Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Síða 17
MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1987. 17 Merming Fjalla Eyvindur sonar sé stórkostlegt bókmennta- verk er því töluvert áfátt sem sviðsverki. Samt hefði ég fremur kosið að sjá þennan Eyvind á óperu- sviði í uppfærslu snjalls leikstjóra, en á steindauðu sviði Háskólabíós. Þó að það hefði vitaskuld kostað að sviðságallamir hefðu komið berlega í ljós. Það pr stundum eins og lítt sé hugsað til þess að óperan sé sviðs- leikur. Dæmi um það er senan þegar Björn hreppstjóri kemur með níu menn að taka Höllu, Eyvind og Ar- nes. Sveinar Bjöms syngja ekki bofs. Stundum bölvar maður því að slíkir kónar séu I óperum látnir kyrja ein- hverja dauðans dellu. En það er skrambakomið skárra en að hafa þá dumba. Og í konsertformi dofnar öll dramatík aríanna, sem eru þó burðargrind verksins. Af hverju ekki frumtexta? Fjalla Eyvindur var hér sunginn við íslenskan texta sem Óskar Ing- imarsson hafði lipurlega snúið. Aðeins á örfáum stöðum var til dæm- is hnikað til áherslum frá okkar fyrsta atkvæðis hefð. En ég hefði þrátt fyrir það kosið að hlýða á Ey- vind sunginn á frummálinu - í þessu tilviki þýsku. Texti Katrínar og Franz Mixa er afar lifandi og lýs- andi, í fullu samræmi við tónlistina. Það er raunar ein höfuðprýði þessar- ar ópem. Hér hefði gjaman mátt fara eins að og í Islensku óperunni, að birta þýdda textann á nettum skermi. Hvað er svo íslenskt? Hvað er svo islenskt við þessa óperu? Eíhið og lagminnin. En í tón- list sinni fetar Franz Mixa að öðru leyti örugglega varðaða braut, sem svo margir landa hans hafa fetað í tónsmíðum mestalla þessa öld. En ég held samt að í þessum sökum megum við ekki hugsa með neinni þjóðrembu. Listin er alþjóðleg. Hvar höfum við betri sönnur þess en i tónlistarmálum okkar einmitt nú. Mér varð það fyrir að bera þessa ópem saman við aðrar ópemr, þjóð- legar, sem ég hef kynnst. Þess háttar óperur urðu til að mynda hluti af sjálfstæðisbaráttu Tékka. Eg sé í Eyvindi fulla hliðstæðu, einnig mús- íkalska, við ópemr eins og Máriána eftir Vaclav Felix. Meira að segja uppbyggingin er þar svipuð, þó sögu- þráðurinn sé annar. Þannig held ég að við þurfum síður en svo að skammast okkar fyrir að tileinka okkur hana sem þjóðlega ópem. Skrifast á reikning aðstæðna Konsertformið setti sitt mark á flutninginn. Kórinn skilaði sínu þokkalega. Það verður víst ekki til þess ætlast að fólk dansi víkivaka með röddinni. Af einsöngvaraliðinu var Viðar Gunnarsson sá eini sem megnaði að flytja dramatík sviðs- leiksins inn í konsertsalinn. Það var líkt og hvorki Halldór, Erlingur né Anna Júlíana tryðu því að þau næðu að koma henni til skila hvort eð var. Þau sungu mjög þokkalega út af fyrir sig, en það vantaði í þau bitið. Það skal að sjálfsögðu skrifast á reikning aðstæðnanna. Hljóm- svéitin skilaði sínu best allra hlutað- eigandi. Hún var sá klettur sem allt hvíldi á í þessum flutningi. Kannski á hún auðveldast með að hugsa óper- una í svo afstæðu formi sem konsert- uppfærslan er. Og einhvern tímann eigum við vonandi eftir að rausnast til að flytja þennan Eyvind á ópem- sviði. EM IASGOSÍ Sinnhofer kvartettinn, Sinnhofer strengja- kvintettinn Tónleikar Sinnhofer strengjakvintettsins á vegum Kammermúsikklúbbsins i Bú- staðakirkju 8. april. Efnisskrá: Wolfgang Amadeus Mozart: Strengjakvintett i C-dúr KV 515; Ingo Sinn- hofer: Strengjakvintett; Johannes Brahms: Strengjakvintett i F-dúr op. 88. Kammermúsíkklúbburinn heldur upp á þrjátíu ára afmæli sitt á viðeig- andi hátt. Sinnhoferkvartettinn hefur áður verið gestur hans og það vom góðar gestakomur. Nú var lngo Tónlist Eyjólfur Melsted Sinnhofer, konsertmeistari og tón- skáld frá Múnchen, mættur með kvintett til leiks. Reyndar er aðeins um að ræða einn mann I viðbót en slíkar viðbætur geta verið afdráfarí- kar og brevtingin er geysimikil hvar sem á er litið. Það munar ekkert smáræði imi einn mann í lítilli strengjasveit. Annars hefur allt það góða færst á milli frá kvartett til kvintetts, enda um sömu áhöfn að ræða þegar til þess er tekið. Frá hátindi Mozarts en fínleik- ann skorti Þeir byrjuðu á Mozart, kvintettin- um KV 515, en síðustu strengja- kvintettamir sýna Mozart á hátindi kammerkúnstar sinnar. Þar heldur hann i gömlu hefðina að hafa tvær víólur í stað tveggja sellóa - ..tísku- fyrirbærisins". sem Luigi Boccherini hafði innleitt og pólerað að minnsta kosti íjörtlu stykki fyrir. Leikur Sinnhoferkvintettsins var fágaður og samheldinn vel. En hann hefði mátt innihalda meira af þeim fín- leika sem (fvrirgefið slettuna) „Mozártlichkeit" kallast meðal inn- vígðra Mozartgeggjara. Til yndis eða umleikis? Tónskáldið Ingo Sinnhofer þekkir alla króka og kima kvintettleiksins og það kemur greinilega fram I tón- smíð hans. Strengjakvintett um þjóðlagið „Viel Freuden mit sich bringet die frölich Sommerzeit" sem er útlagt með: Það er svo margt til yndis. þá að fer sumartíð. Einhvern veginn hefði mér betur fundist í þessu tilviki við eiga „Viel Auf- wand. . ." eða: Það er sVo margt umleikis. Þótt lagfrum verksins sé hið yndislegasta held ég ekki að þessi kvintett verði mér neinn e>Tna- ormur. Brahms átti svo lokaorðin með Kvintettinum I F-dúr op. 88. Það var verkið sem allra best naut sín á tón- leikum þessum. Bæði stendur Brahms fyrir sínu og svo var þetta verkefni sem hentaði leikmáta Sinn- hoferkvintettsins út I æsar, eins og reyndar stykki Sinnhofers líka. Und- ir þeim kringumstæðum er það til yndis á þann kvintett að hlvða. EM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.