Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987. Fréttix Gróðrarstöð í Mosfellssveit: Selur tré til Noregs „Það var eiginlega fyrir tilviljun að okkur tókst að selja þessar trjáp- löntur til Noregs. 1 fyrra var hér staddur norskur maður sem sá þess- ar plöntur, varð hrifinn af þeim og hefur pantað 500 stykki sem prufu- sendingu," sagði Jóhann Jónsson, eigandi gróðrarstöðvarinnar Dals- garðs í Mosfellssveit, í samtali við DV en hann hefur selt 500 stykki af svokölluðum Strandavíði til norsks aðila í Stavanger. Jóhann sagði að þessi víðitegund væri ein af fáum villtum íslenskum víðitegundum sem ræktaðar væru hér heima en hún væri harðgerð og falleg. Sínar fyrstu plöntur af þessari tegund fékk Jóhann í Miðhúsum í Reykhólasveit fyrir einum 10 árum og hefur síðan ræktað upp nokkum stofn. Hvort framhald verður á þessum viðskiptum gat Jóhann ekkert sagt um, það yrði bara að koma í ljós. Annars hefur Dalsgarður ekki verið þekktur áður fyrir trjárækt. Aðal- framleiðslan er rósir og framleiðir stöðin um 250.000 slíkar á hverju ári. -FRI Jóhann hugar að Strandavíðinum. Ljósm. Ævar Guðmundsson Ólafsvík Fjárhagsáastlun lögð fram og samþykkt til síðari umræðu Sigurján Egilsson, DV, Ólafevflc Á bæjarstjómarfundi í Ólafevík var fjárhagsáætlun næstu þriggja ára samþykkt til siðari umræðu. Á yfir- standandi ári eru tekjur bæjarsjóðs áætlaðar rúmar 70 milljónir króna. Útsvör vega þar þyngst, eða rétt um 40 milljónir. Mest er áætlað að fari til fræðslumála, eða tæpar 10 millj. Til almannatrygginga og félagshjálpar er áætlað að fari 9,7 millj. króna. Yfir- stjóm bæjarins mun eiga að kosta 6,6 millj., fjármagnskostnaður er áætlað- ur 5,8 millj. og til heilbrigðismála eiga að fara 5,3 milljónir króna. Rekstrarafgangur bæjarsjóðs er áætlaður 8,5 milljónir en til fram- kvæmda er áætlað að verja alls 18,3 milljónum. Mest mun fara í félags- heimilið eða 6,8 millj. í umhverfismál fara 3 milljónir og er það langhæsta upphæð sem varið heftir verið til um- hverfismála í Ólafsvík. Til byggingar verkamannabústaða er áætlað að verja 1,6 milljónum og sama upphæð fer í endurbyggingu pakkhúss. Ein milljón er síðan áætluð við kostnað vegna afmælis Ólafsvíkur. / HjálparsveK ■ ■ m J* ■ wjjcii gaui leiksýningu lón G. Hauksscm, DV, Akureyii Hjálpm-sveit skáta á Akureyri bjarg- aði sýningu á söngleiknum Kabarett hjá Leikfélagi Akureyrar síðastliðið miðvikudagskvöld. Það gerði hun með því að ná í Skúla Gautason, einn aðalleikara sýningarinnar, þar sem hann var veðurtepptur í Skaga- firði. Skúli hafði skroppið suður til Reykjavíkur til að ná í bílinn sinn. Á Holtavörðuheiðinni varð hann veðurtepptur og hafðist hann við í bílnmn á heiðinni aðfaranótt mið- vikudags. Um morguninn komst hann til Sauðárkróks þaðan sem hann ætíaði að fljúga til Akureyrar. En þá haföi flugi verið aflýst vegna veðurs. Góð ráð voru nú dýr og var brugð- ið á það að fá hjálparsveitina til þess að ná í Skúla. Það tókst og mætti Skúli til leiks klukkustundu áður en sýning hófst. Talið frá vinstri: Hilmar Már Aðalsteinsson, Jóhann Viggó Jónsson, Einar Þór Strand, Karl Ingólfsson, Örvar Aðalsteinsson, Freysteinn Sigmundsson, Þórður ívarsson og Arngrimur Blöndal. Á myndina vantar hjónin Kjartan Blöndal og Erlu Þorsteinsdóttur. DV-mynd Sveinn Þormóðsson Kaupþing einnig á Akureyri - fyrir fmgöngu atvinnumálanefndar bæjari ns FVrsti verðbréfamarkaðurinn hef- vinnumálanefnd Akureyrar átti vík sem á fjögurra ára sögu að baki. ur tekið sér bólfestu á Akureyri. Það frumkvæði að stofhun nýja fyrirtæk- Auk verðbréfamiðlunar hvers konar er Kaupþing Norðurlands hf. Aðal- isins. mun Kaupþing Norðurlands annast eigandi þess er Kaupþing hf. í margvíslega ráðgjöf og þjónustu og Reykjavík með 55% eignaraðild. Búið er að kaupa húsnæði við reka fasteignasölu. Þjónustan er Akureyrarbær á 15%, KEA 15% og Ráðhústorg 5 og starfsemin er þegar jafnt fyrir einstaklinga og fyrirtæki. sjö sparisjóðir á svæðinu frá Siglu- hafin þar. Hlutverkið verður það -HERB firði til Ákureyrar eiga 15%. At- sama og hjá Kaupþingi hf. í Reykja- 100 tíma í hrakningum Skátamir, sem týndust á Langjökli helgina fyrir páska, komust heilu og höldnu til byggða ef frá em skilin smávægileg meiðsl eins manns er marðist illa er snjósleði hans fór fram af snjódyngju. Þegar skátarnir komu í bæinn höfðu þeir verið í hrakningum á Langjökli í rúmar 100 klukkustundir í vonsku- veðri þar sem menn sáu ekki handa sinna skil. Á myndinni sjást þeir ný- komnir af jöklinum, kátir og hressir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.