Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1987, Page 49
MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987. 53 Sviðsljós Sjónir beinast nú að New York en þar standa tískusýningarnar sem hæst þessa dagana. Louis Dell’Olio hannar fyrir Anne Klein og hefur vakið mikla athygli fyrir hressilegan svip á vönduðum fatnaðinum. En ýmislegt minnir þama á franska hátísku - til að mynda em sýningarstúlkurnar fengnar frá Frans og þær sem sjást á þessum Reuter- myndum eru báðar með fastan sess á sýningum meistarans - Yves Saint Laurent. Ýmsar blikur eru nú á lofti í tískuheiminum og hart deilt um ágæti fatahönnunar hvers lands fyrir sig. Þjóðverjar eiga sína Jill Sanders, Boss og svo mætti lengi telja en verða að sitja undir því að ná- grannarnir, Fransmenn, segi þá einungis hafa annars flokks vöru á boðstólum. Sá þýskættaði Karl Lager- feld, sem teiknar línuna hjá Coco Channel í Parísar- borg, heldur því fram að landar sínir hafi lítið til málanna að leggja og segi það lítið um gæði fram- leiðslunnar þótt Þýskaland hafi flutt út fatnað fyrir mestar fjárhæðir allra Evrópulandanna. Bandaríkjamenn mega svo sitja undir svipuðum dómum en leggja síður en svo árar í bát. Þeir eiga sinn Ralph Lauren, Calvin Klein og íleiri - og halda tískusýningar árlega með aldeilis ágætum árangri. Tískustríðið er ekki á enda runnið og höfuðandstæð- ingarnir þrír eiga einungis eitt sameiginlegt - andúðina á Japönum sem eru lítið fyrir metnað gagn- vart eigin hönnun og láta sér broshýrir nægja að fjölfalda sköpunarverk annarra. Svart velúrsilkipils og silkiblússa frá Louis Dell’Olio á sýningunni í New York. ÉHI Allar útfærslur af köflóttu geta gengið - frakki og jakki smella saman í misstóru mynstrinu. Blússan er fílabeinslituð og á jakkanum eru gervidemantshnappar. Hér sjást þeir félagar, Glass og Zukofsky, skeggræða um konsertinn. Zukofeky og Glass Paul Zukofsky er Islendingum að í flutningi á nýrri fiðlutónlist. Fyrir góðu kunnur, bæði fyrir framlag sitt viku frumflutti Zukofsky fiðlukon- til Sinfóníuhljómsveitar æskunnar sert eftir tónskáldið Philip Glass sem og flutning nýrrar tónlistar á Is- erumtalaðastatónskáldBandaríkja- landi. En hann hefur líka á sér hið manna um þessar mundir. besta orð í heimalandi sínu þar sem -ai hann hefur meðal annars sérhæft sig Smokkar í sviðsljósinu Eflaust hefði doktor Con- dom - hirðlæknir Karls konungs - orðið ærið lang- leitur gæti hann séð hversu mjög uppfinningu hans er hampað þessa dagana. Smokkurinn var upphaflega hannaður ’á áðurnefndan konung til þess að fækka fæð- ingum konungborinna lausa- leikskrútta hreint úti um allar jarðir en nú er apparatið bjartasta vonin í baráttunni við eyðniveiruna. Á meðfylgj- andi mynd sést sú vinsæla japanska poppsöngkona - Mie Nakagawa - flagga sú- perverju í miðborg Tókýó. Tilgangurinn var að vekja athygli á nauðsynlegum að- gerðum í baráttunni við eyðnina og var kvensan þarna á svæðinu með hópi annarra baráttuglaðra áhangenda smokksins í því fjarlæga Jap- an. Mie Nakagawa með björtustu vonina í sú- perstærð. - Simamynd Reuter Ölyginn Melanie Griffith átti ekki góðan dag þegar hún fór út að borða með móður sinni Tippi Hedren. Melanie er fyrrum eiginkona Don Johnson og varð held- ur langleit þegar aðdáendur streymdu að þeim mæðgum -til þessaðfáeiginhandará- ritun frá Tippi. Ekki bætti það úr skák að þjónninn neitaði að taka kreditkort Melanie gilt og var það vegna þess að það er skráð á nafnið Don Johnson. Hundfúll heimur! Bo Derek , er að springa af vonsku yfir því að vídeómarkaðurinn vestra er að fyllast af eintök- um myndar sem hún lék í fyrir fjórtán árum. Þar er bomban svona.heldur með klæðlausara móti og þykir þeim Derekhjónum miður að myndbandsjúklingar geti starað úr sér augun yfir ber- um búk Bo - og eru málaferli í athugun. Þetta kemur mönnum allmjög á óvart því herra Derek er þekktur fyrir allt annað en dúðun á sinni föngulegu eiginkonu í kvik- myndunum sem hann framleiðir sjálfur á síðustu árum. En það er víst ekki sama hver blautbolurinn er - eða þannig - og því er ætlunin að fá álit dóms- valdsins á ósvífnum vinnu- brögðum myndbandaleig- anna. Larry Hagman var leynilegur elskhugi Joan Collins þegar súperkvensan var einungis fimmtán ára gömul og vann við leikhúsin í Lundúnaborg. Karl segist vel hafa getað endað í fang- elsi fyrir athæfið en það skiptir engu meginmáli, Jo- an hafi fyllilega verið þess virði og meira en það. Ekki hefur heyrst orð frá Joan um málið og segja spekingarnir hana leita örvæntingarfullt í minniskompunni eftir ein- hverjum teiknum frá meint- um turtildúfutíma þeirra Larrys. En það er lítil von til þess að Joan takist að grafa upp staðreyndir málsins - þetta er jú fyrir svo óskap- lega mörgum elskhugum síðan að það þarf sagnfræð- inga til aðstoðar ef einhver árangur á að nást á næs- tunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.