Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987.
Fréttir
Greiðslur fram hjá
skiptum ekki skoðaðar
Engin stofriana sjávarútvegs eða
hagsmunasamtök í sjávarútvegi telja
sig hafa ástæðu eða vald til þess að
skoða ofan í kjölinn ásakanir forsvars-
manna sjómanna um að raunverulegt
fiskverð komi í mörgum tilvikum ekki
að fullu til skipta til sjómanna.
Hjá sjávarútvegsráðuneyti fengust í
gær þær upplýsingar að ekkert lægi
íyrir sem benti nægilega til þess að
útvegsmenn og fiskkaupendur hefðu
gerst brotlegir i þessum eínum. Því
gerði ráðuneyti ekki ráð fyrir að hefja
neina athugun á ásökunum sjómanna.
Hjá Fiskveiðasjóði voru viðbrögðin
þau að líkast til þýddi lítið að hefja
athugun á málinu því ef útgerðarmenn
gæfu rangt verð til sjómanna mætti
ætla að sömu rangfærslur kæmu inn
til skila á greiðslum í stofnfjársjóð sem
er hlutfall af fiskverði.
Hjá félagsmálaráðuneyti fengust svo
í morgun þær upplýsingar að ef sjó-
menn teldu með þessu brotinn kjara-
samning gætu þeir að sjálfsögðu kært
til félagsdóms, sem myndi þá taka
málið fyrir. Að öðru leyti væri það
hlutverk stéttarfélaga sjálfra að fylgja
eftir málum af þessu tagi.
Óskar Vigfússon, forseti Sjómanna-
sambands Islands, fullyrti í gær að
mikil brögð væru að því að fullt fisk-
verð skilaði sér ekk: til skipta. Gætti
oft mikils misræmis í því verði er fisk-
kaupendur teldu sig greiða og
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan franskan ferðamann i Landmannalaugar síðdegis i gær og flutti
hann á Borgarspitalann. Frakkinn hafði verið, ásamt öðrum ferðamönnum, á gönguskíðum og hrapaði hann
um 8 metra í Grænagili. Talið er að hann hafi skaddast á mænu við fallið. DV-mynd S
Ný útvarpsstöð eftir mánuð:
Sextíu raddprófaðir
„Við höfum fengið 400 tillögur um
nafn á útvarpsstöðina og 300 starfs-
umsóknir. Það er verið að vinna úr
þessu öllu núna en við ætlum í loft-
ið í lok næsta mánaðar," sagði
Gunnlaugur Helgason, einn af hlut-
höfum í Hljóðvarpi hf.
Gert er ráð fyrir að um 15 manns
vinni við nýju útvarpsstöðina, þá
meðtaldir hluthafamir, Þorgeir Ást-
valdsson, Jón Axel Ólafsson og
Gunnlaugur Helgason, en auk þeirra
eiga hlut í fyrirtækinu Ólafur Lauf-
dal veitingamaður og auglýsingafyr-
irtækið Ljósir punktar.
„Við erum þegar búnir að radd-
prófa 60 einstaklinga og þeirra á
meðal em nokkrir býsna góðir,“
sagði Gunnlaugur Helgason.
Verið er að ganga frá ráðningu
útvarpsstjóra að Hljóðvarpi hf. en
nafn hans verður ekki gefið upp að
svo stöddu. Samkvæmt heimildum
DV er þar um að ræða þekktan at-
hafnamann í Reykjavík.
-EIR
Gunnlaugur Helgason og Þorgeir Astvaldsson í hljóðstofu nýju útvarps-
stöðvarinnar sem óðum er að taka á sig mynd. DV-mynd KAE
Akureyri:
Grilíað í
sumarhita
Ján G. Hauksaan, DV, Akureyrt
Ekta sumarveður, glampandi
sólskin og 15 stiga hiti, var á Ákur-
eyri seinni partinn i gær. Bæjarbú-
ar gripu þetta óvænta forskot á
sumarið fegins hendi og tóku
nokkrir út sumargrillið og grilluðu
kvöldmatinn. Þá mátti sjá böm á
stuttbuxum og miðbærinn fylltist
af fólki.
Það er í dag sem veturinn svo
kveður. Hann mun vera sá hlýj-
asti frá 1972. Meðalhiti á Akureyri
í vetur var 0,3 gráður.
Sex þúsund
í Hlíðarfjalli
Jón G. Hauksson, DV, Akuxeyri:
Um sex þúsund manns vom á
skíðum í Hlíðarfjalli um páskana.
Flestir vom á páskadag, eða yfir
tvö þúsund manns. Að sögn ívars
Sigmundssonar, framkvæmda-
stjóra Skíðastaða í Hlíðarfjalli, var
færi mjög gott og aðsóknin með
því besta í langan tíma. Lítið var
um biðraðir í fjallinu enda hefur
afkastagetan þar tvöfaldast eftir
að nýja skíðalyftan var sett þar
upp síðastliðið haust.
upphæðum sem kæmu fram á skipta-
nótum til sjómanna.
Óskar sagði hins vegar erfitt að
sanna þessar fúllyrðingar því þegar
menn væm beðnir um að staðfesta
skriflega það verð sem þeir greiða
guggnuðu þeir og vildu ekki hafa af-
skipti af málum.
Þá sagði Óskar jafnframt dæmi þess
að ef sjómenn sjálfir kvörtuðu væri
þeim hótað atvinnumissi.
Greiðslur þær, sem forystumenn sjó-
manna kvarta nú undan, munu vera
hliðargreiðslur, oft í formi vöruskipta.
Nefhd hafa verið dæmi, svo sem samn-
ingar um lágmarksverð í peningum,
að viðbættum ýmsum rekstrarvörum
til útgerðar. í lögum um skipti til sjó-
manna er þó skýrt tekið fram að til
skipta skuli koma hlutfall af heildar-
verðmæti afla.
-hv
Rafíðnaðarmenn hjá RARIK:
Verkfall á miðnætti
Verkfall þriggja félaga innan rafiðn-
aðarsambandsins hófst á miðnætti
eftir stuttan og árangurslausan fund
hjá ríkissáttasemjara. Þetta eru starfs-
menn RARIK; línumenn, rafvirkjar og
rafiðnaðarmenn á Suðurlandi.
Nýr fundur hefur verið boðaður á
fóstudág. í dag eru bankamenn á fundi
hjá ríkissáttasemjara, en þeir hafa afl-
að sér verkfallsheimildar, fararstjórar
sem hafa verið í verkfalli undanfamar
vikur og múrarar sem einnig eru í
verkfalli.
Leiðsögumenn hófu í gær hertar
verkfallsaðgerðir þar sem þeir líta á
afspilun ferðalýsinga af snældum í
langferðabílum verkfallsbrot og er
ágreiningur á milli þeirra og viðsemj-
enda þeirra um þetta atriði.
Þá má nefna að Starfsmannafélag
Reykjavíkur hefur ákveðið nýja at-
kvæðagreiðslu á meðal félagsmanna
um samninginn við Reykjavíkurborg
og fer hún fram á mánudag og þriðju-
dag næstkomandi.
-ój
Símamenn sömdu í gær:
23 til 24% launahækkun
Samningar tókust á hádegi í gær
með símamönnum og ríkinu og að
sögn Ragnhildar Guðmundsdóttur,
formanns Félags símamanna, er samn-
ingurinn á svipuðum nótum og aðrir
samningar sem ríkisstarfsmenn hafa
gert og er þar kveðið á um launahækk-
un á bilinu 23 til 24% á tveggja ára
tímabili.
Þá gefur hækkun launatöflu hækk-
un um 13% og í samningnum eru
uppsagnarákvæði ef kaupmáttar-
breytingar á árinu 1988 fara niður fyrir
ákveðið mark og er þetta ákvæði í
samræmi við samninga annarra ríkis-
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii'
Yfir Qögur hundruð krakkar, 12 ára
og yngri, munu taka þátt í Andrésar
andar-leikunum sem verða settir á
starfsmanna. Hvað varðar hækkun á
launatöflum sagði Ragnhildur að hún
væri meiri í lægstu launaflokkunum
en hinum hærri.
„Ég er ánægð eftir atvikum," sagði
Ragnhildur Guðmundsdóttir í gær,
„og það var reynt til hins ýtrasta að
ná ákveðnum málum fram en það
tókst ekki að þessu sinni.“
Búist er við að allsherjaratkvæða-
greiðsla um samninginn fari fram í
næstu viku en hún tekur viku til tiu
daga. í Félagi símamanna eru hartnær
þúsund manns.
-ój
Akureyri í kvöld. Krakkarnir koma
víðs vegar af landinu. Leikamir eru
eins konar landsmót 12 ára og yngri
á skíðum. Þeim lýkur á laugardaginn.
Davíð hringdi í lögreglustjóra?
„Ólíðandi
að svo var“
- segir formadur Lögreglufélags Reykjavíkur
Stjóm Lögreglufélags Reykjavík-
ur hefur ritað Böðvari Bragasyni
bréf þar sem er fyrirspum um að-
draganda þess að lögreglumenn vom
sendir í slökkvistöðina í Reykjavík
er slökkviliðsmenn ætluðu á fund í
stéttarfélagi sínu. Bréfið er tilkomið
vegna fregna um að það hafi verið
að undirlagi Davíðs Oddssonar borg-
arstjóra að lögreglumennirnir voru
sendir.
„Við erum fyrst og fremst að leita
skýringa á málinu með bréfi okkar
en það em ólíðandi afskipti af stjóm
embættisins að svo var að Davíð
Oddsson hringdi í Böðvar og bað um
þetta. Böðvar er fullfær um .
stjóma þessu embætti og við bem
fullt traust til hans,“ sagði Þorgrír
ur Guðmundsson, formaður Lögr
glufélags Reykjavíkur, í samtali v
DV um þetta mál.
Þorgrímur sagðist vart trúa því i
borgarstjóri hefði komið við söf
enda skildi hann ekki hvemig slíl
mætti vera, það væri óviðunandi i
slíkur utanaðkomandi aðili gæ
haft áhrif á stefnu og störf embætti
ins. Hins vegar væri ljóst að eitthv:
hefði farið úrskeiðis og það yrði í
kanna betur.
Andres önd a Akureyri