Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1987.
Spumingin
Ætlarðu að fá þér páska-
egg um páskana?
Elisarún Jónsdóttir: Já, og ég vona
bara að ég fái fleiri en eitt.
Ævar Þór Ævarsson: Já, alveg ör-
ugglega. Mamma og pabbi ætla að
gefa mér páskaegg, ég hlakka svo til.
Þóranna Jónsdóttir hárgreiðslu-
meistari: Já, ætli ég geri það ekki
þessa páska eins og aðra. Mér fmnst
aiveg nauðsynlegt að fá páskaegg
um páskana svo það sé virkilega
páskastemmning.
Kristófer Snævarsson: Já, ég fæ alla-
vega eitt rosastórt. Mamma og pabbi
gefa mér alltaf páskaegg á páskun-
um.
Ásagunnur Sigurðardóttir: Já, og ég
hlakka svo til þess.
Ágústa Ragnarsdóttir húsmóðir:
Ætli það ekki. Maður verður að
halda almennilega upp á páskana
með öllu tilheyrandi.
Lesendur_____________________i
Samningar? Kosningar?
Hvað er nú það?
Stefán Karlsson 8352 - 2356 skrifar:
Þegar ég heyrði túlkun Haralds
Hannessonar á úrslitum í atkvæða-
greiðslu borgarstarfsmanna sem
fram fór á dögunum varð ég undr-
andi. Þegar ég kaus taldi ég mig
vera að taka afstöðu til þess hvort
ég teldi 3-4 þúsund króna iauna-
hækkun nægja til að framfleyta
mér. Haraldur upplýsti hins vegar
að þetta hefði ekki verið það sem
ég hafði í kollinum þegar ég greiddi
atkvæði, heldur hefði ég verið að
velja á milli stefna í launamálum.
Gott að gáfumaður eins og Haraldur
segi bjánum eins og mér hvað ég er
að hugsa, það er full þörf á því. Verst
að þetta skyldi ekki hafa komið fram
fyrir atkvæðagreiðslu því þá hefði
ég líkléga krossað í annan reit. Ég
er nefnilega hlynntur því að launa-
stigum sé þjappað saman og er
þeirrar skoðunar að 3-4 þúsund
króna launahækkun dugi ekki til
að endar nái saman hjá mér og
skyldi engan undra þegar alþingis-
menn töldu sig þurfa 9.000 króna
hækkun og voru þó með þrefalt
hærri laun en ég fyrir.
Nýjasta svarið frá samninganefhd-
„Mér finnst nýjasta tilboðið í kjara-
samningunum fásinna og hrein
verðbólgusprengja..
unum er meiri launamunur og 2-3
þúsund króna hækkun til mín - já
það er munur að hafa gáfumenn í
forsvari fyrir sig.
Ég spurði Ragnhildi Helgadóttur
á fundi hvar hann væri þessi hag-
vöxtur sem alltaf er verið að tala
um og kom m.a. fram í 2-3 milljóna
króna jólagjöf borgarinnar til fólks-
ins þegar SVR var svipt tekjum yfir
mesta annatíma ársins en nú væri
tæpast til króna þegar kemur að
launasamningum.
Ragnhildur sagði að til lítils væri
að hækka krónutölu launa, afleið-
ingin yrði bara blússandi verðbólga.
Meira væri um vert að ná fram raun-
verulegri kaupmáttaraukningu. Ég
er sammáia þessu e' verð samt að
viðurkenna að ég hef ekki orðið var
við að kaupmáttur ykist sérstaklega
síðastliðið ár. Vinnufélagar mínir
hafa þó heyrt að mikil kaupmáttar-
aukning sé til staðar einhvers staðar
en ekki er vitað nákvæmlega hvar.
Ég veit að bílar lækkuðu og senni-
lega eitthvað fleira, kannski sólar-
ferðir, ég get bara ekki hagnýtt mér
slíkt þegar að launin mín duga aldr-
ei út mánuðinn. Samt er ég neyslu-
grannur, streða við að greiða mínar
skyldur, skulda ekki óeðlilega mikið
og er ólatur til vinnu.
í ljósi þess sem Ragnhildur sagði
æskilega launastefhu og bæði ég og
Haraldur formaður höfum tekið
undir þá finnst mér nýjasta tilboðið
í kjarasamningunum fásinna og
hrein verðbólgusprengja sem að
sjálfsögðu leikur verst þá lægst laun-
uðu - og fordæmið kemur ofan frá.
Er virkilega ekkert að marka
stefnumarkandi yfirlýsingar um
ábyrga stjómun í opinberum fjár-
málum? Skyldi eitthvert þessara
gáfnaljósa virkilega trúa því að ég
og mínir líkir sjái ástæðu til að
treysta þeirra forsjá í mikilvægum
ríkisumsvifum? Ég vona bara að ein-
hver þeirra geti upplýst mig um hvað
ég á að kjósa, og hvers vegna, því
mér finnst illt að ganga svona um
og botna ekki neitt í neinu. Það fær
mig til að finnast ég vera „voða,
voða“ vitlaus - eða þannig.
Virðingarfyllst
Stefán Karlsson,
vagnstjóri 100
Lýðræðið í hættu
Sigurður Guðmundsson skrifar:
Með tilkomu Borgaraflokksins er
ekki hægt að segja annað en að nú
hafi Sjálfstæðisflokkurinn klofnað
illa. Sumir vilja meina að þetta sé eins
og stór bóla er eigi eftir að hjaðna er
fram líða stundir en aðrir taka Borg-
araflokknum opnum örmum og alvar-
lega sem nýju stjómmálaafli lýðveldis-
ins.
Mér persónulega finnst mjög furðu-
lega að þessu staðið, það er smalað
saman hugsanlegum frambjóðendum
áður en stefna flokksins lítur dagsins
ljós. Og fólk er að tala um að kjósa
flokkinn áður en það veit nokkuð um
stefhuskrá hans.
En það sem ég er hræddastur við er
að ef Borgaraflokkurinn fær svona
mikið fylgi eins og kom fram í skoð-
anakönnun DV og Borgaraflokkur og
Sjálfstæðisflokkurinn mynda meiri-
hluta í næstu ríkisstjóm þá sé lýðræð-
ið í mikilli hættu. Ég get nefnilega
ekki séð hvaða efnislegi munur er á
stefnu flokkanna en báðir em þetta
hægri flokkar.
Ég verð bara að vona í lengstu lög
að til þess komi ekki, því að hafa
hreinræktaða hægristjóm lofar ekki
góðu. '
Fáránlegur kjördagur
Gunnar Pálsson hringdi:
Mér finnst alveg fáránlegt að hafa
kjördaginn 25. april. Páskavikan kem-
ur þarna inn í og veldur því að lítið
er hægt að fylgjast með því í fjölmiðl-
um hverju flokkarnir ætla að koma í
framkvæmd og erfitt að kynna sér
hversu frambærilegir frambjóðendur
em.
Maður á erfitt með að trúa því að
það sé með ráðum gert að hafa nánast
lokaða stjómmálaumræðu. Þvi skora
ég á ríkisstjóm og Alþingi að hafa
annan og heppilegri kjördag svo kjós-
endum gefist kostur á því að komast
inn í stjómmálaumræðuna óg taka
þátt f henni.
Frábærir þættir
Pálína hringdi:
Þar sem svo oft er verið að
kvarta yfir sjónvarpsdag-
skránni langar mig að þakka
sjónvarpinu fyrir þættina, Já,
forsætisráðherra en fólk virð-
ist alltaf horfa fram hjá því
jákvæða.
Þetta em í einu orði sagt
alveg frábærir þættir er
hressa og kæta lund. Það er
hreint makalaust hvað hægt
er að gera stjómmálamenn-
ina að miklu spotti og það
fyndnasta við þetta allt sam-
an er að maður stendur
sjálfan sig oftar en einu sinni
að því að vera að heimfæra
þetta upp á íslensku stjóm-
málamennina og gerir létt
gys að.
Þessir ensku þættir em
mjög góð tilbreyting frá am-
eríska vælinu og húmorinn „Já, forsætisráðherra eru í einu orði sagt al-
hittir beint í mark. veg frábærir þættir er hressa og kæta lund.“
Snillingimnn Chaplin
Gunnlaugur Karlsson hringdi:
Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir að
sýna hina frábæm mynd Gullæðið
með Charlie Chaplin í aðalhlutverki.
Mér finnst ekki nógu mikið sýnt
með hinum óviðjafnanlega grínleikara
Chaplin. Gullæðið var ágæt byrjun og
ég vonast bara til að sjónvarpið sýnir
meira af myndum sem þessi snillingur
leikur í.
Sportval:
„Virðingaiverð
þjónusta“
Þorbjörg Guðmundsdóttir hringdi:
Ég vil þakka versluninni Sportvali
fyrir liðlega og góða afgreiðslu.
Það vill svo til að ég keypti jogg-
ingbuxur þar og var búin að ganga
í þeim þónokkum tíma, hafði einnig
þvegið þær, er ég uppgötvaði að
buxumar vom gallaðar. Önnur
skálmin var snúin. Er ég kom í versl-
unina og sýndi gallann á vörunni
fékk ég strax nýjar og hélt einnig
þessum gölluðu.
Maður er ekki vanur að fá svona
góða þjónustu en mér finnst svona
þjónusta mjög virðingarverð.