Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Side 46
50 Andlát MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987. Símon Teitsson lést 13. apríl sl. Hann var fæddur 22. mars árið 1904 á Grímarsstöðum í Andakílshreppi. Foreldrar hans voru hjónin Ragn- heiður Daníelsdóttir og Teitur Símonarson. Símon starfaði lengst af hjá Finnboga Guðlaugssyni í Borgarnesi. Eftirlifandi eiginkona hans er Unnur Bergsveinsdóttir. Þeim hjónum varð fimm barna auð- ið. Útför Símonar verður gerð frá Borgarneskirkju í dag kl. 14. Sveinbjörn Egilsson útvarps- virkjameistari lést 10. apríl sl. Hann fæddist í Reykjavík hinn 28. nóvemb- er 1907, sonur hjónanna Egils Sveinssonar og Sigríðar Jónsdóttur. Sveinbjörn lærði til loftskeytamanns og síðar útvarpsvirkjun og hlaut meistararéttindi í þeirri iðn. Hann varð stöðvarstjóri Vatnsendastöðv- arinnar 1928 og tók þátt í uppsetn- ingu hennar. Hann gegndi því starfi til 1943 en frá því ári rak hann sitt eigið radíóverkstæði á Óðinsgötu 2. Eftirlifandi eiginkona hans er Rann- veig Helgadóttir. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið, eru þrjú á lífi. Útför Sveinbjörns verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15. Guðrún Oddsdóttir lést á Reykja- lundi 15. apríl. Jenný Stefánsdóttir, Austurbrún 4, lést í Landspítalanum þann 20. apríl sl. Valgerður Hallgrímsdóttir Kröy- er, Norðurbrún 1, Reykjavík, lést aðfaranótt 21. apríl í Landspítalan- um. - skvettufrír - auðlesanlegar stórar tölur - allar siglingastillingar Fridrik A. Jónsson h.f. Skipholti 7, Reykjavik, Simar 14135 — 14340. Sigríður Ingimundardóttir lést 14. apríl sl. Hún fæddist í Bergen í Hafn- arfirði 24. júní 1926. Foreldrar hennar voru Marta Eiríksdóttir og Ingimundur Hjörleifsson sem. lifir dóttur sína. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Finnur Guðmundsson og varð þeim hjónum þriggja barna auð- ið. Utför Sigríðar verður gerð frá Bessastaðakirkju í dag kl. 13.30. Sigríður Pálsdóttir frá Stærri-Bæ andaðist í Elliheimilinu Grund 15. þ.m. Hún verður jarðsungin frá Foss- vogskapellu í dag, miðvikudaginn 22. apríl, kl. 10.30. Kristín Theodora V. Nielsen frá Seyðisfirði lést á Hrafnistu. Reykja- vík. 19. apríl. Útförin verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju föstudaginn 24. apríl kl. 11. Stefán Pjetursson, fvrrum þjóð- skjalavörður, andaðist á elliheimil- inu Grund á páskadag. Böðvar Lárus Hauksson, Kamba- seli 14. lést á páskadag. Dýri Baldvinsson rennismiður, Brúnastekk 9, Reykjavík, lést á heimili sínu að morgni 17. apríl. Guðmundur A. Finnbogason frá Hvoli. Innri-Njarðvík, lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði að morgni páska- dags. Jóhann Friðleifsson frá Siglufirði andaðist að morgni páskadags á Hrafnistu, Hafnarfirði. Vigberg Ágúst Einarsson, Melbæ 12, lést að morgni hins 16. apríl. Út- för hans fer fram frá Neskirkju föstudaginn 24. apríl kl. 15. Lárentsíus Dagóbertsson frá Hell- issandi, Baldursgötu 12, lést í Borgarspítalanum að morgni 18. apríl. Þórarinn E. Bjarnason frá Reyðar- firði, Álfaskeiði 64d, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá HafnarQarð- arkirkju 22. apríl kl. 13.30. Jakob Loftsson, áður til heimilis á Hringbraut 76, lést á Hrafnistu, Reykjavík, laugardaginn 18. apríl. Sigurjóna Jóhannesdóttir frá Laxamýri, til heimilis að Háteigsvegi 23, verður jarðsungin frá Dómkirkj- unni í Reykjavík föstudaginn 24. apríl kl. 15. Minningarathöfn um Sigríði Jóns- dótfur, Kleppsvegi 28, fer fram frá Áskirkju föstudaginn 24. apríl kl. 13.30. Útför verður gerð frá Víkur- kirkju laugardaginn 25. apríl kl. 14. Tilkyimingar Migren læknað með nálarstungum Migrensamtökin standa í kvöld fyrir fræðslufundi um möguleika þess að lækna migren með nálarstungum. Fyrirlesari verður Magnús Ólason læknir. Magnús hefur fengist við þessar lækningar á und- anförnum árum og mun hann skýra frá árangri af starfi sínu og batahorfum fyrir migrensjúklinga. Fundurinn hefst kl. 20 á Hótel Esju og er öllum opinn. Málstofa heimspekideildar Dagskrá Málstofu heimspekideildar breyt- ist frá því sem áður var auglýst að því leyti að í dag, miðvikudag, kl. 16.15 mun Sigurður Hróarsson cand. mag. flytja er- indi er hann nefnir:Stalín bjargar bókmenntum. Erindið fjallar einkum um bókmenntaþróun á áratugnum 1920-40 og verður fiutt í stofu 301 í Árnagarði. Allir velkomnir. Sýning í Gallerí Borg Á morgun, sumardaginn fyrsta, kl. 17 opn- ar Sigurður Örn Brynjólfsson sýningu í Gallerí Borg við Austurvöll. Á sýningunni verða 40 myndir unnar í olíu og þurr- pastel í septembermánuði sl. í Ungverja- landi. Þetta er sjötta einkasýning Sigurðar en hann hefur tekið þátt í íjölda samsýn- inga, bæði hérlendis og erlendis. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 10-18 nema mánudaga frá kl. 12-18. Laugardaga og sunnudaga er opið frá kl. 14-18. Sýning- unni lýkur 5. maí. I gærkvöldi Hansína Jensdóttir gullsmiður: Fleiri þastti um Irf og list Ég horfi alltaf á fréttimar í Ríkis- sjónvarpinu. I gærkvöldi horfði ég á matreiðsluþáttinn hjá Ara Garðari á Stöð 2. Það em góðir þættir. Þáttur- inn Húsið okkar er ágætis fjöl- skyldumynd. Umræðuþátt stjóm- málamannanna hafði ég ekki áhuga á að sjá. Það var í rauninni fátt sem ég hafði áhuga fyrir í sjónvarpinu í gærkvöldi, á hvorri stöðinni sem var. Að vísu gildir það ekki um öll kvöld. Mér finnst of lítið um myndlistar- þætti, aftur á móti er ótrúlega mikið um íþróttir og þess vegna fyndist mér mjög eðlilegt að listrænt efhi fengi líka sitt pláss. Það er líka ann- að sem mig langar að koma á framfæri og það er tímasetningin sem stenst aldrei. Á tímabili gat ég ekki horft á sjónvarp og bað ég þá fólk um að taka upp fyrir mig og þá brást það ekki að tímasetningin var önnur en dagskráin sagði til um. Ég hlusta lítið á útvarp. í gær hlustaði ég þó aðeins á Bylgjuna og það sem fer mest í taugamar á mér em þessar símhringingar í tíma og ótíma. Ég hlusta meira á Ríkisút- varpið og finnst orðið þægilegt að hlusta á það núna. Að vísu mættu vera fleiri leikrit. Grínþættir í sjónvarpinu em alveg ágætir, bíómyndir á Stöð 2 em oft góðar en ég vildi sjá meira af fræðsluþáttum um sögulega atburði og líf og störf listamanna og ekki síst myndir um það sem er að gerast í listinni erlendis. Hansina Jensdóttir. Sumarvaka Kvennalistans I Reykjaneskjördæmi Kvennalistinn í Reykjaneskjördæmi er með sumarvöku á sumardaginn fyrsta í kosningahúsnæðinu að Reykjavíkurvegi 68 í Hafnarfirði milli kl. 14 og 18. Boöskap- ur. blöðrur og brúnar kökur. Herdís Hallvarðsdóttir og Gísli Helgason skemmta. Allir velkomnir. Kaffisala kvenfélags á Hótei KEA Kaffisala verður á Hótel KEA kl. 14.30 á sumardaginn fyrsta. Það er kvenfélagið Hlíf sem stendur að kaffisölunni og er öll- um ágóða varið til tækjakaupa fyrir barnadeild sjúkrahússins á Akureyri. Kvenfélagið Hlíf hefur starfað fyrir barna- deildina í mörg ár en áður rak félagið barnaheimilið Pálmholt á Akureyri áður en það afhenti bænum reksturinn. Að lok- um má þess geta að kvenfélagið Hlíf verður með merkjasölu dagana.8. og 9. maí. Sumardagurinn fyrsti í Kópavogi Sumardagurinn fyrsti verður venju sam- kvæmt haldinn hátíðlegur í Kópavogi. Skátafélagið Kópar og Hornaflokkur Kópavogs leiða skrúðgöngu frá MK að íþróttahúsinu Digranesi og hefst hún kl. 13.30. Kl. 14 hefst svo fjölskylduskemmtun í Digranesi. Þar koma fram m.a. Júlíus Brjánsson og Jörundur og tveir alræmdir trúðar. Sýndir verða fimleikar, dans og karate og farið í létta leiki. Hinn sígildi barnakór Kársness og skólahljómsveit Kópavogs munu einnig láta í sér heyra. Urturnar, kvennadeild skátafélagsins, standa fyrir kaffisölu í vestursal Digraness meðan á hátíðinni stendur. Að skemmtun- inni lokinni heldur Hestamannafélagið Gustur sýningu fyrir utan og býður yngri bæjarbúum á bak. Sú nýbreytni verður að þessu sinni að Skátafélagið Kópar hyggst kveikja varðeld ef veður leyfir að hætti skáta á Rútstúni og hefst sú uppákoma kl. 20 með tilheyrandi söng og spili. Hjálpræðisherinn Sumarfagnaður á sumardaginn fyrsta kl. 20.30. Happdrætti og góðar veitingar. Allir velkomnir. Kaffisala kvenfélagsins Seltjarnar Á sumardaginn fyrsta verður hin árlega kaffisala kvenfélagsins Seltjarnar í félags- heimilinu á Seltjarnarnesi. Húsið verður opnað kl. 14.30. Sama dag verður sölusýn- ing á handavinnu aldraðra á Melabraut 5-7. Kvenfélag Neskirkju verður með kaffisölu og basar frá kl. 14 á kosningadaginn í safnaðarheimili kirkj- unnar. Sölustöðvun á sælgæti frá Nidar Bergene Niðurstöður rannsóknarstofu Hollustu- verndar ríkisins varðandi rannsókn á matarsýkingarsýklum í norskum súkku- laðivörum frá fyrirtækinu Nidar Bergene, Þrándheimi, liggja nú fyrir. Með hliðsjón af þeim niðurstöðum og að höfðu samráði við heilbrigðiseftirlitið í landinu og inn- flytjanda vörunnar, vekur Hollustuvernd ríkisins hér með athygli hlutaðeigandi á því að sölustöðvun er enn í gildi á öllum sælgætisvörum frá ofangreindu fyrirtæki í Þrándheimi. Sölustöðvunin nær þó ekki til sérstaklega auðkennds páskasælgætis, sem hér eru á markaði frá Osló verk- smiðju fyrirtækisins, þar sem ekki hafa fundist sýklar í því. Breiðfirðingafélagið heldur sinn árlega vorfagnað í Risinu, Hveríísgötu 105, síðasta vetrardag (mið- vikud. 22. apríl) kl. 22. TM-miðstöðin Almennur kynningarfyrirlestur um TM- tæknina verður haldinn í Garðastræti 17 fimmtudaginn 23. apríl kl. 20.30. Fjallað verður um áhrif TM-tækninnar á andlegt og líkamlegt heilbrigði, mannleg sam- skipti o.fl. Síminn í TM-miðstöðinni er 16662. Allir með útrás Á morgun verður sumargleðisdagskrá á útvarpsstöð framhaldsskólanna, Útrás. Þar verður sungið, dansað og trallað, tek- in viðtöl, getraunir og spurningakeppnir verða og tekið verður við símtölum frá fólki. Sumardagskráin verður á fm 88,6 og verður frá kl. 10-17 á morgun. Sýningu Ragnheiðar að Ijúka í Norræna húsinu Síðasti sýningardagur á grafíkverkum Ragnheiðar Jónsdóttur í Norræna húsinu verður á morgun, sumardaginn fyrsta, og er sýningin opin kl. 14-22. Skrúðganga og skemmtun á sumardaginn fyrsta Gengið verður frá IR vellinum í Breið- holti (neðan við Alaska) kl. 14 að Breið- holtsskóla. Skátafélagið Urðarkettir stjórna göngunni og söng en Skólalúðra- sveit Árbæjar og Breiðholts spilar. Að göngu lokinni stjórna skátar leikjum og söng og lúðrasveitin verður með kaffisölu og tónleika í Breiðholtsskóla. Höggmyndasamkeppni listahátíðar Listahátíð í Reykjavík verður haldin í tí- unda skipti í júní 1988. í tilefni af því er efnt til samkeppni um varanlegt listaverk, höggmynd eða skúlptúr, sem nota mætti bæði sem verðlaunagrip og sem einkenni hátíðarinnar á auglýsingaspjöldum, efnis- skrám og öðru prentuðu efni. Listahátíð áskilur sér rétt til að fjölfalda verðlauna- verkið í 3-5 eintökum og hugsanlega stækka það til staðsetningar utan dyra eða innanhúss. Öllum islenskum listamönnum er heimil þátttaka í samkeppni þessari. Veitt verða ein verðlaun að fjárhæð 250.000 krónur. Nathan & Olsen hf., hefur af miklu örlæti ákveðið að leggja fram verðlaunféð. Dómnefndin áskilur sér heimild til innkaupa á tillögum með rétti til fjölföldunar og sölu og má verja í- því skyni allt að 150.000 krónum. Gögn varð- andi samkeppnina verða afhent hjá trúnaðarmanni dómnefndar, Ólafi Jens- syni, Byggingaþjónustunni, Hallveigar- stíg 1, 101 Reykjavík, gegn 500 króna skilatryggingu. Hann svarar einnig skrif- legum fyrirspurnum um keppnina og tekur við líkönum af listaverkum og öðrum til- lögugögnum. Skilafrestur rennur út 6. ágúst 1987, kl. 18 að íslenskum tíma. I dómnefnd eiga sæti: Jón Þórarinsson, formaður framkvæmdastjórnar Listahá- tíðar, Bera Nordal listfræðingur og Jón Gunnar Árnason myndlistarmaður. Sýn- ing á öllum framkomnum tillögum verður haldin í tengslum við Kvikmyndahátíð Listahátíðar, 19.-27. september 1987. Úr- slit keppninnar verða tilkynnt við opnun sýningarinnar. Dómkirkjunni Dr. Orthulf Prunner orgelleikari og Símon H. Ivarsson gítarleikari halda tónleika í Dómkirkjunni 23. apríl nk. á sumardaginn fyrsta kl. 20.30. Ilr. Orthulf Prunner og Símon H. Ivarsson kynntust í Vínarborg, þar sem þeir stunduðu báðir tónlistarnám, en leið þeirra lá síðan aftur saman þegar þeir höfðu lokið námi og hófu störf á Is- landi, Símon hjá Tónskóla Sigursveins D. Háteigskirkju og kennari við nýja tónlist- arskólann. Einnig starfar hann sem einleikari og hefur spilað í flestum löndum Evrópu. Það mun vera fátítt að heyra leik- ið á þessi tvö hljóðfæri í samleik, þrátt fyrir að þau eru ein elstu hljóðfæri tónlist- arsögunnar. Á efnisskránni eru verk eftir J.S. Bach, Antonio Vivaldi og Joaquin Rodrigo. Símon og Orthulf hafa sjálfir útsett verkin fyrir gítar og orgel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.