Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987. 25 Veröld vísindanna Nýtt kapphlaup hjá rafemdafyrirtækjum: Ljósmyndavélar án filmu almenningseign eftir fá ár NASA hefur mikla leit að geimverum Leitin aö lífi á öörum hnöttum er annaö og meira en leikaraskapur. í þaö minnsta er stjóm NASA, banda- rísku geimferðamiöstöðvarinnar, á ööm máli því hún hefur beðið Qár- veitingavaldiö þar vestra um 4 milljarða króna til að hraöa leitinni. Enn hefur ekkert fundist sem bendir til aö líf sé á öðrum hnöttum hvað þá aö þar hafist viö viti bornar verur. En nú er vaxandi áhugi á málinu innan NASA og ef fjárveiting fæst er allt til reiðu þar á bæ til að taka þátt í leitinni og það meö nýjum aðferðum. Sumir halda því reyndar fram að ekki þurti að leita langt því framandi verur hafi þegar heimsótt jörðina enda sé nú boðið upp á sálfræðiþjón- ustu í New York fyrir þá sem hafa haft náin kynni af geimverum. Hjá NASA er því þó trúað að fyrstu kynnin, ef að þeim kemur, verði um fjarskipti af einhverju tagi. Þegar er búið að senda boð út í geiminn frá jörðinni um gáfur þeirra sem hér búa. Árið 1957 var þætti Eds Sullivan með Elvis Presley sem aðalgesti sjón- varpað út í geiminn. Þessi þáttur er nú kominn í meira en 30 ljósára fjar- lægð en ekkert hefur heyrst af viðbrögðum. Ekki stendur til að senda út fleiri boð af þessu tagi heldur á eingöngu að hlusta eftir boðum. Helsti vandinn við það er að ekki er vitað á hvaða tíðni verur úti í geimnum senda boð sín. í leit NASA á að hlusta á tíðni sem spannar 9 milljarða riða. Áður hefur ekki verið hægt að spanna svo vítt svið. Þeir sem gagnrýnt hafa áætlunina segja þó þetta hvergi nærri nógu vítt svið. Menn eru þó sammála um að þetta megi reyna og það er nýtt að NASA ráðgeri að taka þátt í leit af þessu tagi af fullum hug. Hingað til hafa menn þar ekki getað nefnt leit að lífi á öðrum hnöttum kinnroðalaust því það hefur aðeins verið talið viðfangs- efni furðufugla. Nú hafa vísinda- mennirnir slegist í hópinn. Við hverju má búast frá verum úti geimnum? Vasasjónvarp Framleiðendur sjónvarpstækja eru stöðugt að færa sig upp á skaftiö. Nú er vasasjónvarp komið á markaðinn. Það er með þriggja tommu litaskjá og hægt er að brjóta það saman. Án rafhlaða vegur það aðeins um í meira en öld hafa aðferðir við töku ljósmynda ekki breyst í aðalat- riðum. Fyrst voru notaðar ljósnæm- ar plötur og síðar komu filmurnar, sem allir þekkja, á markaðinn. Hug- myndin er í aðalatriðum sú sama þótt útfærslan hafi þróast í tímans rás. Síðustu mánuði hafa nokkur fyrir- tæki bæði í Bandaríkjunum og Japan kynnt nýjar aðferðir við töku kyrr- mynda. Þær eiga það sameiginlegt að engar filmur eru notaðar því um er að ræða rafeindabúnað sem í aðal- atriðum er eins og sá sem notaður er við töku myndbanda. Ljósinu, sem berst inn um linsu vélarinnar, er breytt í rafboð og myndirnar geymd- ar þannig. Myndirnar eru þó ekki teknar upp á bönd heldur diska sem eru sam- bærilegir þeim sem notaðir eru í tölvur. Myndir, sem teknar eru á þessa diska, er hægt að sýna á sjón-. varpsskjá eða prenta þær á pappír í þar til gerðum prenturum. Þessar myndir eru enn ekki jafn- A einum seguldiski er hægt að koma fyrir fimmtíu myndum með hinni nýju tækni. góðar og hefðbundnar ljósmyndir því þær eru hvergi nærri eins skarpar en framleiðendurnir segja að ekki líði áratugur þar til því marki verði náö. Þá er það einnig galli á gjöf Njarðar að búnaðurinn til að taka og vinna myndir af þessari gerð er enn mjög dýr og mun dýrari en hefðbundin tæki til ljósmyndatöku. En það er hægt að taka boðlegar myndir með þessari tækni og búast má við að á næstu árum keppist framleiðendur við að þróa svo ódýrar útgáfur að þær geti orðið almenningseign. Nú þegar hefur Kodak, risinn í ljós- myndaiðnaðinum, kynnt sína útgáfu af þessari myndavél. Hún er fyrst og fremst ætluð atvinnumönnum. Sam- bærilegar vélar eru einnig í boði hjá Sony, Canon og Konica. Þær kosta hátt í 200 þúsund krónur. Þá hefur Casio boðað að í desember komi- frá fyrirtækinu sambærileg myndavél en mun ódýrari. Hún er ætluð til almennra nota og á aö kosta um 40 þúsund krónur. Hjá Sony er sagt að ár líði þar til þannig vél kem- ur á markaðinn. Yfirleitt rúmast um 50 myndir á hverjum diski. Þær eru geymdar sem punktar og samanstendur hver mynd tekin með þessari nýju aðferð af um 380 þúsund punktum. Til sam- anburðar eru um 20 milljón punktar í algengri gerð af ljósmyndafilmu. Helsti vandinn við þróun véla af nýju gerðinni er því sá að rúmið á segul- diskunum er of takmarkað til að koma góðum myndum fyrir þar. Þegar þessar myndir eru sýndar á sjónvarpsskjá eru þær álíka skarpar og aðrar sjónvarpsmyndir en þegar búið er að prenta þær á pappír kem- ur munurinn í ljós og myndirnar reynast óskýrari en hefðbundnar myndir. Fyrirtækin, sem vinna að þróun þcssarar nýju myndavélar, bjóða einnig upp á prentara fyrir þær. Þeir eru nokkru dýrari en vélarnar og kosta ekki undir 200 þúsundum. Þeir geta skilað frá sér nýrri mynd á tveggja nínútna fresti Kalltæki fyrir þungaðar konur Heilbrigðisyfirvöld í Malmö í Svíþjóð hafa undanfarið lagt þunguðum kon- um og eiginmönnum þeirra til kall- tæki eins og þau sem læknar nota svo hjónin geti haft samband sín á milli síðustu vikur meðgöngutímans. Þegar fæðingu ber brátt að vinnst oft ekki tími til að láta eiginmanninn vita þannig að hann kemst ekki á fæðingardeildina í tíma. Með kall- tækinu er hægt að hafa samband við hann vafningalaust þótt hann sé ekki staddur nærri síma. Þetta á einnig að auka öryggi kon- unnar síöustu vikurnar fyrir fæðing- una. Þaö er símstöðin í Malmö sem leggur tækin til. hálft kíló og framleiðendurnir segja að ljómandi gott sé að hafa það með á völlinn. Þá er hægt að horfa á beina útsendingu og lýsingu á leiknum og sjá valin atriði endurtekin. Gönguvél stúdentanna i Louisiana Rafknúin gönguvél Verkfræðistúdentar við háskólann í Louisiana hafa fundið upp nýja gönguvél fyrir lamaða. Hugmyndin er einfóld. Sá sem notar vélina kveik- ir á litlum mótor við hvert skref en mótorinn sér um að færa fótinn fram. Fyrri gönguvélar hafa byggt á ílóknum rafeindabúnaði og hafa aldrei reynst eins vel og til hefur staðið. Nýja vélin er enn á tilrauna- stigi en þykir lofa góðu. Nýja flugvélin er gerð úr kolefnistrefjum. Ný herflugvél I Bandaríkjunum hefur verið hönn- uð ný gerð af flugvél úr kolefnistrefj- um. Hún er mjög létt og getur borið hluti sem eru jafnþungir henni sjálfri. Kolefnistrefjarnar gera hana sterkari en ef hún væri gerð úr öðr- um jafnþungum efnum. Vélin er fjarstýrð. Hugmyndin að henni hefur verið seld bandarískum hernaðaryfirvöldum sem gætu notað hana til njósna og jafnvel til að bera eldflaugar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.