Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987. 11 Utlönd Þinghöllin fræga i Vestur-Berlín þar sem stærstu popptónleikar ársins verða haldnir í tilefni 750 ára afmælis borgarinnar. DV-mynd Ketilbjörn Popptónleikar ársins Ketilbjöm Tryggvason, DV, V-Berlin; Það leikur enginn vafi á því hvai- stærstu popptónleikar ársins verða haldnir þetta sumar í Evrópu. Staður- inn heitir Vestur-Berlín og tilefnið er 750 ára afmæli Berlínar. Á afrnælistónleikunum, sem haldnir verða dagana 6.-8. júní, koma fram hvorki meira né minna en David Bowie, Dave Stewart og Ann Lennox í Eurythmics. Sömuleiðis hljómsveitin Genesis. - Heyrst hefur að Paul Young muni einnig mæta á svæðið. Orðrómur er á kreiki um að stórstirnið Prince muni líka heilsa upp á afinælisbamið. Fyrir þessa tónleikahátíð er ætlunin að reisa mikið svið á „Torgi lýðræðis- ins“ við hina frægu þinghöll Þjóðverja fyrir framan Berlínarmúrinn, austast í V-Berlín. - Gert er ráð fyrir að ein- hver hundruð þúsunda áhorfenda muni flykkjast á tónleikahátíð þessa, alls staðar að úr heiminum, og er und- irbúningur þegar hafinn að því að skipuleggja móttöku slíks aragrúa. Ýmsir aðrir popp-/rokktónleikar með frægum hljómlistarmönnum verða héma í sumar fyrir utan þessa hátið. Nefna má Lionel Richie þann 19. apríl um páskana og Alison Moyet þann 20. apríl. Simjily Red verða 15. maí, Level 42 þá sömu daga og Tina Tui-ner kemui’ 2. júh'. Aðdáendur rokk/soul-tónlistar fá einnig sinn skanmit með mikilli hátið þar sem George Benson, Miles Davis, Chuck Berry og Mimphis Slim koma fram. Djassáhugamönnum verður bætt þetta upp með hljómsveitinni Modern Jazz Quartett. Á klassíska sviðinu verður einnig mikið um að vera og mikið mál að telja það hér upp. Þýska bráð- vantar konur! Ketilbjöm Tryggvasan, DV, V-Berlín; Á fundi stéttarsambands bænda í Bæjaralandi nú nýlega kom fram að þar væru um 800 bændur á aldrinum 30-50 ára sem ekki hefðu fundið sér lífsförunauta til þessa. Á móti þeim stæðu einungis 40 ókvæntar bænda- dætur á sama aldri og stafar mismun- urinn af þeirri staðreynd að mun fleiri heimasætur en bændasynir flýja sveit- ina og setjast heldur að í þéttbýli. Fjallað var á fundinum um það að framtíð bænda í Bæjaralandi væri ekki einungis ógnað af sífellt harðn- andi samkeppni á sviði landbúnaðar- framleiðslu heldur og af mikilli mannfækkun í stéttinni. Fækkunina vilja margir rekja til þeirrar stað- reyndar að stór hluti bænda i þessum hluta Þýskalands er ókvæntur og það leiðir til færri bamsfæðinga því að flestir í Bæjaralandi em kaþólskir. Til að bregðast við þessari válegu þróun var ákveðið á stéttarsambands- fundinum að koma á stofh sérstakri hjálparstofnun á þessu sviði. Þessi stofnun, sem ber nafnið „fjölskyldu- hjálp bænda“, hefur það hlutverk á hendi að gera ímynd þýska bóndans rómantískari meðal þýskra kvenna og almennt draga skýrar fram að bóndinn sé álitlegri mannkostur en þýskar kon- ur virðast halda í dag. - Ekki kom þó fram í fréttaskýringum hvaða aðferð- um stofnunin hyggst beita til þess að skila þessu verki. 100 þúsund eyðmtilvik 102 ríki af 131 ríki hafa tilkynnt um alnæmitilfelli og em það alls um 46 þúsund tilfelli sem opinberlega hafa verið tilkynnt til WHO (Alþjóða heil- brigðisstofhunarinnar) en sérfræðing- ar hennar telja að nær sanni séu alnæmistilfellin orðin um 100 þúsund. (Þar af um 34 þúsund í Bandaríkjun- um.) Þykir hugsanlegt að um 10 milljónir manna í heiminum hafi komist í snert- ingu við eyðniveimna og gæti sá fjöldi . komist upp í 50 til 100 milljónir innan fimm ára. Þyngst segir mönnum hugur um þró- unina í Afríku og einkanlega í Mið-Afríku þar sem 8% allra nýfæddra bama em með alnæmi. Um 125 eyðnitilfelli hafa verið til- kynnt í Asíu en nær 4870 í Evrópu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.