Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Side 35
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987. 47 HerfogmnafWindsor vM verða forseti Nú er komið upp út dúrnum að hertoginn af Windsor bauöst til að taka að sér að verða fyrsti forseti lýðveldis á Englandi er konungdæm- ið yrði lagt niður. Hertoginn afsalaði sér konungdómi áriö 1936 til að geta gengið að eiga Wallis Simson. Áður bar hann titilinn Játvarður konung- ur VIII. Þetta kemur fram í ævisögu Georgs VI. sem tók við konungdómi af Ját- varði. Hertoginn á að hafa látið þessi orð falla í viðtali við dagblaðið Lon- don Daily Herald árið 1937. Hann var þá sestur að í París og ræddi við fréttaritara blaðsins þar. í viðtalinu sagðist hann tilbúinn til að gegna embætti forseta ef sósíalistastjórnin, sem þá sat, ákvæði að leggja konung- dæmið niður. Þetta viðtal birtist aldrei því sendi- herra Breta ,í París frétti af málinu og tókst að telja blaðið á að birta ekki viðtalið. Farmer, Gillespi, Marsalis og Terry: gamlar kempur úr jassinum. Hvert mannsbam þekkti Louis Armstrong og enn í dag er hann lof- aður fyrir leik sinn. Það er alkunna að hann var snillingur í trompetleik en færri vissu að hann var líka mikil- virkur safnari og átti þegar hann lést mikið safn af plötum, myndum og bréfum sem á einn eða annan hátt tengjast sögu jassins. Nú þegar liðin eru 16 ár frá andláti meistarans hefur verið ákveðið að gefa Queens háskólanum í New York þetta mikla safn. Háskólinn hélt jass- hátíð þegar tekið var við gjöfmni og bauð nokkrum stórmennum jassins til leiks af því tilefni. Til hátíðarinnar komu m.a. Dexter Gordon, Wynton Marsalis, Dizzy Gil- lespie, Art Farmer og Clark Terry. „Hann átti engan sinn líka,“ sagði Marsalis um hinn látna meistara og bætti við: „Ef jassinn væri íljót þá væri Luise Armstrong upptökin.“ Ekkja Johns Wayne skrifar ævisögu: Wayne þrjóskur og sjálfselskur Pilar Wayne, ekkja kúrekastjörn- unnar Johns Wayne, hefur skrifað bók um ævi þeirra og samlíf og dreg- ur þar ekkert undan. Þrátt fyrir hreinskilnina segja þeir sem lesið hafa að Pilar hafi hér öðru fremur fest fallega ástarsögu á blað. Bandaríska vikuritið National En- quirer greiddi henni 2 milljónir króna fyrir að birta kafla úr bókinni og mun þess utan standa fyrir kynn- ingu á henni í 20 borgum vestra. Pilar fer fögrun orðum um mann sinn í bókinni en viðurkennir í leið- inni að hann hafi á stundum verið þrjóskur og sjálfselskur og hann hafi ekki kunnað að fara með peninga. Pilar upplýsir einnig að hún hafi látið eyða fóstri á 6. áratugnum eftir ástarævintýri með kappanum. Hann var þá enn kvæntur annarri konu sinni. Pilar segir aö hún hafi gert þetta til að skaða ekki mannorð leik- arans. Eftir þetta skildi John við konu sína og gekk að eiga Pilar. Þau bjuggu saman eftir það allt til þess að John lést árið 1979. John Wayne kunni ekki að fara með peninga. Pavarotti 50kílóuin léttari „Ég lærði að meta hestamennsku og útreiðar fyrir sex eða sjö árum,“ segir stórtenórinn Luciano Pavarotti „en ég varð að hætta vegna þess að fæturnir þoldu þaö ekki og því síður hrossin." En nú er Pavarotti kominn á bak á ný eftir að hafa farið í alvarlega megrun. Honum tókst að létta sig um næstum 50 kíló. Hvað hann var þungur áður vill hann þó ekki segja og ekki heldur hvað hann er þungur núna. Hann er enn þrátt fyrir megrunina þéttur á velli. „Mér finnst ég vera tíu árum yngri en ég var í fyrra,“ segir hann. „Ég var að sligast undan þunganum." Pavarotti átti orðið erfitt með að koma fram á sviði og varð að forðast þau hlutverk sem útheimtu mikla hreyf- ingu. Nú í mánuðinum kemur hann fram í Metropolitan óperunni í hlutverki Sígaunahöfðningjans Manrico í II Tro- vatore eftir Verdi. „Það er draumur minn að verða svolítið liðugri á sviðinu en undanfariö og þá sakar ekki að geta hreyft sig utan þess líka,“ segir Pavarotti. Pavarotti segist hafa yngst um 10 ár á einu ári. MARKAÐSTORG Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna. Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug- vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö. Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu, en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins. Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný- komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur. Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt. Þar er allt sneisafullt af tækifærum. Þaö er bara aö grípa þau. Þú hringir... ViÖ birtum... Þad ber árangur! Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11. Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00 laugardaga, 9.00—14.00 sunnudaga, 18.00—22.00 ER SMÁAUGLÝSINGABLAÐHD KREDITKORTAÞJONUSTA Þú hringir - við birtum og auglýsingin verður færð á kortið. EUnOCARO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.