Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Page 19
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987. Marguerite Duras. stefnan hafði ráðið öllu í heimspeki- legri hugsun. Leikskáld, á borð við Beckett, Ionesco, Pinter og nú síðast Stoppard, hafa markvisst unnið að því að sanna yfirburði aðstæðna yfir tungumálinu sem flutningsmiðli fyr- ir hugsanir. Le Shaga er gott innlegg í þessa stefnu því ein persónan mæl- ir ekki skiljanlegt orð en hefur þó skemmtilegasta talandann. Marguerite Duras Marguerite Duras hefur komið víða við. Hún skrifar leikrit, skáld- sögur og kvikmyndahandrit en er að líkindum einna þekktust fyrir hand- rit sitt að kvikmyndinni Hiroshima, mon amour, sem var leikstýrt af Ala- in Resnais 1959. í fyrra kom út íslensk þýðing á skáldsögu hennar, Elskhuganum, sem hefur selst í geysimiklum upp- lögum viöa um heim hin síðari ár en fór hljótt hér á landi af einhverjum ástæðum. Hún er fædd í Indókína, nánar til- tekið í Gia-dihn, árið 1914. Hún lagði stund á nám í stærð- og stjórnmála- fræði en tók síðan til við skriftir. AUmargar skáldsögur hennar hafa verið kvikmyndaðar, þar á meðal Moderato Cantabile, sem Peter Brook leikstýrði 1960, og Hiroshima, mon amour, eins og fyrr segir, 1959. Nýjasta skáldsaga Duras er Emily L. sem tileinkuð er skáldkonunni Emily Dickinson. Hún er nýkomin út. Le Shaga Shaga er ekki meðal þekktustu verka Duras. Leikritið er þó skrambi gott, samtölin eru meinfyndin og bjóða upp á mikla möguleika til túlk- unar. Líkt og í öðrum verkum Duras gætir áhrifa frá hennar eigin ævi, enda hefur hún margsinnis lýst því yfir að í verkum sínum sé hún fyrst og fremst að skrifa um eigin ævi. B, þeirri sem talar Shaga, er í upphafi verksins lýst sem kambódískri í út- liti. Shaga gæti því verið tungumál frá þeim slóðum, enda Duras fædd þar og uppalin. Það væri þó fullmik- il einfóldun að ætla að B sé einhvers konar sjálfsmynd af Duras; til þess er leikritið alltof altækt; það er ekki bara Duras sem á erfitt með að tjá hugsanir sínar í orðum. Verk Duras hafa ávallt einkennst af tilhneigingunni til að komast að kjama mannlegra samskipta. Shaga er þar engin undantekning; persón- urnar ná saman þrátt fyrir misjafnt tungutak, enda er hugsunin áþekk. Um leikhópinn La Compagnie Nicollet var stofnað- ur 1973 í kringum verkið Fatrasies eftir Michel Nicollet, aðalleikara hópsins. Siðan þá hefur hópurinn sett á svið fimm leikrit, flest eftir Nicollet sjálfan. 1985 var þó sett upp leikritið Draugalestin (Le train des fantomes) eftir David Guerdon og var það sýnt á leiklistarhátíðinni í Avignon í fyrra. Nýjasta uppfærsla hópsins er svo Shaga, leikritið sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 8. nóvember kl. 20.30. -PLP 19 Aukin Þjónusta Bakarí hefur opnað nýtt útibú í Furugrund 3, Kópavogi Við munum kappkosta að bjóða ávallt nýtt og ferskt brauð, kökur og annað góðgæti. • Semfyrrbjóðum við okkar vinsæla ÍSúríshominu. • Allt gos og öl er afgreittbeintúr kæliogsvohöf- um við alltaf klakabeintúr klakavélinni. • Vömmvaiið er ótrúlegt og hill- umar svigna undan sælgæt- inu. • Aukavaktiralla laugardagavegna • Síðast en ekki síst VIDEOLEIGAN hefuraðgeyma yfir 2000 myndir. Við leggjum ríka áherslu á að fá nýút- gefnar myndir strax. Sölutum - ísbúð - videoleiga - bakarí Fumgrund 3 - KÖpavogi - Sími 418 17. Opið alla daga kl. 9-2 3.30. T.d. vorum við að fá frá:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.