Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987. 5 DV Fréttir Hófí reisir draumaíbúö í haust. DV-mynd GVA. Allir vilja komast í draumaíbúð Hófí Framleiðendur heimilistækja, hús- búnaðar, gluggatjalda og svefhsófa berjast nú hart um að koma vöru sinni að í draumaíbúð Hólmfríðar Karls- dóttur sem komið verður upp á sýningunni Veröldin ’87 í Laugardals- höll í haust. Reist verður sérstök íbúð á miðju sýningarsvæðinu þar sem Hólmfríður mun velja hvem hlut og staðsetja eft- ir eigin smekk. Ráðgert er að fegurðar- drottningin dvelji í íbúðinni á meðan á sýningunni stendur og veiti gestum upplýsingar um gæði og verð þeirra hluta sem þar em. -EIR Hagkaup byggir annað stórhýsi - líklega við Reykjanesbraut í Kópavogi Kringla, stórhýsið sem Hagkaup hf. er að ljúka við í hinum svokallaða nýja miðbæ Reykjavíkur, nægir fyrir- tækinu hvergi nærri. Stórhýsið er um 28.000 fermetrar að gólffleti og að stór- um hluta selt öðrum aðilum fyrir margvíslegan viðskiptarekstur. Hag- kaup undirbýr nú byggingu annars húss upp á 15-20.000 fermetra og lík- legast er að það verði reist við Reykjanesbraut í Kópavogi. „Þetta er gamla lóðin sem við ætl- uðum upphaflega að byggja á mark- aðshús,“ sagði Magnús Ólafsson, framkvæmdastjóri Hagkaups hf. „Bæjarráð Kópavogs hefur tekið vel í að athuga hvort við fáum hana á ný. En við lítum hugsanlega á aðra staði áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Ætlunin er að reisa þetta nýja stórhýsi í áfóngum á svo sem fimm árum. En þetta er allt á frumstigi." í nýja húsinu verða 8.000 fermetrar fyrir IKEA, sem er dótturfyrirtæki Hagkaups. Það er í leiguhúsnæði á þrem stöðum, samtals á 5.000 fermetr- um. Leigusamningar eru einungis til næstu þriggja ára og þarf að koma IKEA fyrir áður en þeir renna út. Að sögn Magnúsar þarf að minnsta kosti annað eins gólfrými fyrir aðalbirgða- stöð Hagkaups og IKEA er ætlað. Loks er ætlunin að hafa verslun í húsinu en óráðið er hvers konar versl- un það verður. Lóðin í Kópavogi, sem Hagkaups- menn huga nú að, er í Fífuhvamms- landi, við nýju Reykjanesbrautina sem tengir Reykjavík, Kópavog, Garðabæ, Hafnai-fjörð og Suðm-nes, allt frá Sundahöfh. Þetta er því kjörið at- hafnasvæði fyrir þá sem sinna öllu markaðssvæðinu. Talsvert er spurt um lóðir þarna um þessar mundir, bæði fyrir iðnrekstur, vörugeymslur og verslanir, og loks hafa olíufélögin rennt hýru auga til þess að fá þama aðstöðu. -HERB SYNING á Mettler rafvogum Föstudaginn 24. og laugardaginn 25. þ.m. frá kl. 10-19 verður sýning á METTLER vogum að Langagerði 7. Kynntar verða meðal annars nýju PM vogirnar með DeltaTrack og TE iðnaðarvogirnar sem eru á mjög hagstæðu verði. Komið og kynnist nýjustu hönnun í vogargerð. Kristinsson hf., umboðs- & heildverslun, Langagerði 7-108 Reykjavík - Sími 30486. ÞAÐ ER EKKI EINUNGIS A Islandi SEM JEEP, CHEROKEE OG WAGONEER ER STÖÐUTÁKN... „Þeir eru orðnir að stöðutákni á tímum þar sem stöðutákn eru það sem máli skiptir. Framafólk sækist eftir þeim. Kvikmyndastjörnur í Hollywood hringja úr þeim á með- 'an þær þjóta um hraðbrautir Suður- Kaliforníu. Kannanir sýna að þeir eru vinsælustu bifreiðarnar í Bandaríkjunum í dag. „Þeir munu alltaf seljast betur en hvaða bíll sem er frá útlöndum," segir einn sérfræðingur um málefni bílaiðnaðarins." Úr Newsweek. n Jeep EGILL VILHJÁLMSSON HF., S-SÍMo, ^ ■ ■■ ^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.