Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987.
9
UÚönd
Mengun ógnar
Norðursjónum
- segja umhverfisverndarsamtok grænfriðunga
Umhverfisvemdarsamtök græn-
íriðunga halda því fram að óbætan-
legt tjón vofi yfir Norðursjónum
vegna mengunar og saka Breta um
að gera ekki sömu fyrirbyggjandi
ráðstafanimar og önnur lönd sem
liggja að Norðursjónum.
Segja samtökin að sjávarlífi stafi
hætta af ýmsum athöfnum manna í
Norðursjó, eins og skipaumferð, olíu-
og gasvinnslu, fiskveiðum, tilraun-
um til þess að ná landssvæðum
undan sjó og áætlunum um hafs-
botnsgöng undir Ermarsund milli
Bretlands og Frakklands.
Halda grænfriðungar því fram að
fiskstofnar, selir, höfrungar og hnís-
ur færi fækkandi, eða sýktust, og þá
mest vegna súrefnisskorts í sjónum.
- Byggja þeir þessar fullyrðingar á
upplýsingum, sem ýmis Norðursjáv-
am'ki sitja uppi með frá sérfræðing-
um sínum og hafa ekki gert
opinberar ennþá.
Harðast veitast grænfriðungar að
þeim ósið að varpa eitruðum úr-
gangseíhum í sjóinn. Ennfremur að
þeim vana að brenna ýmis úrgangs-
efni í iðnaði og frá kjamorkuverum,
en með reyknum gufi eitrið upp í
andrúmsloftið og falli með úrkom-
unni í sjóinn eða berist með fallvötn-
um til sjávar,
Segja þeir að Bretar séu fastheldn-
astir á þann vana að veita skolpi til
sjávar og varpa úrgangsefnum í sjó-
inn á meðan önnur ríki sjái orðið
að slíkt sé ónauðsynlegt og aðrar
öruggar, heilbrigðar og sparsamar
aðferðir séu til.
Þjóðanáð PLO
þingar
Þjóðarráð Palestínuaraba kom sam-
an í Alsírborg í gær og er það í fyrsta
sinn i þrjú ár sem það er fullsetið. Á
ráðið er jafnan litið sem eins konar
útlegðarþing hinna landflótta Palest-
ínuaraba.
Strax við setningu þingsins í gær
gekkst Arafat inn á að falla frá sam-
komulaginu sem hann gerði 1985 við
Hussein Jórdarúukonung um sameig-
inlegar friðarumleitanir þeirra við
ísrael og hvatti nú í staðinn til áfram-
í Alsír
haldandi vopnaðrar baráttu gegn
ísraelsmönnum.
„Þetta kemur okkur ekki á óvart.
Það sem gerist núna á þessu þingi er
enn ein hörmungin fyrir Palestínu-
araba, sem koma til með að gjalda
þess og verða þeir einu, sem gjalda
þess,“ sagði Simon Peres, utanríkis-
ráðherra Israels, þegar fréttin barst
út. Hann og fleiri ráðamenn í ísrael
saka Arafat um að tefla hryðjuverka-
Yasser Arafat, leiðtogi þjóðfrelsishreyfingar Palestínuaraba (PLO), á tali við einn landa sinn, kristinn prest, sem er
meðal fulltrúa á þingi Palestínuþjóðarráðsins, en það kom saman i Alsír i gær. Þjóðarráðið eins konar útlegðarþing
Palestínuaraba. Vegna sundurlyndis innan PLO hefur þjóðarráðið ekki komið allt saman fullsetið í þrjú ár, fyrr en núna.
Símamynd Reuter
mönnum nú fastar fram gegn ísrael,
en árásum PLO-skæruliða frá Líhanon
hefur fjölgað að undanfömu. Hafa þær
orðið æ tíðari, sem nær hefur dregið
fundi þjóðarráðs PLO, og einkanlega
eftir að Sýrlendingum tókst að binda
enda á bardaga Shita-múslíma í Lfban-
on við Palestínuaraba.
Síðustu 11 daga hafa þrír ísraels-
menn verið drepnir á landamæimm
Israels og Líbanon og á vesturbakkan-
um í árásum sem sagðar em gerðar
til þess að stappa stálinu í þingfulltrúa
PLO á þjóðarráðsfundinum í Alsír.
BÚLGARIA
1987
Baðstrandaferðir
í gæðaflokki
Feröaskrifstola
KJARTANS
HELGASONAR
Gnodavog 44-104 Reyk/avik - Simi 91-68 62 55
Simnefni: Istravel - Telex: 2265 Istrav-ls
Orlofsferðir okkar til Búlgaríu í sumar eru með ódýr-
ustu ferðum sem völ er á. Við bjóðum farþegum þrjár
baðstrendur í norðausturhluta Búlgaríu. Baðstrendur
með því besta sem gerist í Evrópu en auk þess ómeng-
aðan sjó sem er Svartahafið. Aðstaða fyrir þá sem vilja
stunda heilsurækt hjá þekktum læknum og við fyrsta
flokks aðstöðu. Fjöldi skoðunarferða skipulagður um
nágrennið og sigling til Istanbul yfir háannatímann,
júlí/ágúst. Ódýrt land. Gjaldeyrisskipti á hótelum með
80% álagi. Verð sem hér segir.
Hótel Hálft fæði 7. júli 28. júlí 18. ágúst 8. sept. Leva á dag.
Dobrudja/Amb.dor Ein vika Tvær vikur Þrjár vikur 22.760,- 28.260,- 33.960,- 22.760,- 28.260,- 33.960,- 22.500.- 28.000.- 33.560.- 21.200,- 25.100,- 29.200.- 6 á dag á Dubrudja 10 á dag Amb.dor.
Grandhotel Varna Ein vika Tvær vikur Þrjár vikur 25.450,- 34.360. - 43.360, - 25.450,- 34.360, - 43.360. - 25.000.- 34.000.- 43.000.- 23.550. - 30.550. - 37.550. - engir leva- máltíðir fastbundnar.
Innifalið I verði er flug KEF—LUX—VAR fram og til baka, gisting á hótelum i 2ja manna
herbergjum með baöi, w.c./sturtu hálft fæði, leiðsögn, ath. ekki flugvallarskattur og annað
ótalið hér. Verð eru miðuð við gengi US$ 15. jan. 1987, og breytast viö breytingar hans gagn-
vart Isl. krónur eða búlgörsku leva og breytingu flugverða.
Barnaafslátturer: Börn undir2jaáraaldri greiöaeinungis 10% af flugverði en fáekki mat-
armiða. Börn áaldrinum 2ja—12árafá50% afslátt fráfullorðinsverði ásvokölluðu aukarúmi
en 25% afsláttur er veittur á normal rúm af gistingu en 50% I flugi, sem jafngildir um 40%
afslætti frá fullorðinsverði.
Einstaklingsherbergi eru kr. 250,- á dag hærri en miðaö við 2ja manna verð á hótelunum
Dobrudja og Ambassador en kr. 460.00 á dag dýrari en 2ja manna herbergi á Grandhotel
Varna.
Meðferðer US$ 8.00 ádag og er þágert ráð fyrirað innifalið I þvl verði sé læknisrannsókn
og 3tegundir meðferöarað hámarki. Greiðist þettaáhverju hóteli fyrirsig i erlendum gjald-
eyri. Hægt erað fáfullt fæði áhótelum og hækkar þáverðið við þaðendaverðaþáfleiri leva
á dag á hvern mann.
Tekið er ámóti pöntunum í skrifstofu okkar og þarf að staðfesta hverja
pöntun með kr. 3000.00.
Nýjustu fréttir:
Vegna mikillar eftirspurnar í ferð-
ir okkar höfum við bætt við
ferðum 26. maí og aukið sætum
við aðra brottfarardaga. Aðeins
er um fá sæti að ræða. Og verð-
ur ekki hægt að bæta við fleiri í
sumar. Þeir sem ekki hafa stað-
fest pantanir fyrir 1. maí eiga á
hættu að sætin verði seld öðrum.
Verð 26. maí sama og 8. sept.
Nýtt hótel á Albenaströndinni,
Hótel Bratislava.
Verð í 3 vikur með hálfu fæði
29.500 á mann í 2ja manna her-
bergjum, einnig örfáar svítur,
hentugar fyrir fjölskyldur.
Gleðilegt sumar.