Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987.
Fréttir
Eiríkur Tómasson hri. fagnar bók Jóns Steinars:
Rökstuðningi Hæsta-
réttar mjög ábótavant
„I fyrsta lagi vil ég segja það um
bók Jóns Steinars Gimnlaugsson-
ar, Deilt á dómarana, aö hún er
mjög gott framtak af hans hálfu og
þetta vil ég ’mdirstrika. Ég er einn-
ig sammála tveim meginniðurstöð-
um bókarinnar og þar með því að
rökstuöningi Hæstaréttar fyrir
dómum af því tagi sem þama er
fjallað um er mjög ábótavant," seg-
ir Eiríkur Tómasson hæstaréttar-
lögmaður.
„Þetta á við um mál sem snerta
stjómarskrána og mannréttinda-
mál. Ástæðuna tel ég vera þá að
það er alltof mikið álag á dómstóln-
um og dómararnir hafa einfaldlega
ekki tíma til þess að tíunda rök-
stuðning sinn nægiiega. Ég er
einnig sammála því að stjómar-
skráin og mannréttindakaflar
hennar séu ekki nægilega í sviðs-
ljósinu og hafl ekki hlotið þá
kynningu sem eölileg og nauðsyn-
leg er.
Loks er ég ennfremur sammála
mörgu því sem Jón Steinar heldur
fram um þau mál fyrir Hæstarétti
sem bók hans snýst fyrst og fremst
um, en ég er ekki sammála öllu.
Ég get hins vegar ekki tekið undir
það að dómstólar og þar með
Hæstiréttur séu vilhallir hinu op-
inbera. Til þess aö taka afstöðu til
þess þyrfti ég að kynna mér mál
af þessu tagi mun betur.
Eg vil þó taka fram að það mætti
skilja betur á milli dómstóla og
annarra geira stjómsýslunnar.
Dómarar era of mikið í störfum
sem tengjast framkvæmdavaldinu
og nægir þar að benda á sýslumenn
og bæjarfógeta sem jafnframt sinna
dómarastörfum," segir Eiríkur
Tómasson. -HERB
Slit kjarasamningaviðræðna:
Lítill vilji
til verkfalla
segir Þórarinn V. Þórarinsson
„Það hafa engar viðræður verið í
gangi aðrar en við Verkamannasam-
bandið. Iönverkafólk er ekki tilbúið
fyrr en eftir sitt þing og Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur kemur til
viðræðna eftir helgi.
Varðandi Verkamannasambandiö
era uppi væntingar um breytingar á
bónusKerfi fiskvinnslufólks. Það er
tilraun í gangi á Flateyri og það hef-
ur verið unnið mikið starf um
forsendur slíks bónuskerfis, sem ver-
ið er að kynna starfsfólki og stjóm-
endum frystihúsa á Vestfjörðum. Við
göngum út frá því að fleiri hús prófi
þetta kerfi á næstunni og það þarf
að fá úr því skorið hvort gerðar verði
víðtækar breytingar á þessum hluta
launakerfisins í fiskvinnslunni en
launakerfi þar er tvískipt, fast og
breytilegt. Það er ekki hægt að tala
um annað kerfið án þess að líta til
hins. Þess vegna er ekki rétt að segja
að öll þróun sé dottin úr samninga-
málunum," sagði Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins, í gær.
Þórarinn benti á að auðvitað yrðu
samningaviðræður teknar upp aftur,
menn myndu núa saman flötunum
og sjá til hvort ekki kvamaðist ein-
hvers staðar úr, eins og hann komst
að orði. En hvort menn fyndu flöt á
því að taka upp viðræður á næstunni
væri alls óvíst.
Hann sagði aö vel gæti komið til
átaka á vinnumarkaði en sagðist
telja heldur lítinn vilja til verkfallsá-
taka hjá fólki í ljósi þess aö kaup-
máttiu- væri nú hærri í landinu en
hann hefði nokkra sinni verið.
-S.dór
Stofnun vericamannaflokks:
„Þeir sem sverja af sér
nú munu fyrstir koma“
Haft hefur verið eftir Guðmundi
J. Guðmundssyni, formanni Verka-
mannasambandsins, að svo gæti
farið að verkamannaflokkur yrði
stofnaður innan skamms tíma og þar
yrðu margir verkalýðsleiðtogar með.
Þeir verkalýðsleiðtogar, sem DV
hefur rætt við, vilja ekkert við málið
kannast og segja þetta aðeins vera
hugdettu Guðmundar J.
„Ég svara því aðeins þannig að
þeir sem harðast sveija af sér nú
munu verða fyrstir til að hlaupa til
og koma með ef verkamannaflokkur
verður stofnaður,“ sagði Guðmund-
ur i samtali við DV í gær.
-S.dór
Sátu tveir á samningsbekk sáttir, fljótt á litið. Kom i nefið kratinn fékk og kjarasamning slitið.
DV-mynd GVA
„Þeir eru að bíða
eftir gengisfellingu“
- segir Guðmundur J. Guðmundsson
„Ég tel að möguleikar hafi verið
á að ná þríhliða samningum, um
fast gengi, stöðugt verðlag og skatt-
fríðindi. Vinnuveitendasambandið
sýndi þessu áhuga í haust en nú
hefur það snúið við blaðinu og er
ekki til viðtals um það. Ég er sann-
færður um að þeir eru að panta og
bíða eftir gengisfellingu og vita
hvað þeir syngja í þeim efnum. Ég
sé því ekki hvað getur nú tekið við
í samningamálunum. Ég óttast að
samningar dragist fram yfir ára-
mót og þá stefnir í stórfelld átök á
vinnumarkaði, sagði Guðmundur
J. Guðmundsson, formaður Verka-
mannasambandsins, í samtali við
DV í gær.
Hann sagði að þau átök, sem allt
stefndi nú í, gætu orðið með ýmsu
móti og gætu brotist út hvenær sem
væri. Það þyrfti ekkert endilega að
koma til allsheijar verkfalls, það
gætu orðið skærur og ýmislegt
annað í þeim dúr kæmi til greina.
„Ljóst er að Vinnuveitendasam-
bandið hefur engin tök á launa-
skriðinu í landinu og því gæti allt
eins komið til þess að einstök
verkalýðsfélög næðu samningum,
jafnvel leynilegum samningum.
Hver veit um það?“ sagði Guð-
mundur.
Hann sagðist harma að vinnu-
veitendur skyldu ekki vera til
neinna viðræðna og því miöur væri
útlitið afar svart á vinnumarkaðn-
um.
-S.dór
Bæjarfógeti Skagamanna deilir hart á Hæstarétfc
Söfflu bréfin voru ýmlst skulda-
bréf eða ekki í tveim dómum
„í hnotskurn má lýsa greindum
tveim dómum Hæstaréttar frá 13.
febrúar 1986 og 2. febrúar 1987 á
svofelldan hátt: í fyrri dóminum
er Qárkrafa Jóhanns Þóris Jóns-
sonar á hendur Jóhönnu Heiðdal
ekki tektn til greina af því aö bréfin
20 eru ekki talin skuldabréf. í 9ÍÖ-
ari dóminum er Jóhann Þórir
Jónsson dæmdur í fangelsi fýrir að
liafa ráöstafaö nefhdum 20 bréftun,
af því að bréfin 20 eru álitin vera
skuldabréf."
Þetfa er niðurstaða Sigurðar Giz-
urarsonar, bæjarfógeta á Akranesi, eins og aö dæma mann fyrir morð Jóhann Þórir tapaði sínu máli en
sem skrifar grein í Úlfijót, rit iaga- þegar hann hefúr aöeins veifaö aö kröfú ákæravaldsins var hann
nema, um tvo dóma í tengdum leikfangabyssu og fómarlambið dæmdur í fiögurra mánaða fang-
Hæstaréttarmálum sem bæði sner- heftirekkikenntsérneinsmeins." elsi, þar af tvo skilorðsbundið.
ust um deilur og uppgjör einstakl- Fyrra málið var einkamál Jó- Sigurður segir aö á sama tíma og
inganna sem nefndir eru hér aö hanm Þóris á hendur Jóhönnu til Jóhann Þórir var dæmdur fyrir aö
framan. Og hann heldur áfram: innheimtu á 20 skuldabréfum að ráðstafa þessum 20 bréfum Jó-
„Að athuguðu því sem hér hefúr fjárhæö ein mifijón króna. Seinna hönnu í eigin þágu hafi Jóhanna
veriö rakiö fáe ég ekki betur séö en málið er mál ákæruvaldsins á skuldað Jóhanni eina og hálfia
að meirihluti Hæstaréttar hafi hendur Jóhanni Þóri. Þar er hann milljón króna.
dæmt Jóhann Þóri Jónsson i fang- ákæröur fýrir að hafa beitt Jó- „Dómarnir era slys í íslenskri
elsi fýrir að hafa afhent Jóni hönnu fjárdrætti með því að réttarfarssögu," segir Siguröur
Hjaltasyni, félaga sínum, 2) efttr- ráðstafa bréfúnum 20 „i eigin þarf- Gizurarson bæjarfógeti.
likmgar skuldabréfa. Það er nánast ir“ til greiðslu á skuld þriðja aðila. -HERB
Bílar fuku
Tvær rútur og tveir jeppar fuku í
miklu hvassviðri sem gekk yfir Aust-
urland á fimmtudag. Fyrst fauk
fimmtíu og fjögurra manna rúta af
veginum við Framnes í Reyðaríirði.
Tveir menn vora í rútunni. Þá sak-
aði ekki en rútan skemmdist mikið.
Skömmu síðar fauk stór jeppi af
veginum yfir Oddsskarð. Tveir menn
voru í jeppanum. Sluppu þeir lítt
meiddir. Bíllinn er mikið skemmdur,
ef ekki ónýtur.
Fáum mínútum síðar fauk annar
jeppi af veginum. Var það á svipuð-
um stað og rútan hafði fokiö. Jeppinn
valt 30 til 40 metra vegalengd. Er
hann mikiö skemmdur. Mikil mildi
þótti hve ökumaðurinn, sem var einn
í bílnum, slapp vel.
Aö síðustu fauk svo rúta í Oddsdal
og urðu nokkrar skemmdir á henni.
-sme