Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1987. Neytendur Páskaegg í bragðprófun: Hvort er það buddan eða bragðlaukarnir sem ráða? Árlegur viðburður hjá okkur á rit- stjóm DV er að við gerum bragðprófun á súkkulaðieggjum sem eru á boðstól- um. Að þessu sinni prófuðum við íjórar tegundir af eggjum, frá Nóa/Siríusi, Mónu, Mackintosh og Rowntrees Li- onbar. Þessi tvö síðasttöldu eru reyndar írá sama fyrirtækinu. Það síðastnefhda reyndist óhæft til neyslu og er fjall- að um það annars staðar hér á síð- unni. Eggin strípuð Áður en bragðnefndin var kölluð til voru eggin tekin úr umbúðunum og rúin öllu skrauti. Það var gert til þess að útlitið hefði ekki áhrif á bragðlauk- ana. Einnig var innihaldið vigtað. Það var mjög mismunandi. Mest var í Mónuegginu eða 115 g af sælgæti og áberandi minnst var í Rowntrees Lion- bar eða 45 g. Nóaeggið innihélt 95 g af sælgæti. Einnig voru eggin vigtuð áður en bragðprófunin hófst. Stigatalan Við notuðum stigagjöf við prófun- ina. Hvert egg fékk fjóra möguleika: Slæmt gaf 1 stig, sæmilegt sem gaf 2 stig, mjög gott sem gaf 3 stig og frá- bært sem gaf 4 stig. Best var að fá sem flest stigin. Hæsta mögulega stigagjöf var 44 stig, þá hefði viðkomandi feng- ið 4 stig frá hverjum dómara sem auðvitað varð ekki. Bragðlaukar dóm- aranna reyndust mismunandi en þó var eitt eggið áberandi best, Nóaeggið fékk 35 stig. Mónueggið fylgdi fast á eftir með 31 stig, svo kom Mackintosh Quality Street með 28 stig. Við grein- um ekki frá því hver var stigafjöldi „fuleggsins" í prófuninni. Verðútreikningurinn Þegar við keyptum eggin reyndum við að velja þau sem voru ámóta stór að sjá því ekki var hægt að velja ís- lensku eggin eftir númerunum því þessir tveir framleiðendur nota ekki sama númerakerfið. Nóaeggið var nr. 5, vó 380 g og kost- aði 739 kr. eða kr. 1945 kr. kg. Mónueggið var ekki langt frá í vigt- inni, eggið var nr. 8 og vó 345 g. Verðið var hins vegar langt frá, það kostaði 565 kr. eða 1638 kr. kg. Út- lenda eggið frá Mackintosh vó 220 g og kostaði 315 kr. eða 1432 kr. kg. Þetta egg var ekki með neinu skrauti nema klætt í mislitan pappír og svo í forkunnarfögru og skrautlegu pappa- hulstri. Aragrúi af smáeggjum Nú eru á boðstólum aragrúi af alls konar smáeggjum sem eru í alls konar skrautpappír. Þetta eru innflutt egg á stærð við andaregg en einnig lítil eins og kríuegg. Verðið er á bilinu 12-20 kr. og þau vega 10-15 g þau minni og allt upp í 40 g. Þá sáum við einnig franskan súkkulaðihéra í hérapappír. Hann fær sérstakan plús fyrir góða nerkingu, sem er sjaldgæft á sælgæti, afnvel þótt merkingin væri á ensku )g límd yfir franska innihaldslýsingu. dérinn kostaði 150 kr. og vó 75 g. Það jerir kg verð upp á 2000 kr. Þá er það bara neytendanna að velja ívort þeir fara eftir bragðlaukum eða ærðlagningu. -A.BJ. Stripuðu eggin sem bragðað var á. DV-myndir Brynjar Gauti Úrvalið í bragðprófuninni. Mismunandi verð á súkkulaðieggjunum, allt frá rúm- um 1400 kr. upp í 1945 kr. kg. Háalvarlegir bragðdómarar að störfum. A NIGHTMARE ON ELM STREET II * ELENI ★ THE TERMINAL MAN ★ THEATER OF BLOOD Þessar þrælmögnuðu spennumyndir eru væntanlegar á velflestar myndbandaleigur í dag og á morgun. A NIGHTMARE ON ELM STREETII (FREDDY’S REVENGE): Verðugt framhald hinnar geysivin- sælu myndar „A Nightmare On Elm Street". I þessari mynd hefur Freddy fundið sér nýtt fórn- arlamb, Jesse Walsh sem hefur ekki minnsta hugboð um hvað bíður hans er hann flytur í ákveóið hús við Elmstræti. Þeir sem sáu fyrri myndina vita að það er örugglega ekki dans á rósum. ELENI: Mögnuð mynd sem fjallar á átakanleg- an hátt um Eleni Gatzoyaonis, fimm barna móður sem fórnaði eigin lífi í von um að börn- in hennar mættu lifa af hörmungar borgara- styrjaldarinnar sem geisaði í Grikklandi eftir síðari heimsstyrjöldina. 30 árum eftir aftöku Eleni snýr sonur hennar aftur til þess að rann- saka málið og hafa hendur í hári ódæðismann- anna. Eleni er byggð á samnefndri metsölubók sem er sönn frásögn sonarins, Nicholas Gage, rannsóknarblaðamanns hjá New York Times. Aðalhlutverk: Kate Nilligan (Nálaraugað, Wit- hout a Trace), John Malkovich (The Killing Fields, Places in the Heart), Linda Hunt' (óskarsverðlaun fyrir The Year Of Living Dan- gerously). Leikstjóri: Peter Yates (Bullitt, Breaking Away, The Deep, The Dresser). THE TERMINAL MAN: Harry Benson er mikils metinn sérfræðingur á sviði tölvuvísinda. Hann þjáist of óhugnanlegum sjúkdómi er lýsir sér í því að á hann rennur moröæði sem varir í stuttan tíma og hann man síðan ekkert eftir. Harry á tveggja kosta völ, að fá sterka lyfjagjöf sem gerir hann að viljalausu verkfæri annarra eða að gangast undir erfiða skurðaðgerð sem annað hvort læknar hann fullkomlega eða ger- ir hann að morðóðum brjálæðingi til frambúð- ar. Harry velur síðari kostinn með hörmulegum afleiðingum. Aðalhlutverk: George Segal (Bridge At Remagen, Who's Afraid of Virginia Woolf), Jill Clayburgh (An Unmarried Wo- man, l'M Dancing As Fast As I Can). THEATER OF BLOOD: Eftir að leiklistargagn- rýnendur höfðu gert vel heppnaö samsæri um að eyðileggja leikferil Edwards Lionheart snýr hann baki við hinu hefðbundna leiksviði. Hann ákveður þess í stað að hasla sér völl í leikhúsi lífsins. Sjaldan hefur Edward tekist jafnvel til í leik sínum til mikillar skelfingar fyrir fórnardýr hans, gagnrýnendurna, sem nú eru svo sannar- lega leiksoppar örlaganna. I þessu leikhúsi rísa hinir látnu ekki upp þegar tjaldið fellur að sýn- ingu lokinni, þeir eru í besta falli bornir út í kistum. Aðalhlutvrk: Hinn eini og sanni Vinc- ent Price, ókrýndur konungur taugastrekkjandi og blóði drifinna spennumynda. VARÚÐ - VARÚÐ - VARUÐ - VARUÐ - VARÚÐ - VARÚÐ - VARÚÐ - VARÚÐ Viðkvæmu fólki er ráðlegt að láta þessar myndir óséðar. Leikið rétta leikinn- taMðmyndMTEFU Ármúla 36,108 Reykjavík - sími 686250

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.