Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987. Neytendur Uppskriftaþeysa DV: Innbókuð ýsa Hráefnið sem þarf í innbökuðu ýsuna hennar Þóru. Þóra B. Jóns úr Hafnarfirðinum með verðlaunaýsuna sína. DV-myndir KAE Kryddinu blandað saman við hveitið. Heilbrígt útsæði frum- skilyrði góðrar uppskeru „Útsæðið verður að vera heilbrigt. Það er algjört frumskilyrði til þess að fá góða uppskeru. Og til þess að vera alveg viss er langbest að nota ekki annað en svokallað stofnútsæði. Það er örugglega hreinn stofn og ósýktur. Að öðru leyti má setja niður hvað sem fólk vill,“ sagði Agnar Guðnason, að- almatsmaður garðávaxta, i samtali við DV. „Það eru aðallega þrír sjúkdómar sem hrjá íslenskar kartöflur, það eru kuldaskemmdir, kransasveppur og svo hin illræmda hringrót. Hringrótar hef- ur orðið vart í Arnes- og Rangárvalla- sýslum og því er fólki ráðlagt að kaupa ekki útsæði þaðan nema úr Hruna- mannahreppi. Hann er algjörlega undanskilinn," sagði Agnar. Ef fólk á kartöflur sem eru örugglega ósýktar og famar að spíra sagði Agnar að best væri að bijóta þær spírur af og láta þær spíra aftur í birtu og hæfi- legum hita, t.d. í bílskúr. Það má ekki vera of heitt en heldur ekki fara niður íyrir frostmark. Þá er einnig tími núna til þess að láta niður í mjólkurfemur og koma kartöfiunum til í bílskúrnum. Best er að þær kartöflur séu famar að spíra en það er þó ekki nauðsyn- legt. Grösunum er svo plantað út þegar hætta á frosti er liðin hjá. Þann- ig geta menn fengið nýjar kartöflur í júnímánuði. Agnar sagði að uppskeran í fyrra hefði verið með eindæmum góð en engar líkur em til þess að hún seljist öll. Nokkrir framleiðendur em þegar búnir að selja sína uppskem en ein- hveijir eiga enn eftir talsvert magn. „Það em ekki endilega þeir sem em með bestu kartöflumar sem búnir em að selja allt. Það em líka framleiðend- ur með mjög góðar kartöflur sem eiga mikið óselt,“ sagði Agnar. -A.Bj. Það fylgir því einhver sérstök fullnæging að taka upp eigin kartöflur. Allir í fjölskyldunni geta tekið þátt í þessari hollu iðju. Nú er tími til að huga aö útsæðinu og undirbúa uppskeruna. Þórey Guðmundsdóttir starfar við afgreiðslu á kartöfluútsæðinu. DV-mynd GVA Stofnútsæði frá Homafirði „Salan á útsæðinu er svona rétt að komast í gang,“ sagði Svanhildur Ámadóttir hjá Mata í samtali við DV rétt íyrir páskana. „Bæði er að fólk hefur haft nóg að gera við að hugsa um fermingamar og páskahátíðina og svo hefur veðrið auðvitað ekki verið alltof gott núna undanfarið. En strax eftir páskana hellir fólk sér í útsæðið á fullusagði Svanhildur. Hjá Mata var á boðstólum mjög fal- legt útsæði og vom tegundimar helga, gullaauga og premier. Allt stofnútsæði frá Homafirði á stærðarbilinu 30-45 mm. 25 kg poki kostar 1500 kr. og 10 kg 650 kr. Mata flutti í mjög gott húsnæði í vetur en fyrirtækið sinnir eingöngu ávaxta- og grænmetisinnflutningi og sölu á innlendu grænmeti þegar það er fyrir hendi. Öll aðstaða er til mikill- ar fyrirmyndar. Hægt er að aka kæligámum inn í húsið og er græn- metið og ávextimir fluttir í kæli- geymslur með ákveðnu hita- og rakastigi. -A.BJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.