Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987. Popp Sj á roðann í austri Rauð jól framundan. Rauðir fletir á plötu. Mamma var Rússi á plötu. Ungir menn að hasla sér völl. Eldri menn að hasla sér völl, að nýju. Allir mennimir hafa það sama í huga, að bylta núverandi ástandi í tónhstarlífi landsins til hins betra. Þorsteinn J. Vilhjálmsson lýkur upp litabókinni í helgarpoppinu í dag. „Draumur okkar allra“ Sérhvert band dreymir um breið- skífu. Það gerir tilvist hljómsveitar áþreifanlega. Ekki síst er stór plata minnisvarði um framlag viðkomandi til tónhstarsögunnar, löngu eftir hijómsveitin sjálf hefur hlotið hvíld í náðarfaðmi tónUstargyðjunnar. Rauðir fletir hafa nú fengið sinn draum uppfylltan. Fjögurra laga - platan Ljónaskógar, sem kom út í fyrra, telst ekki fullgild. Sú plata vakti engu að síður athygli á sveit- inni, þó sérílagi Þögn af plötu. Síðan er Uðið eitt ár. Á þesum tíma hefur sveitin gengið í gegnum mannabreytingar og skipt um um- boðsmenn en haldið sínu striki tónUstarlega. Einn af nýjum Uðs- mönnvun Rauðra flata er bassaleik- arinn Össur Hafþórsson sem starfaði með Davíð Frey í hljómsveitinni Voice sem síðar varð Röddin. „Við Davíð héldum sambandi eftir að hann hætti í Röddinni og stofnaði Rauða fleti,“ segirössur. „Égvar búinn að fylgjast með bandinu úr fjarlægð og vissi hvað það var að fást við. Svo gekk ég í hljómsveitina í haust, um það leyti sem þeir voru að taka upp þessa plötu.“ Og hvers vegna? „Það má eiginlega segja að Röddin hafi verið komin í sjálfheldu. Mér fannst kominn tími á að breyta til, reyna eitthvað nýtt, svo ég sló til. Við Davíð heföum hvort eð er spilað saman fyrr eða síðar.“ Stefnumótun Platan, Minn stærsti draumur, var nánast fullmótuð þegar Össur kom til leiks. Hann spUaði bassann inn og lagði til einstaka hugmyndir um útsetningar. „Það er vissulega ýmis- legt sem ég hefði viljað hafa öðruvísi á þessari plötu. Ég kom bara það seint inní þetta að það var ekki um það að ræða að gera verulegar breyt- ingar. Hitt er annað mál að ég ætla mér ekki að framkvæma byltingu í band- inu upp á mitt eindæmi. Ég hef ýmsar hugmyndir í pokahominu sem ég ræði við aðra meðlimi hljóm- sveitarinnar. Það kemur bara í ljós hvað verður úr því. Ég held að sam- starfið eigi eftir að verða mjög gott þegar við fórum að kynnast betur og spila meira saman.“ Rauðir fletir fylgja breiðskífunni að sjáifsögðu úr hlaði með tónleikum í Reykjavík og eins úti á landi. Á nýju ári em enn- fremur uppi hugmyndir um að fara aftur í stúdíó. „Við eigum mikið af efni,“ segir Össur. „Við emm jafnvel að spá í 7 tommu plötu ef því er að skipta. Ég held til dæmis að lagið, í borg eins og Reykjavík, sem hefur fylgt hljómsveitinni frá því hún var stofnuð, sé alveg tilvalið á litla plötu.“ Sameiginlegur draumur Rauðir fletir teljast vart. lengur ungir og efnilegir, eins og gjaman er talað um ungar sveitir. Þetta em piltar sem hafa spilaö lengi, þar af hafa Davíð og Össur gengið lengst í þvi að bijótast út úr bílskúmum og spilaopinberlega. Össur viðrar kenningu um nýja sprengingu í íslensku rokki. „Það er mikið af bílskúrsböndum víðsvegar um bæinn 1 dag. Það er bara-spurn- ing um hvenær sprengingin verður. Það vantar bara neistann þannig að allt fari af stað. Ég á ekki við að það skelli yfir önnur bylgjan eins og 1980. Ég held að þetta sé spuming um að fínpússa hráleikann en halda samt kraftinum til streitu. Utangarðs- menn eiga ekki eftir að ganga aftur en ýmislegt annað getur gerst.“ Og hvar skyldi þá neistann vera að finna? „Ég get ekki sagt nákvæmlega fyrir um það. En efniviðurinn er úti um allan bæ og í honum leynist þessi svokallaði neisti áreiðanlega. Og ég held að það sé aðeins tímaspursmál hvenær þessi kraftur losnar úr læð- ingi. Það er draumur okkar allra,“ sagði Össur Hafþórsson. Pönkið skín ígegn u „Vorum að taka upp úrval af lög- um,“ heyrist í útvarpinu án nokk- urra skýringa. Mamma var Rússi segir ekki neina sögu og varpar engu ljósi á máhð. Rússamæður, og hvað með það? kynnu harðlínumenn til hægri að spyija. Um leið er tilgangin- um náð. Auglýsingar ganga jú út á að vekja sem mesta athygli á vör- unni. Varan, sem hér um ræðir, er hljóm- sveit, eða öllu heldur hjómplata hljómsveitar, hjómsveitar sem varð til upp úr engu. Það segir bassaleik- arinn Árni Daníel að minnsta kosti: „Það er heldur engin haldbær skýr- ing á nafninu," segir hann. „Þetta er bara nafn, nafn á hljómsveit. Okkur datt þetta bara í hug.“ Sveitin, sem hér er á ferðinni, er ný af nálinni. Liðsmenn hennar eru hins vegar engir nýgræðingar, nefni- lega uppistaðan úr Fræbbblunum sálugu. Af þeim lifir líklega söngvar- inn, Valgarður Guðjónsson, helst i minningunni, goðsögnin um pönkið og kerfisfræðina sem tóku upp á að grassera í einni og sömu sálinni. í tómstundum Mamma var Rússi er sjö manna hljómsveit. Hún hefur spilað ná- kvæmlega þrisvar sinnum opinber- lega. „Hljómsveitin er bara hobbí,“ útskýrir Árni Daníel frekar. „Við erum öll að stússa í svo ótalmörgu öðru. Við æfum þegar tími vinnst til og spilum þegar við sjáum færi á. Þetta er allt gert á hraðferð." Platan, sem hér um ræðir, geymir sjö lög. Hún var unnin í Sýrlandi í október, á hraðferð. „Platan var tek- in upp á þijátíu tímum enda tónlistin svo að segja spiluð beint inn. Við eyddum mestum tíma í raddirnar, svooggítarana. Uppistaðan í hljómsveitinni er úr Fræbbblunum," heldur Ámi áfram. „Einnig er þarna að finna meðlimi úr hljómsveitum eins og Snillingun- um og Taugadeildinni. Sveitin sem slík rekur ættir sínar rakleitt í Kópa- voginn. Við æfum í skúr við Borgar- holtsbrautina þar sem Fræbbblarnir héldu til á sínum tíma.“ Hvað veldur því að þig snúið aftur í tónlistarheima? „Það má kannski segja að það hafi verið kominn tími til. Þetta er ekki lengur aðalstarf hjá okkur heldur hobbí, eins og ég sagði áður. í því liggur munurinn. Þetta er skemmti- legt tómstundagaman. Það var komin þreyta í menn á sínum tíma og við snerum okkur einfaldlega að öðru. Maður lifir varla á tónlistinni einni saman. Músíklega séð þá erum við eins konar afleiðing af pönkinu. Það sem eimir eftir af gömlu Fræbbblunum er einna helst söngur Valla. Mamma var Rússi spilar ákveðna tegund af rokki sem spannar breitt svið, allt frá Who og Kings yfir í The Jam.“ Pönkrokk Mamma var Rússi er sem sagt gam- alt vín á nýjum belgjum. Hér hafa safnast saman menn sem búa að reynslu nýbylgjunnar svokölluðu sem í dag er gömul. „Þetta er í sjálfu sér ekkert ofboðslega frumlegt,“ seg- ir Ámi Daníel. „Við spilum rokk og það er í sjálfu sér ekkert nýnæmi. En það sem við lærum í pönkinu skín í gegn. Það eru líklega helstu einkennin.“ Engu aö síður verður forvitnilegt að heyra sjö laga skífuna sem sam- kvæmt áætlunum átti að koma út í gær. Pönkarar snúa aftur sem rokk- arar. Rock’n roll is here to stay og alltþað. Mamma var Rússi í Fræbbblunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.