Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1987, Qupperneq 40
• 25 • 25
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórrs - Augilýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1987.
Svavar Gestsson:
Fara lúnir
af stað
„Þetta er undarleg stjómarmynd-
'"■^un. Stjómin er orðin þreytt þegar
hún byrjar, eins og 5000 metra
hlaupari sem allur kraftur er úr eftir
fyrstu 100 metrana,“ sagði Svavar
Gestsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, í gær þegar hann var
spurður hvemig honum litist á hina
nýju stjóm sem tekur við völdum á
morgun.
„Þetta er gamla stjómin komin.
Efnahagsráðstafanimar eru mjög
veikar. Verðbólgan verður 18-20%,
viðskiptahallinn verður 2,5 milljað-
ar, hallinn á ríkissjóði sömuleiðis og
ráðstafanir í efnhagsmálum og at-
vinnumálum em mjög veikar.
Stjómin fer lúin af stað enda vill
Sjálfstæðisflokkurinn ekki viður-
kenna slæman viðskilnað Þorsteins
Pálssonar sem fjármálaráðherra.
Hvað snýr að Alþýðubandalaginu
verða kaflaskipti því Alþýðuflokkur-
inn setur punkt aftan við ákveðinn
kafla í sinni sögu og hverfur úr
myndinni sem hugsanlegt forystu-
og sameiningarafl íslenskra jafnað-
armanna.
Þá hefur Alþýðuflokkurinn sett
það fram sem aðalatriði að koma
Framsókn úr ríkisstjóm en niður-
staðan er að Framsókn er inni áfram.
Nú, það em nokkrir jákvæðir
punktar í málefnasamningnum enda
erfitt annað á 24 síðum. Hins vegar
er það framkvæmdin sem ræður. Við
óskum þeim góðs gengis en þeir fara
ósköp lúnir af stað, það er fátt annað
hægt að segja.
-ES
AHAtilíslands
Norska hljómsveitin AHA, sem
verið hefur geysivinsæl víða um
heim, mun heimsækja ísland þann
16. júlí og halda tvenna tónleika,
þann 17. og 18. júlí, í Laugardals-
höll og mun miðaverð verða um 1500
krónur.
Bobby Harrison, sem stendur fyrir
komu þeirra, sagði að stórtónleikar
væm í uppsiglingu með gífurlegri
ljósadýrð og öllu tilheyrandi en
AHA kemur beint frá Japan.
-JFJ
ÓVENJU LÁGT VERÐ
0PIÐ TIL KL. 16.00
Á LAUGARDÖGUM
LOKI
I góðsemi vegur nú hver
annan - í Valhöll!
■ I ■ ■ ■ mm ■ ■
Matthias, Friðn
líklegustu ráðherraefni Sjálfstæðisflokksins
Þingflokkur Sjálfetæðisflokksins
kemur saman kl 15 í dag og tekur
fyrir tillögu Þoreteins Pálssonar,
formanns og verðandi forsætisráð-
herra, um það hverjir skuli verða
ráðherrar flokksins í nýju rflris-
8tjóminni.
Víst er að mikil átök verða um val
á ráðherraefhunum því a.m.k. þrír
þingmenn slást um hvem þeirra
þriggja ráðherrastóla sem Sjálfetæð-
isflokkurinn fær í ríkisstjóminni
utan forsætisráðuneytisins.
Það nýmæh hefur nú verið tekið
upp að foimaður flokksins, Þor-
steinn Pálsson, gerir tillögu til
þingflokksins um það hveijir skuli
veljast ráðherrar.
Það em aðallega þrír hópar í
flokknum sem hafe beitt miklum
þrýstingi undanfama daga. Það em
landshyggðarþingmenn, sem viija að
einn ráðherranna verði úr sínum
hópi, sjálfstæðiskonur sem vilja að
einn réðherranna verði kona og
stuðningsmenn Matthíasar Á.
Mathiesen sem vilja að hann veljist
til áframhaldandi ráðherradóms.
Nú lítur út fyrir að barátta Matthí-
asar fyrir ráðherrastóli muni bera
árangur. Hann er efeti maður í stóm
kjördæmi og þykir hafe nokkuð
styrka stöðu innan flokksins. Þá er
fullvíst að Þoreteinn mun leggja til
að Friðrik Sophusson veljist einnig
til ráðherraembættis.
Um þriðja ráðherraembættið er
helst óvissa. Þó er tahð að Þorateinn
muni leggja til að Birgir ísleifúr
Gunnarsson hljóti það embætti þrátt
fyrir mikinn þrýsting á fbrmanninn
að velja landsbyggðarþingmann eða
konu.
Ef tillaga Þorsteins verður um þá
Matthías, Friðrik og Birgi er lfldeg-
ast að hann leggi til að Matthías
verði samgönguráðherra. Ekki var
ljóst í morgun hvom þeirra Birgis
og Friðriks Þorsteinn myndi gera
tillögu um sem menntamálaráðherra
og hvom sem iðnaðarráðherra.
Þá er aðeins eftir að sjá hvort þing-
flokkurinn samþykkir tillögumar.
-ES
Það var mikið fjör og yfirlið nokkur þegar sænska rokksveitin Europe skemmti landanum með tónlist sinni i Laug-
ardalshöll í gærkvöldi. Eitthvað var um að skvetta þyrfti vatni á hrifnustu aðdáendur hljómsveitarinnar til að koma
þeim til meðvitundar. Alls voru i Höllinni um 5.500 manns. Þó að einhverjir hafi blotnað við vatnsausturinn virðist
sem það hafi mest verið útvortis. Lögreglan í Reykjavík er afar ánægð hvernig til tókst og þurfti aðeins að færa
einn ungling á lögreglustöð vegna innvortis vætu. En það er ekki nema 0.018% gestanna. DV-mynd KAE
Meintir kynferðisglæpir í Svefneyjum:
Maðurinn í gæsluvarðhald
í gær var maðurinn, sem rak
ásamt konu sinni sumardvalarheim-
ili fyrir böm í Svefheyjum á Breiða-
firöi, úrskurðaður í gæsluvarðhald
vegna meintra kynferðisbrota gagn-
vart bömum. Gæsluvarðhaldsúr-
skurðurinn gildir allt til 22. júlí. Að
sögn rannsóknarlögreglunnar er
málið búið að vera nokkum tíma í
rannsókn en vegna beiðni bama-
vemdamefiidar fer fram framhalds-
rannsókn é málinu nú og hefhr sú
rannsókn leitt til gæsluvarðhalds
yfir manninum.
-sme
Veðrið á morgun
Hann hangir
þurr -
að mestu
Á morgun verður hæg norðvest-
anátt á landinu, skúrir við norð-
austurströndina en þurrt og víða
léttskýjað í öðrum landshlutum.
Hiti verður tólf til sextán stig
sunnanlands en átta til tólf stig
fyrir norðan. Það má sem sagt
búast við að hann hangi þurr nema
kannski við norðausturströndina.
Albert Guðmundsson:
Líst ekki vei á
„Ég get ekki sagt að mér lítist vel á
þessar ráðstafanir. Þær skattatillögur
sem þama eru á döfinni eru allt gaml-
ir kunningjar mínir. Þær vom bomar
undir mig þegar ég var fjármálaráð-
herra en ég hafhaði þeim öllum,“ sagði
Albert Guðmundsson, leiðtogi Borg-
araflokksins, í gær þegar hann var
spurður hvemig honum litist á hina
nýju stjóm og málefnasamning henn-
ar.
„Annars er ekki nokkur skapaður
hlutur í stefhuyfirlýsingunni sem ég
hef ekki séð í stefnuyfirlýsingum fyrri
stjóma. Það hefur ekki tekið 10 vikur
að semja þetta plagg. Ágreiningurinn
hefur legið annars staðar.
Ef ég á að dæma um framhaldið af
aðdragandanum að samsetningu þess-
arar ríkisstjómar þá er best að segja
sem minnst. Fæst orð bera minnsta
ábyrgð," sagði Albert.
-ES
Kristín Einarsdóttir:
Ekki mjög
bjartsýn
á störf
stjórnarinnar
„Það má segja að stjómarsáttmálinn
sé allmikið mál um tiltölulega lítið.
Þó er margt gott í honum, svo sem í
köflunum um fjölskyldumát, jafnrétt-
ismál og heilbrigðismál, en ég sakna
þess að ekki komi fram hvemig eigi
að framkvæma stefnumörkun í þessum
málaflokkum og sama gildir um um-
hverfismál,“ sagði Kristín Einarsdótt-
ir, þingkona Kvennalista, í samtali við
DV þegar hún var spurð álits á stjóm-
arsáttmála komandi ríkisstjórnar.
„I kafiann um fyrstu aðgerðir í efna-
hagsmálum finnst mér vanta áherslu
á það að þeir sem meira mega sín í
þjóðfélaginu taki ríkari þátt í því að
draga úr halla ríkissjóðs, í stað þess
til dæmis að lagður er skattur á mat-
væli,“ sagði Kristín.
„í skólamálum er ég hrædd við
áframhaldandi forystu Sjálfstæðis-
flokksins og mér finnst gæta nokkurs
miskilnings i þeim kafla um hlutverk
skóla. Þá líst mér illa á að ef gera á
breytingar á námslánakerfinu sem
auka misrétti til náms i landinu. Þann-
ig að segja má að ég sé ekki mjög
bjartsýn á störf þessarar komandi rík-
isstjómar enda þótt margt gott sé í
stjómarsáttmálanum,“ sagöi Kristín
Einarsdóttir. -ój