Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Page 42
54
LAUGARDAGUR/7. NÓVEMBER 1987.
Ferðamál
Eftir Þóruimi Lárusdóttur
ÞÓRSMÖRKIN
— ein af perlum Islands
Lega Þórsmerkur er skýrt afmörk-
uð landfræðilega séð. Hún afmarkast
að sunnan af Krossá, að austan af
Mýrdalsjökli, að norðan af Markar-
fljóti og Þröngá og að vestan af
Krossá og Markarfljóti.
Þórsmörk er hálendishryggur um
15 km á lengd og 2-3 km á breidd.
Hún er sundurskorin af gfljum og
dalverpum, mismunandi stórum.
Austast og sem hæst ber er Mófell,
855 m, síðan Rjúpnafell, 819 m, þá
Tindfjöll, 557 m, og vestast er Vala-
hnjúkur, 458 m.
Fremsti hluti þessa hryggjar heitir
Merkurrani og efst á honum eru
Eggjar, nokkrir tindar sem setja svip
á landslagið. Stærstu dalirnir eru
Langidalur, sem er austan undir
Valahnjúk, og Húsadalur, sem er
norðan undir sama fjalli. Af giljum
skulu nefnd Slyppugilin og Endamir,
þ.e. Stóri- og Litli-Endi.
Gróðursæld er mikil í Þórsmörk,
enda skýlt í skjóli jökla og hárra
fjalla. Einkum er skýlt sunnan í
móti þar sem brekkur og gil eru víð-
ast vaxin birkikjarri. Skógur eða
kjarr eru einnig norðan í móti, þó
aöallega í Húsadal og Hamraskógum
þar sem Systumar sjö eru hvað fræg-
astar, þó mun ein hríslan vera fallin
nú.
Flóra Þórsmerkur er mjög fjöl-
skrúðug, um 170 tegundir hafa
fundist á svæðinu. Á stórum steini
sem nefndur hefur verið Jurtasteinn
og stendur rétt utan við Skáldagil í
Valahnjúk hafa fundist yfir 40 teg-
undir.
Landnám og búseta
Ekki fara margar sögur af byggð í
Þórsmörk fyrr á öldum. í Landnámu
segir að Ásbjörn Reyrketilsson og
Steinfinnur. bróðir hans hafi numið
land fyrir ofan Krossá og austan
Fljót. Ymis örnefni benda til að þar
hafi verið búið einhvern tíma, svo
sem Þuríðarstaðir, Húsadalur,
Steinfinnsstaðir og fleiri.
í Njáls sögu segir frá byggð á þess-
um slóðum, Ketill auðgi, sonur
Ásbjarnar landnámsmanns í Þórs-
mörk, var kvæntur systur Njáls á
Berþórshvoli. Ekki er hægt að segja
með nokkurri vissu hve lengi var
búið í Þórsmörk. Á seinni hluta 12.
aldar virðist hún vera í eyði þegar
Jón Loftsson býðst til að fara þangað
vegna bannfæringarhótunar Þorláks
helga biskups vegna kvennamála
Jóns. Er greinilegt að Þórsmörkin
hefur haft aðdráttarafl fyrir fólk í
rómantískum hugleiðingum þá ekki
síður en nú.
Laust eftir 1800 hófu tveir menn
úr Landeyjum búskap í Húsadal,
þeir Sæmundur Ögmundsson og
Magnús Árnason. Ekki mun búseta
þeirra hafa verið löng og ýmsu kennt
um, mælt er að húsfreyjurnar hafi
kunnað illa Þórsmerkurdvölinni
meðal annars sökum myrkfælni. Eitt
barn mun hafa fæðst í Húsadal, Árni,
sonur Magnúsar, og mun hann vera
sá eini sem á þann fæðingarstað á
síðari öldum.
VERTU VANDLÁTUR - VELDU AMSTERDAM |
........ . ...
SÉRTILBOÐ REISUKLÚBBSINS TIL AMSTERDAM
ÞRIÐJUDAGUR TIL LAUGARDAGS
BROTTFÖR 24. NÓV.
HÓTEL VIÐ ALLRA HÆFI
BÓKIÐ TÍMANLEGA
TAKMARKAÐ
SÆTAMAGN
18.200,-
Á MANN í TVÍBÝLI
FERÐAMIÐSTÖÐIN POLARIS SAGA
Aðalstræti9 Kirkjutorgi4 Suðurgötu 7
Sími 2 8133 Sími62 2011 Sími 62 40 40