Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 10
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987. „Glasgow er stórmarkaður í augum margra“ - segir Magnús Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða í Glasgow Magnús Kristjánsson er nemandi í hag- og markaðsfræðum í Glasgow. Þar fyrir utan gegnir hann starfi upplýsingafulltrúa Flugleiða í borg- inni. Tvisvar í viku kemur Magnús á Hospitality Inn hótehð og veitir ferðalöngum þær upplýsingar sem sótt er eftir. „Það er rétt,“ sagði Magnús „ég veiti farþegmn Flugleiða og ferðaskrifstofanna heima upplýs- ingar og aðstoða ef eitthvað kemur upp á. Fjöldi íslendinga er sífellt að aukast sem kemur hingað og í fyrra var mjög mikil aukning frá árinu þar á undan. Eftir því sem mér er sagt er enn meiri aukning núna. “ - Hvernig fólk er það sem kemur hingað? „Það er alls konar fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins, bæöi konur og karlar og jafnt frá Reykjavík sem öðrum stöðum á landinu. Ég hef heyrt að fólk sem býr úti á landi og fer venjulega til Reykjavíkur fyrir jólin að versla hafi séð að það er ekki miklu dýrara aö koma hingað yfir til Glasgow. Það á bæði við um hótel- kostnað og innkaup því vöruverð er mun hagstæðara hér en heima. “ - Hvað er það helst sem fólk þarf að fá upplýsingar um þegar það leitar til þín? „Helstu upplýsingar sem fólk spyr mig um er hvar það getur fengið ein- hverja ákveðna vöru, hvert það á að fara ef það vill fara út að borða eða út að skemmta sér. Oftast er það spumingin um vöruna enda koma flestir hingað til að versla." - Er algengt að fólk dvelji lengi hér í Glasgow? „Algengustu ferðimar em fimm daga ferðir, síðan þriggja daga ferðir. Færri dvelja hér í heila viku. Algeng- ust er dvöl frá fimmtudegi eða laugardegi til þriðjudags. Vegna mik- illar aðsóknar hafa Flugleiðir bætt við ferðum hingað. Hingað koma núna tvær vélar á laugardögum." - Er einhver aldur sem sækir hingað frekar en annar? „Já, fólk á miðjum aldri, hjón eða nokkrar konur saman. Þetta er fólk á aldrinum frá þrítugu upp í fimm- tugt. Það er algengt að eiginmennim- ir koma með konunum en maður tekur meira eftir hópum af konum sem koma hingaö eingöngu til að versla. “ - Sækir fólk á góð veitingahús og skoðar það sig um hér? „Það er alltaf stór hópur sem fer út að borða á góðum veitingahúsum en mér finnst að þar sem ég er búinn að búa hér á fjórða ár, að fólk gæti notið borgarinnar miklu betur. Glas- gow hefur upp á margt aö bjóða en flestir koma hingað einungis til aö versla og gefa borginni ekki kost á að sýna sig og sanna. Glasgow er í hugum margra stórmarkaður en ekki borg sem býöur upp á mjög góð leikhús, mjög góða veitingastaði og ýmislegt sem hægt er að gera skemmtilegt. Ég hef heyrt marga tala um að þeir viiji ekki fóma gallabux- um eða annarri flík fyrir góða kvöldstund. “ - Hefur fólk sem þú hittir hér ein- hveija reynslu í að ferðast? „Það er auðvitað misjafnt en ég hef tekið eftir því að ákveðinn hópur sem hingað sækir hefur litla reynslu og er jafnvel að fara í fyrsta skipti til útlanda. Margt af þessu fólki talar ekki ensku. Eg er ekki að segja að það sé stærsti hópurinn en maður tekur eftir þessu. Ég gæti ímyndað mér að þar sem Glasgow er mjög nærri íslandi, stutt flug hingað og borgin er vinaleg að margra mati, þá telji margir auðvelt að koma hing- að.“ - Talar fólk um hverslu miklum peningum það eyðir hérna? „Stundum hefur maður heyrt fólk tala um að það kvíði að fá Visa- reikninginn en eftir því sem talaö er þá skilst mér að hjón eyði hér um eitt þúsund pundum sem era 65 þús- und krónur íslenskar." - Er fólkið að gera góð kaup? „Já, ég er alveg viss um að svo er því verðlagið hér er mjög hagstætt. Mikið af vörum, fatnaði og raf- magnsvörum er allt að helmingi ódýrara hér en á íslandi. Við höfum fundiö það sjálf hjónin að matvara kostar einn þriðja af því sem hún kostar heima. “ - Hefurþúfundið viðbrögð hjá Skot- um vegna innkaupaferða Islendinga? „Já, Skotum finnst almennt mjög merkilegt að fólk skuh ferðast aUa leið frá íslandi, sem þeim fmnst langt, til að versla. Það hefur verið skrifað um þessa fljúgandi íslend- inga í blöðum og eru þeir sagðir eyða miklu meiri peningum en Skotar mundu nokkurn tímann gera. Skot- um fmnst þetta ánægjulegt því þaö ýtir undir verslun og viðskipti hér í Glasgow," sagði Magnús Kristjáns- son. -ELA Magnús Kristjánsson og kona hans, Jónína Kristjánsdóttir, hafa verið við nám í Glasgow og einnig starfar Magnús við að veita íslendingum upplýs- ingar sé eftir þeim leitað. Leðurdragtin borgar ferðina Þær voru fimm saman, Sigurrós „Ég er nú hrædd um það,“ sagði inni í sjónvarpinu og allir íslending- Torfadóttir, Guðbjörg Torfadóttir, Unnur og Rósa Þorsteinsdátur og Guðrún Sigurðardóttir og voru bún- ar að gera góð kaup. „íslendingar hæla því svo mikið hversu gott er að versla hér og þess ve'gna komum við,“ sögðu þær. „Við erum bunar að komast að því að það er alveg rétt. Munurinn á verðlaginu hér og heima er alveg ótrúlegur og maöur skilur ekki hvernig þetta er hægt. Munur- inn er alveg helmingur og stundum meiri. Barnaleikfóngin eru lang- ódýrust miðað við heima, það er undarlegur munur þar á. Einnig er barnafatnaður og leðurvörur mjög ódýrar." - Hvar kaupið þið barnafot? „Bæði í Mothercare og stórversl- unum hér í kring." - Hafið þið keypt jólagjafir? Sigurrós. „Við höfum sparað stórfé á því að koma hingað og kaupa jóla- gjaflrnar." - Er skemmtilegt að fara í innkaupa- ferð? „Ég mundi nú segja að það væri hrikalega þreytandi,“ svaraði Guð- björg. „Það getur hka verið skemmti- legt en erfitt er það þegar maður er ókunnugur og orðinn fullorðinn." - Þekkið þið marga sem hafa farið í innkaupaferð? „Ég þekki marga sem hafa farið til London. Ég myndi frekar vilja fara þangað," sagði Guðrún. „Fatnaður fyrir ungt fólk er fallegri þar og miklu meira um aö vera en hér. Hér er ekkert hægt að fara eða gera. Við bara sitjum inni á hóteli á kvöldin." Kvöldið áður en þetta viðtal var tekið var sýnt frá Miss World keppn- ar fylgdust vel með. „Maður hefur ekkert annað að gera en horfa á sjón- varp og það var reglulega gaman að sjá hversu vel okkar stúlku gekk,“ sögðu þær. - Æthð þið að koma aftur? „Ef maður væri með betri fætur,“ sögðu þær eldri og voru þó alveg á því að það væri leggjandi á sig. „Það er svo gott fyrir konur á okkar aldri að versla hér.“ Guðbjörg sagðist hafa keypt leðurdragt fyrir 147 pund og bara hún hefði borgað fyrir hana ferðina. „Við lentum á útsölu í gær og ég fékk þar 14 kt. gullúr með dem- anti á 45 pund.“ Unnur sagðist hafa fengið dúnúlpu fyrir innan við tvö þúsund krónur. Þær voru allar mjög ánægðar með allt það sem þær höfðu keypt og það var ekki annað að sjá en það væri allnokkuð. -ELA BLAÐ BURÐA RFÓLK ú v /weAsjjL : Mánagötu Karlagötu Háaleitisbraut 11—51 Starhaga Lynghaga Fálkagötu Hjarðarhaga Oddagötu Aragötu Litla-Skerjaf jörð Hverfisgötu 1-66 „Það er erfitt að fara i innkaupaferð til Glasgow en það borgar sig.“ Þær Sigurrós og Guðbjörg Torfadætur voru mjög hrifnar af verslununum en Guðrún Sigurðardóttir, til hægri, sagðist heldur vilja fara til London. „Aminrimg tíl kaupnianria" - segir Kristján Pétursson, deildarstjóri á Keflavíkiirflugvelli „Við höfum ekki tekið óvenjumikið, þetta er alltaf það sama,“ sagði Kristján Pétursson, deildarstjóri á Keflavíkurflugvehi, í samtah við DV er hann var spurður hvort tollurinn gerði rassíur er fólk kæmi úr inn- kaupaferðum. „Við vitum að þetta er langmest fatnaður sem fólk kemur með frá Englandi og við vitum líka að hann er ódýr. Ef hjón fara saman er hægt að fá dijúgt af fötum fyrir 28 þúsund krónur. Þessi mikli straumur fólks til útlanda í verslun- arferðir endurspeglar einungis það sem er að gerast hér, að það er eitt- hvað athugavert við verðlagið á fatnaði á Islandi,“ sagði Kristján ennfremur. Hann bætti því við að tollverðirnir vissu nokkum veginn hvað fólk kæmi með frá hinum ýmsu löndum og er leitað frekar eftir hljómtækjum og dýrum tækjum hjá fólki sem kæmi frá Hollandi, Lúxemborg og Banda- ríkjunum. „Við erum strangari á dýru tækjunum," sagði hann. „Við höfum afskipti af 5-6 þúsund manns og þaö þykir allnokkuð í öðrum lönd- um. Það er enginn möguleiki á því fyrir okkur að taka alla fyrir enda oft margar vélar sem koma í einu og það myndi skapa algjört vandræða- ástand. Héma vantar tilfinnanlega bækl- ing fyrir fólk, sem er að fara úr landi, meö upplýsingum um hvað má taka með sér inn í landið. Hér áður fyrr voru þessir bækhngar í gangi en ráðuneytið hefur ekkert gert í því að. koma þeim út aftur. Við verðum mjög mikið varir við að fólk veit ekki hvað er tohskylt og hvað ekki. Það kemur meö rándýr reiðhjól í græna hliðið án þess að vita að það er með tollskylda vöru. í slíkum tilfehum, þegar fólk leynir ekki hlutnum, gef- um við kost á að borgaður sé tollur án sektar." - Hafa kaupmenn hér beitt ykkur þrýstingi að taka fleiri farþega? „Þeir hafa nú ekki gert það en auð- vitað eru þeir óhressir. í ár hafa farið um 30 þúsund fleiri farþegar en í fyrra og það er 20-30% aukning frá árinu áöur. Ahir vita að hvert sem fólk fer verslar það ahtaf eitthvað í leiðinni. Við vitum að hehu fyrirtæk- in taka sig saman og fara í helgar- ferðir. Þessi mikla aukning hlýtur að leiða til samdráttar í verslun hér- lendis. Ég myndi segja að þessi aukning væri mikil áminning th kaupmanna hér á landi því að við vitum að verðmismunurinn er aht að tvöfaldur og stundum þrefaldur. Ég vona bara að þessu fari að linna,“ sagöi Kristján Pétursson. „Það verö- ur að lækka fataverð á íslandi th að koma í veg fyrir þessa loftbrú th Bretlands." - Hefur þú farið í verslunarferð th Bretlands? „Nei, aldrei og ég vona að ég eigi það ekki eftir." -ELA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.