Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987. Spurningin Ertu hlynnt deiliskipulaginu hvað varðar breytingar á gamla miðbænum? Ragnhildur Ragnarsdóttir af- greiðslustúlka: Mér finnst að það eigi að halda einhverju eftir óbreyttu en það er nauðsynlegt að breyta ein- hverjum húsum, t.d. þeim sem hefur verið haldið illa við. Susie Bachmann húsmóðir: Ég verð nú að viðurkenna að ég hef ekki mikið vit á þessum málum. En í fljótu bragði finnst mér að þessir gömlu hjallar, sem eru að grotna niður, mega missa sig. Ef húsin eru ekki mjög verðmæt finnst mér allt í lagi Ástríður Björk Steingrímsdóttir hús- móðir: Engan veginn, mér finnst bærinn missa allan sjarma eigi að fara að rífa þau niður og byggja ein- hver nýtískuleg glerhús í staðinn. Við hljótum að bera virðingu fyrir þessum húsum og gera þau upp í stað þess að rífa þau. Þorbjörg Sigurðardóttir: Eg vil halda miðbænum í sama horfi og er því andvíg þessu deiliskipulagi. Það er svo mikið við þessi gömlu hús, þau hafa sál og eiga eitthvað í manni. Mér finnst gömlu húsin tilheyra mið- bænum og vil því engu breyta. Valgerður Erlingsdóttir húsmóðir: Nei, engan veginn, mér finnst það megi ekki hreyfa við gamla mið- bænum, hann á að vera akkúrat eins og hann er í dag. Þetta er svo vina- legt eins og þetta er. Bergþóra Þorsteinsdóttir: Mér finnst að það eigi að halda gamla mið- bænum eins og hann er, alveg skilyrðislaust. Það á ekki að rífa gömlu húsin, það á frekar að hlúa betur að þessum húsum og halda þeim vel við. Lesendur Siðgæði íhaldsins Guðbjöm Jónsson, 2846-0880, skrifar: Það verður ekki ofsögum sagt af viðleitni róttæku íhaldsaflanna í Sjálfstæðisflokknum til þess að beija niður þjóðfélagslega velviljaða menn. Ég ætla ekki að eyða tíma í það hér að telja upp þær hreinsanir og hreinsunartilraunir sem þessi öfga- öfl hafa haft í frammi undir grímu sjálfstæðisins sem veitt hefur þeim það brautargengi sem þeir telja sig hafa í dag. Þessi öfl hafa vægðar- laust rutt þeim úr vegi sem ekki em þeim sammála ef þeir hafa ekki ver- ið með það mikið fylgi kjósenda að það hafi ekki verið talið óhætt. Mat þeirra á því hvar höggva skuli næst í raðir sjálfstæðismanna byggist allt- af á því hvað flokkurinn tapi hugsanlega mörgum atkvæðum en ekki hvort maðurinn vinni vel fyrir þjóðfélagið. Munurinn á vinnubrögðum þess- ara manna og þeirra sem þeir fordæma mest, í Rússlandi og mörg- um einræðisríkjum, er fyrst og fremst í eftirleiknum. Nýjasta hreinsunartilraun þessara manna er aðforin að Albert Guð- mundssyni um þessar mundir. Það er óneitanlega fróðlegt að skoða þær framkvæmdir í samanburði við aðrar úrlausnir forystu Sjálfstæðisflokks- ins er upp hafa komið athugasemdir við vafasamt siðferði annarra ráð- herra flokksins. Trassaskapur tveggja viðskipta- ráðherra á hagsmunagæslu þjóð- félagsins á síðasta kjörtímabili koma til með að kosta skattborgara þessa lands vel á annan milljarð króna. Þessir ráðherrar eru báðir í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins. Það er mjög skýrt dæmi um það hvað sið- gæði formannsins í Sjálfstæðis- flokknum og forystusveitar hans nær vel til hagsmuna þjóðfélagsins hvemig tekið væri á afglöpum þess- ara manna. Það er svo kannski enn eitt atriði þessa máls, siðgæði formannsins sjálfs. Það efast enginn um heimild hans sem fjármálaráðherra til að fá í hendur upplýsingar frá rannsókn- um skattrannsóknastjóra. En hann skuldar þjóðinni afdráttarlaus svör við þvi hvar í stjómarskránni er heimild fyrir hann til þess að opin- bera rannsóknaþætti sem ekki em búnir að ganga í gegnum dómskerf- ið. Ef hann getur ekki vísað afdrátt- arlaust í ákvæði stjómarskrár í þessu sambandi þá veit hann hvað hann á að gera ef siðgæðið nær til annarra en Alberts Guðmundssonar. Kæri Þorsteinn! Það hefur ekki far- ið fram hjá nokkrum landsmanni viðleitni þín til að sýnast hinn sterki stjómandi í því hlutverki sem þú gegnir um þessar mundir í Sjálfstæð- isflokknum. En það verður alltaf langt bil á milli þess að sýnast og hins að vera hinn sterki stjómandi. Það er kannski vegna þess að ég er fyrrverandi sjómaður að ég geri mér í hugarlund flokk þinn sem skip sem er í fárviðri á hafi úti, áhöfnin er þingflokkur og framkvæmdastjóm flokks þíns. Aðstandendur em stuðningsmenn og velunnarar flokksins um allt land. Ef þú hefðir verið á hafi úti og vanmetið aðstæður jafhherfilega og þú gerðir þá ætti þjóðin engan Sjálf- stæðisflokk lengur. Eftir stæðu syrgjandi aðstandendur. Þér væri hollt að minnast þess að það fær enginn stjómandi í lofti eða á legi annað tækifæri sem gerir stór mistök á örlagastundu. Þú og þau öfl sem telja þig nægilega þroskaðan til þessa hlutverks sem þú gegnir nú ættu ævarandi að vera þakklát fyrir að þið vomð á þurm landi með þetta framhlaup ykkar. „Hvar í stjórnarskránni er heimild fyrir Þorstein til þess að opinbera rann- sóknarþætti sem ekki eru búnir að ganga í gegnum dómskerfið?“ Hækkun á bflprófsaldri? Kyn- lífs- könnun Baldur hringdi: Kannanir, kannanir og aftur kannanir, það er alveg ótrúlegt hvað hægt er að dunda sér við að gera kannanir um. Sbr. nýjustu og jafhframt fyrstu kynlífskönnunina æm ég 8á í DV en MR vann að henni. Ég á nú bágt með að trúa því að ungt fólk í dag byrji svona snemma að stunda kynlíf. Fólk á ekki að nálgast annað fólk sem hvert annað tæki sem hægt er að gamna sér við, það á að nálgast fólk sem persónur, viðkvæmar til- finningaverur með ákveðnu markmiði. 16-17 ára krakkar era svo mikil böm að þeir gera sér ekki grein fyrir því hverjar afleiðingar gerða þeirra geta orðið. Hvort sem slysið yrði bam eða eyðni! Mér finnst ekki nóg að hafa kyn- lífsfræðslu í skólanum og segja hvemig böm eiga að gera þaö. Það verður líka að huga að hinu and- lega sviði, að fólk eigi að bera virðingu hvað fyrir öðm og gera kynlífið fallegt í augum fólks, ekki bara sem hverja aðra afþreyingu. Haraldur örlygsson skrifar: Kæra lesendasíða, það er eitt sem maður hefur verið að lesa um í blöðun- um, nýju umferðarlögin. Einhvers staðar hef ég heyrt að í þeim felist hækkun á bílprófsaldri. En hvað með þá unglinga sem eiga að fá bílpróf seinna á árinu, eða áður en lögin taka Hörður Bjarnason hringdi: Ég er ekki áskrifandi að Stöð 2 en hef hugsað mér að gerast það á næst- unni því mér finnst hún með fjöl- breytta og skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskyldumeðlimina. Það sem ég horfi einna mest á em fréttimar og ýmsir umræðuþættir, sem em þá ór- uglaðir, og ég er mjög ánægður með þá. Svo ég fari nú að koma mér að efn- inu þá vonast ég til að Stöð 2 endur- sýni þáttinn Návígi er Ingvi Hrafri Jónsson, Hannes H. Gissurarson, Halldór Halldórson og Þorbjöm Broddason vom mættir til leiks. gildi 1988, þeim hlýtur að vera leyfi- legt að taka prófið áður en lögin skella á, annað er ekki sanngjamt! Ég veit að það er fullt af örvænting- arfullum unglingum sem langar ekki að bíða í 1 - 2 ár í viðbót við þau 17 sem þeir em búnir að bíða. Þessi þáttur svalaði forvitni margra þar sem Ingvi Hrafn hefur verið um- deildur fyrir „píslarvættisþátt" sinn með Albert Guðmundssyni og það í hlutlausum ríkisfjölmiðli. Það hefur mikið verið rætt um þenn- an þátt (Návígi) og það er varla rætt um annað á vinnustöðum en það em margir sem vom svo óheppnir af missa af honum. Ég veit að það er fjöldi fólks er vill fá að sjá hann aftur og ætla ég að koma fjöldaáskoran þeirra á framfæri. Gerið það nú fyrir mig og alla aðra að endursýna hann, þið fáið margar áskriftir fyrir vikið. „Þorsteinn sjálfum sér verstur“ Hafalda Breiðfjörð hringdi: Mér finnst það alveg til hábon innar skammar hvernig Þorsteinn Pálsson og hans flokksfélagar hafa komið fram gagnvart Albert. Það er eins og allir aðrir en Albert séu með allt á hreinu, hann er sá eini sem er tekinn í rannsókn. Það er búið að gera úlfalda úr mýflugu, mannleg em mistökin og Albert er mannlegur rétt eins og við. Mér finnst það leitt að það skuli vera búið að bletta persónu Al- berts þar sem hann hefur reynst fólkinu í landinu svo vel. Reyndar finnst mér mjög ótrú- legt að Þorsteinn fai hreinan meirihluta svo ég hef engar áhyggjur af því. Mér finnst Þor- steinn ekki bara búinn að sverta fyrrverandi flokksfélaga sinn held- ur er hann sjálfum sér verstur og hefur eyðilagt mest fyrir sjálfum sér. Ég vil óska Albert alls hins besta þótt ég hafi ekki kosið hans flokk heldur sé á vinstri h'nu. Eg vonast til að Stöð endursýni þáttinn Návígi er Ingvi Hrafn Jónsson, Hannes H. Gissurarson, Halldór Halldórson og Þorbjörn Broddason voru mættir til leiks. Stöð 2: Endursýnið einn Návígisþáttinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.