Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Blaðsíða 48
52 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987. Sviðsljós Ólyginn Rod Stewart kom fram eins og versti þrjótur þegar hann fór á næturklúbb í Los Angeles nýlega. Hann abb- aðist upp á allar sæmilega útlítandi kvensur á staðnum, dansaði og duflaði fram á rauða nótt. Sambýliskonan, Kelly, var með í för en kappinn lét ekki svo lítið að yrða á hana einu orði enda er sú ágæta kona komin á sjöunda mánuð með- göngu. Ævintýrið endaði með j gráti og gnístran tanna hvað Kelly viðkom en fyrrum sambýl- iskonur Rods glottu við tönn þegar þeim þárust fréttirnar. Þar er súpersöngvarinn með fast sæti í óvinaflokknum og segja þær ágætu konur að karl muni ekki þroskast svo nokkru nemi á þessari óg næstu öld - að minnsta kosti. Diana Ross er komin af prinsessunni á þauninni í beinan kvenlegg. Sú staðreynd vafðist eitthvað fyrir ráðamönnum á norsku fjalla- hóteli þarsem hún hafði viðdvöl með þeim afleiðingum að stjarnan varð gersamlega stjórn- laus af þræði. Rúmdýnan hennar hafði verið tekin og vatt- eruð í kantana eftir öllum kúnstarinnar reglum svo kerla mætti hvílast en það fullnægði ekki kröfum hennar til slíkra hæginda. Diönu kom ekki dúr á auga alla nóttina vegna þessa og lét hún hóteleigendur og viðstadda gesti hafa það óþveg- ið um leið og hún stormaði af vettvangi í bítið næsta morgun. Madonna og Don Johnson héldu símalín- unum rauðglóandi milli Miami og New York eigi fyrir alllöngu og stóð glóðin yfir í fjóra heila klukkutíma. Kyntáknin tvö ræddu möguleika á einhvers konar samstarfi og er sigtað á vorið hvað það snertir. Hvort þau láta frá sér fara nýja kvik- mynd eða hljómplötu með samsöng á báðum hliðum hefur ekki verið ákveðið ennþá en tóneyru beggja vegna Atlants- ála eru nú þegar komin í tvöfalt brot af ótta við að plötuútgáfan verði ofarlega á verkefnalistan- um. Herraog&úReaganí breyttimhlutverkiun Um daginn var mikið um það rætt í Bandaríkjunum að Nancy Reagan hefði mikil afskipti af þeim málum sem eiginmaðurinn, Ronald Reagan for- seti, hefði á sinni könnu. Hún var sögð standa á bak við miður góða hluti og það þótti greinilegt að henni þætti óhemju gaman að vera í sviðsljósinu og grípa í valdataumana. Hvað sem til er í þessum orðrómi þá voru hugmyndaríkir gárungar ekki lengi að sjá spaugsömu hlið málanna eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Það er ekki að öllu leyti tekið út með sældinni að vera forsetahjón I Banda- rikjunum. Á innfeldu myndinni sést hvernig hjónin líta út í sjónvarpsþáttunum Spéspegill. Frænkumfjarri Dóttir Margrétar Bretaprinsessu og ljósmyndarans Snowdown stóð í slæmu máli um daginn þegar hún var gripin glóðvolg á Limelight Club í Lundúnum með bjórpyttlu í greip- inni. Lafðin stóð þar og saup af stút eins hver annar óuppdreginn dóni og sama gerði vinurinn, Simon Dak- es. Ekki er nokkur vafi á því að sitthvað hefði hvinið í móðursystur hennar - Elísabetu drottningu - hefði hún verið nærri en svo var nú einmitt ekki og því gerði Sarah það sem henni hentaði fjarri öllum siða- vöndum frænkum. En nærstaddur ljósmyndari sett strik í reikninginn - nú má Sarah klóra hressilega í bakkann því hætt er við að myndin góða berist drottningunni í hendur og þá má bjórbúsarinn Sarah biðja fyrir sér í sibylju. Og dugir varla til! Sarah Armstrong Jones með Simon Dakes og pyttlurnar góðu. 13 V Ljúflingarnir í Bitlavinafélaginu sungu eins og englar: Jón Ólafsson, Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hjörleifsson. Óþekktur aðdáandi í vinstra horninu. Vinir bítlavina Það var kátt á hjalla eitt kvöldið í síðustu viku þegar ljósmyndari DV átti leið fram hjá Gauki á Stöng. Bítlavinafélagið söng af kappi fyrir hóp vina, vandamanna, aðdáenda og aðra gesti við mikinn fögnuð viðstaddra. I salnum sátu allmargir ekki síður sviðsvanir en bítlarnir velspilandi því á staðnum var núverandi og fyrrverandi fjölmiðlafólk af útvarpinu, rásar- menn þó í meirihluta, Þeir sem hafa atvinnu af því að skemmta öðrum eru greinilega færir um að skemmta sér sjálfir þegar því er að skipta. I salnum var fyrrverandi og núverandi útvarpsfólk, flestir komu þó af rásinni. Þarna má meðal annars þekkja fremst Herdísi Hallvarðsdóttur, Höllu Pálsdóttur, Guðríði Haraldsdóttur, Margréti Blöndal og Georg Magnússon. Aftar sjást Valgeir Hallvarðsson, Eiler M. Lund, Gísli Helga- son, Inger Anna Aikman, Guðrún Alda Harðardóttir og Sigurður Þór Salvarsson. DV-myndir Ragnar S Louise, Richard og Michel kalla sig Herreys og kapparnir unnu Eurovisi- on árið ’84. Myndin er tekin af þeim í Evrópu fyrir nokkrum dögum. DV-mynd KAE Gamlir júróvisjón- gaurar Ekki verða allir heimsfrægir sem verða júróvisjónvinningshafar og Herreysgaurarnir frá ’84 hafa ekki ennþá sigrað heiminn. Þeir eru þó talsvert vinsælir á Norðurlöndum og komu fyrir nokkrum dögum hingað til lands til skemmtunar gestum veitingahússins Evrópu. Agæt upphitun fyrir næsta gleðibankarús þjóðarinnar - sjónir vonglaðra beinast að Belgíu innan tíðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.