Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1987, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987. 13 DV Grafinn fiskur Lax, silungur og karfi eru fiskar sem vel hentar að grafa. Við birtum hér leiðbeiningar um það hvemig á að grafa og geta lesendur spreytt sig á því um helgina. Þvoið fiskinn vel og hreinsið burt beingarða. Setjið ferskt dill í fat og fiskinn ofan á. Fyrir hvert kíló þarf: 2 msk. salt 1 msk. sykur 1 tsk. malaðan hvítan pipar 2 msk. sérrí eða koníak Blandið saman salti og sykri og nuddið'blöndunni vel inn í flökin. Leggið flak með roðið niður á fatið og stráið pipar og afganginum af salt- inu og sykurblöndunni yfir. Látið leka yfir sém' eða koníak og hyljið með dilli. Leggið annað flak ofan á með roðið upp. Stráið dilli yfir og leggið undir farg. Snúið flökunum við af og til á hverj- um degi til að saltið jafnist vel. Eftir 3-4 sólarhringa er fiskurinn tilbúinn. Skafið burt dill og krydd áður en fiskurinn er sneyddur niður til neyslu. Hægt er að frysta grafinn fisk, ýmist heilan eða í stykkjum. Ef þið frystið ekki geymið hann þá í kæliskáp. Grafsósa 2 msk. franskt sinnep hvítur pipar 2 msk. edik 1 msk. sykur 7-8 msk. matarolía fínskorið dill Hrærið saman sinnepi, salti, pipar, ediki, og sykri. Bætið við olíu smám saman og hrærið vel í á meðan. Bætið við ediki og sykri eftir smekk og að lokum, mikið dill. -PLP Neytendur Flestum finnst grafinn fiskur góður Helgarinarkaöur VERSL. VINBERIÐ Laugavegi 43 sími 12475 Opið kl. 9.00-13.00 laugardaga íslensku bláberin, g kmkiber KOMIN KJÖTMIÐSTOÐIN Laugalæk 2, sími 686511, OPIÐ kl. 7.00-16.00 laugardaga Síðustu dagar UTS0LUNNAR OPIÐ TIL KL.16.00 LAUGARDAG Smiðjuvegi 2B Sími 79866 Skóiavörðustíg 19 Hringbraut 119 Sími 623266 Sími 611102

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.