddnýju Er- lendsdóttur og Sigurborgu Gunnarsdóttur sem bestu leik- memt, tók aðra og þriðju hrinu, 15-12 og 15 -8. Háskólastúlkur, leiddar af Auði Aðalsteinsdóttur og Málfríði Páls- dóttur, reyndust hins vegar þraut- seigari og sigruðu í íjórðu og fimmtu, 15-10 og 15-8. -KMU Staðan •Arnór Guðjohnsen sést hér fagna marki. Hann varð að fara af leikvelli í gær, meiddur á fæti. ?;Héltfyrstað ég væri fótbrotinn“ - sagði Amór Guðjohnsen sem fékk gróft spark Kristján Bemburg, DV, Belgíu: „Ég hélt í fyrstu að ég væri fót- brotinn. Þetta var rosalegt spark sem ég fékk rétt fyrir neðan hné. Sársauk- inn var gífurlegur. Heppnin var með mér þar sem það kom í ljós við skoðun að ég var ekki brotinn. Bólgan er mik- il í fætinum og verkimir ná niður í tá,“ sagði Amór Guðjohnsen sem varð að fara af leikvelli þegar Anderlecht lagði Waregem að velli, 1-0, í gær. Amór varð að fara af leikvelli í seinni hálfleik. Það var Christjans sem braut svo gróflega á Amóri - sparkaði viljandi í hann. Það vakti mikla athygli að hann fékk ekki að sjá rauða spjaldið. Amór var ekki eini leikmaðurinn hjá Anderlecht sem meiddist í leiknum. Lozano varð að fara af leikvelli, rif- beinsbrotinn. Anderlecht er á toppnum í Belgíu, eða 17 stig eins og FC Bmgge. Það var Pierre Jensen sem skoraði sigur- mark liðsins gegn Waregem. Standard Liege er með 15 stig og síðan koma Lokeren og Beveren með 13 stig. • Ragnar Margeirsson og félagar hans hjá Waterschei máttu þola tap, 1—3, fyrir Winterslag í 2. deildar keppninni. Ragnar var nær búinn að jafna þegar staðan var, 2-1. Þá varði De Brauyne, markvörður Winterslag, meistaralega skot frá honum. -SOS rGuðmundur Torfá ! eða Woodcock? •Atfreð Gíslason. Alfreð skoraði sex mörk Afli HÍlnarsson, DV, V-Þýskalandi: Alfreð GLslason skoraði sex mörk fyrir Essen þegar félagið lagði Hofweier að velli, 30-20, í gær. Essen hefúr leikið 24 leiki í röð án taps á heimavelli sfnum - unnið 23 og gert eitt jafntefli. Essen hefur nú 15 stig, Gross- wallstadt 13, Dússeldorf 11, Göppingen 11, Milbertshofen 10, Schwabing 9, Gummersbach 8, Kiel 8, Hofweier 7, Lemgo 6, Dort- mund 6, Hameln 4, Schutterwald 2 og Handewitt 2. •Bjami Guðmundsson skoraði sjö mörk fyrir Wanne Eicken þegar félagið lagði Jurden. -SOS Real Madrid á toppnum Francisco Bryo, markvörður Re- al Madrid, var hetja Real í Sevilla, þar sem félagið vann sinn fyrsta sigur í fjórtán ár. Bryo, sem varði tvær vítaspymur gegn Juventus á dögunum, varði vítaspymu frá fymun félögum sínum hjá Sevilla. Það var Ricardo Gallego sem skor- aði sigurmark Real Madrid, 1-0. Barcelona varð að sætta sig við jafntefli, 0-0, á heimavelli gegn Zaragossa. Mark Hughes lék ekki með Barcelona vegna meiðsla. Cedrun, markvörður Zaragossa, átti stórleik í markinu. Real Madrid er með 19 stig, Barcelona 18, Espanol og Atletico Madrid 16. -SOS Tap fyrir Noregi íslenska landsliðið i handknatt- leik hafnaði í þriðja sæti í alþjóð- legu. handknattleiksmóti í Hollandi. íslenska liðið tapaði, 23-27, fyrir Norðmönnum í gær. Kristján Arason og Páll Ólafeson komu frá V-Þýskalandi til að leika leikinn. Þeir mættu á keppnisstað aðeins 20 mín. fyrir leikinn. Norð- menn vom yfir, 14-13, í leikhléi. Kristján skoraði flest mörk ís- lands, eða 8. Páll skoraði 5. -SOS - eru undir smásjánni hjá Berchem Staðan i 1. er þessi: Víkingur is Fram Þróttur, R. HK Þróttur, N. KA HSK deild karla í blaki Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Guðmundur Torfason lék ekki með varaliði Berchem gegn Loker- en í gær eins og reiknað var með. Guðmundur er enn hjá félaginu, sem hefúr einnig augastað á enska leikmanninum David Woodcock, sem leikur með 3. deildar liðinu Darlington. Blaðið Hed Newsblad sagði frá þvi í gær að valið stæði á milli Guðmundar og Woodcock. iniiii uuumuiiuni ug uuuuuuua. vGuðmundur Torfason. Þjálfari Berchem vill fá að sjá Guðmund og Woodcock leika með liði sínu gegn sterkum félögum. Berchem hefur ekki gengið vel að undanfomu. Félagið er í neðsta sæti í belgísku 1. deildar keppn- inni, með aðeins þrjú stig eftir tíu leiki. Berchem tapaði, 0-1, fyrir Lokeren á heimavelli í gær. Þess má geta að aðsókn á leiki liðsins er ekki mikil, þetta 2-3 þús. áhorf- endur á leik. -SOS Knapp eins og enskur hertogi! Það eru ekki allir sem syngja lof- söng um fyrrum þjálfara íslenska landsliðsins í knattspyrnu, Tony Knapp. Einn af þeim, sem er uppsigað við Tony í Noregi, lætur í sér heyra í dagblaðinu Bergens Tidende. Það er Ivar Morten Normark. Sá fékk lítið að spila með Brann í sumar og er nú á leiðinni frá félaginu og Bergen. „Knapp er eins og enskur hertogi sem kemur til nýlendu inni í miðri Afríku. Hann umgengst leikmennina eins og þræla sína og þjálfunarað- ferðir hans eru eins og hjá einræðis- herra,“ segir hann. Normark fékk heldur betur valsinn til baka frá gömlu félögunum sínum í liðinu fyrir þessi orð í garð Knapp. Voru honum ekki vandaðar kveðj- urnar þar. Knapp hafði sjálfur mest gaman af þessu uppþoti í stráksa. „Hann þurft.i að taka það út á ein- hverjum að hann komst ekki í liðið og ég ligg vel við höggi eins og allt- af,“ sagði hann. -klp- • Hertoginn á heimavelli... Tony Knapp á knattspyrnuvelli í Noregi. • Páll Ólafsson lék mjög vel með Dusseldorf. Páll Ólafsson skoraði níu mörk - og átti stórleik með Diisseldorf gegn Kristjáni Arasyni og félögum hans hjá Gummersbach, sem unnu, 25-24. Kristján skoraði þrjú mörk úr fjórum skottilraunum og þá átti hann fimm sendingar sem gáfú mörk. Þess má geta að Wunderlicht skoraði tvö mörk beint úr aukaköstum - sendi knöttinn fram hjá tveggja metra vam- armúr Gummersbach. Wunderlecht er marhahæstur í V-Þýskalandi, með 75 mörk. -sos Afli Hilmaissan, DV, V-Þýskalandr Páll Ólafeson átti snilldarleik með Dússeldorf þegar félagið vann góðan sigur, 19-16, á útivelli gegn Schutter- wald. Páll fór á kostum og skoraði níu mörk í leiknum. Sigurður Sveinsson, sem er þriðji markahæsti leikmaður- inn í V-Þýskalandi, með 59 mörk, var tekinn úr umferð þegar Lemgo og Göppingen gerðu jafntefli, 22-22. Sig- urður skoraði fimm mörk í leiknum. Lemgo var með fimm marka forskot um tíma en leikmenn liðsins gátu síð- an hrósað happi að ná jafntefli. Rétt fyrir leikslok fékk Göppingen vítakast. Pólverjinn Klempel tók víta- kastið en markvörður Lemgo varði. Klempel, sem er annar markahæsti leikmaðurinn í Bundesligunni, með 74 mörk, skoraði 13 mörk í leiknum, þar af 10 eftir aukaköst. Tröllið Wunderlicht skoraði 13 mörk fyrir Milbertshofen. Það dugði þó ekki \ •Sigurður Sveinsson. Burruchaga til Napoli Afli HSniaissan, DV, V-Þýskalandi ítalska félagið Napoli hefúr keypt argentínska landsliðsmanninn Burruchaga frá franska félaginu Nantes á kr. 108 milljónir. Napoli keypti Burruchaga til þess að Mara- dona verði áfram hjá félaginu en þeir eru miklir félagar. Þess má geta að Bayem Múnchen er tilbúið að kaupa Maradona á 370 milljónir frá Napoli. -sos 4 3 1 94 6 4 3 19-76 3 2 18-34 2 2 0 6-2 4 3 2 1 64 4 2 0 2 3-6 0 3 0 3 2-9 0 3 0 3 1-9 0 -KMU Enn baka Framarar Framarar virðast kunna vel við að baka andstæðinga sína i blakinu þessa dagana. Um síðustu helgi var það ÍS. í gær lenti Héraðssambandið Skarp- héðinn í ofninum. Baksturinn í gær tók aðeins 33 mín- útur. Hrinur fóru 15-6, 15-1 og 15-2, samtals 45-9. Fram komst í 14-0 í lokahrinunni. Ómar Pálmason hafði gefið upp öll stigin en í fimmtándu uppgjöfinni brást honum bogalistin. Sunnlending- um tókst að nýta sér tækifærið og bjarga sér frá „egginu“, sem Stúdentar höfðu mátt þola gegn Fram. Bræðumir Jón Grétar og Ólafur Traustasynir voru bestir í liði Fram. HSK-liðið, án tveggja sterkra leik- manna, var dapurt. -KMU Studentar i kroppum dansi í Neskaupstað - heimamenn yfir, 14-12, í urslrtahrinunni „Það var gremjulegt að tapa þessu,“ sagði Ólafur Sigurðsson, þjálfari blak- liðs Norðfirðinga eftir hörkuleik við íþróttafélag stúdenta í Neskaupstað á laugardag. Framan af var leikurinn köflóttur. IS sigraði í tveim fyrstu hrinum, 15-7 og 15-4. Þrótti tókst naumlega að fram- lengja leikinn með 15-13 sigri í þriðju hrinu. Þeim sigri fylgdu heimamenn eft- ir með 15-1 bursti. Staðan þá orðin 2-2 og stemmningin á þéttsetnum áhorf- endapöllum rafmögnuð. „Stúdentar komust í 8-2 i úrslitahrin- unni og við síðan í 14-12. Það var tómur aulaháttur hjá okkur að klára ekki úr- slitahrinuna. Þetta var mikill tauga- titringur hjá okkur í lokin,“ sagði Ólafur. Stúdentum tókst að síga fram úr og sigra, 16-14, og leikinn þar með, 3-2, þrátt fyrir erfiða áhorfendur. Þorvarður Sigfússon var sterkastur í liði ÍS. Hjá Þrótti var Ólafur Viggósson langbestur. Marteinn Guðgeirsson, Sig- finnur Viggósson og Guðbjartur Magnason reyndust einnig erfiðir Stúd- entum sem hafa í þokkabót mátt þola það að vera veðurtepptir fyrir austan um helgina. Hvassviðrið yfir landinu hafði einnig þau áhrif að kvenna- og karlalið Þróttar úr Reykjavík komust ekki til Akureyrar til að leika við KA. Mats Wilander tapaði stórt Guraflaugur A. Jónsaan, DV, Svíþjóð: Stefán Erberg vann óvæntan stórsigur yfir Mats Wilander í úr- slitaleik opna Stokkhólmsmótsins í tennis sem lauk í gær. Etberg vann, 6-2, 6-1 og 6-1. Þeir félagar eru í þriðja og fjórða sæti á listan- um yfir bestu tennisspilara heims. •í Antwerpen í Belgíu vann John McEnroe sigur yfir Mecir frá Tékkóslóvakíu í úrslitaleik á tenn- ismóti þar, 6-3,1-6,7-6,5-7 og 6-2. -sos •Ásgeir Sigurvinsson. Ásgeir í ersta ssti hjá Bild HLISA SMIÐJAN 5ÚÐARVOG1 3-5. 104 REYKJAV1K - SÍMI 687700 MALNINGAR Ef þú ætlar aö flikka upp innandyra eöa utan meö nýjum litum þá þarftu aðeins á einn stað. i Húsasmiójuna. Þar færðu málningarvörurnar sem þú þarft. Ekki aðeins litina heldur einnig pensla, rúllur og annað sem léttir þér verkið. HÚSASMIÐJAN — Heimur fyrir handlagið fólk. ORKIN/SÍA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.