Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1987, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1987, Page 3
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987. 3 dv Fréttir Þröstur Þórhallsson Skákmótið í Gausdal: Þröstur náði áfanga að al- þjóðlegum titli Margeir Pétursson stórmeistari sigr- aði örugglega á alþjóðlega skákmót- inu í Gausdal í Noregi en mótinu lauk í fyrradag. Margeir hlaut 8,5 vinninga af 9 mögulegum og vann skák sína í gær gegn Emst, „rúllaði honum upp í þrjá- tíu eða fjörtíu leikjum" eins og Þröstur Þórhallsson komst að orði. Þröstur varð í 8. sæti á mótinu með 5,5 vinn- inga og náði jafhframt sínum fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli á mótinu en hann sigraði andstæðing sinn í gær. Það sama gerði Hannes Hlífar Stefánsson sem varð í kringum 15. sæti með 5 vinninga. Talið er að Margeir hækki um 30 til 35 ELO skákstig vegna árangurs sins á þessu skákmóti en hann er nú með 2.495 stig. Margeir hélt heimleiðis í gær en þeir Þröstur og Hannes Hlífar halda til London þar sem þeir taka þátt í skákmóti sem haldið er á vegum Lloyds bankans en það mót hefst næst- komandi laugardag. Blönduósflugslysið: Rannsókn stendur enn „Okkur hefur gengið vel að rann- saka þau mál sem við höfum haft, þrátt fyrir sumarfrí. Varðandi Blönduóssly- sið þá er svona mánuður í að við getum afgreitt það frá okkur,“ sagði Karl Eiríksson, formaður flugslysanefndar. Karl sagði að niðurstöður rann- sókna flugslysanefndar yrði skilað til samgönguráðuneytisins og þar væri venjan sú að gera skýrslumar opin- berar. Þangað til væri ekkert um slysið að segja, enda rannsókn ekki lokið. Varðandi rannsóknina á óhappinu er henti landgræðsluvélina TF-TUN sagði Karl að hún væri langt komin, alveg á lokasprettinn. -JFJ Keflavik: Tveir bflar óökufærir -eftir harðan árekstur Mjög harður árekstur varð á mótum Hafhargötu og Faxabrautar í Keflavík í fyrrakvöld. Þar skullu saman tveir bílar. Skemmdust þeir báðir illa og voru óökufærir á eftir en engin slys urðu á mönnum. -sme Míc' Milljónir á hverjum laugardegi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.