Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987.
65
■f
Fólk í fréttum
Ólafur Davíðsson
Ólafur Davíðsson hagfræðingur
hefur í drögum að þjóðhagspá sagt
að ríkisstjórnin þurfi aö endurmeta
efnahagsstefnuna. Ólafur er fædd-
ur 4. ágúst 1942 og lauk prófi í Dipl.
Volkswirt í þjóðhagfræði í Kiel í
Þýskalandi 1968. Hann var hag-
fræðingur hjá Efnahagsstofnun og
Fasteignamati ríkisins og hjá hag-
fræðideild Seðlabanka íslands
1970-1971 og hjá Efnahagsstofnun
síðar hagrannsóknadeild Fram-
kvæmdastofnunar ríksins og
Þjóðhagsstofnun frá 1974. Hann var
forstjóri Þjóöhagsstofnunar
1980-1982 og framkvæmdastjóri
Félags íslenskra iðnrekenda frá
1983.
Fyrri kona Ólafs var Kládía Ró-
bertsdóttir, f. 11. október 1943,
leiðsögumaður. Sonur þeirra er
Mikael Róbert, f. 11. apríl 1965.
Seinni kona Ólafs er Helga Einars-
dóttir, f. 18. desember 1953, við-
skiptafræðingur. Móðir hennar er
Þuríður Guðmundsdóttir ráðs-
kona. Börn Ólafs og Helgu eru
Davíð, f. 13. nóvember 1981, og
Kjartan, f. 12. október 1983. Systir
Ólafs er, Sigrún, f. 30. október 1955
íslenskufræðingur, gift Helga Guð-
mundssyni dósent.
Foreldrar Ólafs eru Daviö Ólafs-
son seðlabankastjóri og kona hans,
Ágústa Gísladóttir. Föðurbróðir
Ólafs er Gísli ritstjóri, faðir Ólafs
listmálara. Faðir Davíðs var Ólaf-
ur, framkvæmdastjóri í Viðey,
bróðir Magnúsar skrifstofustjóra,
fóður Gísla píanóleikara. Ólafur
var sonur Gísla, b. á Búðum í Fá-
skrúðsfirði, bróður Önnu, ömmu
Margrétar Þorsteinsdóttur kjóla-
meistara. Gísli var sonur Högna,
járnsmiðs á Skriðu í Breiðdal,
bróður Kristínar, langömmu Sig-
urðar Þórarinssonar jarðfræðings.
Högni var sonur Gunnlaugs, prests
á Hallormsstað, Þórðarsonar,
prests í Kirkjubæ í Tungu, Högna-
sonar, „prestaföður" prests á
Breiðabólstað í Fljótshlíð Sigurðs-
sonar. Móðir Högna var Ingibjörg
Brynjólfsdóttir, systir Rósu,
langömmu Páls, föður Sigurðar,
rithöfundar og Þorsteins, afa Her-
dísar Þorgeirsdóttur ritstjóra.
Móðir Ólafs var Þorbjörg Magnús-
dóttir, prests í Heydölum, Bergs-
sonar og konu hans, Vilborgar
Eiríksdóttur, systir Benedikts,
langafa Júlíu, móður Valgeirs Sig-
urðssonar, fræðimanns á Þingskál-
um. Móðir Gísla var Jakobína
Davíðsdóttir, framkvæmdastjóra
Pöntunarfélags Eyfirðinga, Ketils-
sonar, bróðir Kristins, föður
Hallgríms, fyrsta forstjóra SÍS og
Sigurðar, föður Aðaibjargar, for-
ystukonu í bamarverndarmálum,
móður Jónasar Haralz. Móðir Jak-
obínu var Margrét Hallgrímsdóttir
Thorlacius, b. á Hálsi í Eyjafirði,
bróður Þorsteins, afa Vilhjálms
Þór, forstjóra SÍS. Bróðir Hallgríms
var Jón Thorlacius, afl Kristjáns
Thorlacius, formanns BSRB,
Ágústa er dóttir Gísla, prests á
Mosfelli í Grímsnesi, Jónssonar, b.
á Skúmsstöðum á Eyrarbakka,
ÞórhaUasonar, bróðir Györíðar,
langömmu Jóns Helgasonar land-
búnaðarráðherra og Hjörleifs
Guttormssonar. Móðir Ágústu var
Ólafur Daviðsson.
Sigrún, systir Kjartans, afa Kjart-
ans Ragnarssonar, leikritahöfund-
ar. Ágústa var dóttir Kjartans
prests í Skógum undir Eyjafjöllum
Jónssonar, b. í Drangshlíð, Bjöms-
sonar.
Bjöm Guðmundsson
_________________Afmæli
Trausti Eyjóifsson
Björn Guðmundsson forstjóri,
Hverfisgötu 46, Reykjavík, verður
sjötíu og fimm ára á morgun. Hann
fæddist að Neðra-Núpi í Fremri-
Torfustaðahreppi í Vestur-Húna-
vatnssýslu og ólst þar upp til átta
ára aldurs er hann fluttist til
Reykjavíkur. Hann byrjaði að
starfa sem sendisveinn í Brynju
fimmtán ára að aldri, árið 1927, og
vann þar til 1933 er hann stofnaði
ásamt öörum byggingavöruversl-
unina Björn og Marinó á Laugavegi
44 og rak hana til ársins 1938. Björn
var ásamt öðram framkvæmda-
stjóri og einn af eigendum Brynju
frá 1938 en 1944-46 rak hann heild-
verslunina Guðmundur Ólafsson &
Co. ásamt félaga sínum, Guð-
mundi. Auk þess var Björn einn
af stofnendum járnvöraverslunar-
innar Málmeyjar, Laugavegi 47.
Hann hefur í mörg ár verið í stjóm
Kaupmannasamtaka íslands og í
stjóm Verslunarráös íslands og
var formaður Félags búsáhalda- og
járnvörukaupmanna í fimmtán ár.
Björn sýndi fimleika á Alþingis-
hátíðinni 1930 og hefur hlotið
gidlmerki ÍSÍ.
Kona Bjöms var Guðrún Dóra f.
4.9.1918, Úlfarsdóttir, verkamanns
í Reykjavík Ingimundarsonar og
konu hans, Margrétar Halldórs-
dóttur.
Börn Björns og Guðrúnar eru
Brynjólfur Halldór, framkvæmda-
stjóri Brynju, f. 16. 2. 1942, giftur
Rögnu Lára Ragnarsdóttur og eiga
þau þrjár dætur og Anna Margrét,
kennari og bókhaldari í Reykjavík,
f. 31.3.1948, gift Guðna Sigþórssyni
íþróttakennara og eiga þau þrjá
drengi.
Björn átti einn bróður, Brynjólf
Halldór, f. 1913 en hann lést sautján
ára að aldri.
Foreldrar Bjöms voru Guðmund-
ur Guðmundsson, verslunarmaður
í Reykjavík, og kona hans, Anna
Margrét Björnsdóttir. Foreldrar
Guömundar voru Guðmundur, b. á
Barkarstöðum í Miðfirði Sig-
mundsson og kona hans, Margrét
Jónsdóttir, b. á Bjargarstöðum í
Miðfirði Björnssonar.
Móðir Bjöms var Anna Margrét
Björnsdóttir, formanns á Akranesi
Ólafssonar, b. í Einarsnesi í Borg-
arfirði Guðmundssonar, b. á
Kalastöðum Teitssonar, vefara
Sveinssonar. Móðir Ólafs var
Björn Guðmundsson.
Ástríður, systir Þorvarðar á Kala-
stöðum, fóður Þorvarðar prent-
smiðjustjóra. Ástríður var dóttir
Ólafs, b. og skipasmiðs á Kalastöð-
um Péturssonar. Móðir Önnu
Margrétar var Ástríður Guð-
mundsdóttir, b. á Krossi á Akranesi
Guðmundssonar, bróður Ólafs í
Einarsnesi. Móðir Ástríöar var
Anna Margrét Bjarnadóttir, b. á
Kjaransstöðum Brynjólfssonar, b.
á Ytra-Hólmi Teitssonar, bróður
Guðmundar á Kalastöðum. Móðir
Önnu var Helga Ólafsdóttir Step-
hensen, b. í Galtarholti Bjömsson-
ar Stephensen, dómsmálaritara í
Hvítárvöllum, Ólafssonar Step-
hensen stiftamtmanns.
Trausti Eyjólfsson ökukennari,
Háaleitisbraut 16, Reykjavík, verð-
ur sextugur á morgun. Hann
fæddist í Reykjavík og ólst þar upp.
Foreldrar hans eru Eyjólfur Jó-
hannsson hárskeri, sem lést 1975,
og Þórunn Jónsdóttir, en þau
bjuggu á Sólvallagötu 20 í Reykja-
vík.
Systkini Trausta: Helga, en hún
lést 1948, Gyða, Svava, Erla og Jó-
hann Bragi, en hann lést 1977.
Trausti ólst upp í vesturbænum
og gekk ungur að áram í KR þar
sem hann lagði stund á frjálsar
íþróttir og þá einkum hlaupagrein-
ar. Trausti var einn af íslenskum
þátttakendum á ólympíuleikunum
í London 1948. Trausti nam hár-
skeraiðn og starfaði viö þaö fag í
u.þ.b. fjörutíu ár, lengst af með fóö-
ur sínum að Bankastræti 12.
Trausti fór að stunda ökukennslu
upp úr 1960 og hefur frá 1984 starf-
að eingöngu viö hana.
Trausti hefur um árabil verið
virkur félagi í Kiwanisklúbbnum
Kötlu í Reykjavík og var hann for-
seti klúbbsins starfsárið 1980-1981.
Trausti kvæntist 23.12. 1951,
Grétu Finnbogadóttur, f. 31.3.1929,
frá Vallatúni í Vestmannaeyjum.
Trausti Eyjólfsson.
Börn þeirra eru: Þórunn Helga
kennari, f. 1952, gift Stefáni Má
Halldórssyni og eiga þau þrjú börn;
Gunnar Albert trésmiður, f. 1955,
kvæntur Ástu Birnu Stefánsdóttur
og eiga þau eitt barn; Ólafur Ámi
kennari, f. 1959, kvæntur Guðrúnu
Ernu Gunnarsdóttur og eiga þau
eitt barn; Jón Grétar trésmíða-
nemi, f. 1963 en sambýliskona hans
er Hera Ármannsdóttir; og Ses-
selja, nemi, f. 1965.
Trausti verður að heiman á af-
mælisdaginn.
90 ára_______________________
Hermann Jónsson, Vesturbraut 24,
Hafnarfirði, er níræður á morgun.
80 ára_____________________
Sigríður Pétursdóttir, Ásavegi 7,
Vestmannaeyjum, er áttræð á
morgun.
Jóhannes G. Jóhannesson, Mána-
götu 6, Reykjavík, er áttræður á
morgun.
75 ára
Steingrímur Friðlaugsson, Ytri-
Miðhlíð, Barðastrandarhreppi, er
sjötíu og fimm ára á morgun.
Þorgerður Björnsdóttir, Hólmgarði
6, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára
á morgun.
70 ára
Helga Daníelsdóttir, Aöalgötu 8
Blönduósi, er sjötug á morgun.
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
Opií) til k/. 21 óll kvöld
£>lóm
wQskæ)1ingar
Laugauegi 53. simi 20266
Sendum um land allt
Sigríður Guðmundsdóttir, Laugat-
úni 19C, Svalbarðsstrandarhreppi,
er sjötug á morgun.
Ragnhildur Bótólfsdóttir, Selás-
bletti 6, Reykjavík, er sjötug í dag.
Jakob Maríus Sölvason, Sólvalla-
götu 40, Reykjavík, er sjötugur í
dag.
Gísli Jónsson, Víðivöllum, Akra-
hreppi, er sjötugur í dag.
60 ára
Jóhanna Sæmundsdóttir, Túngötu
24, Bessastaðahreppi, er sextug í
dag.
Guðjón Reynisson, Fagrabæ 8,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Ingibjörg Stefánsdóttir, Háaleitis-
braut 109, Reykjavík, er sextug á
morgun.
Jón F. Jónsson, Njálsgötu 8B,
Reykjavík, er sextugur á morgun.
Ármann Antonsson, Hólavegi 24,
Sauðárkróki, er sextugur á morg-
un.
Kristín Kolbeinsdóttir, Sundstræti
37, ísafirði, er sextug á morgun.
Tómas Einarsson, Leifsgötu 4,
Reykjavík, er sextugur á morgun.
50 ára
Þórunn Marín Þorsteinsdóttir,
Langarnesvegi 39, Þórshafnar-
hreppi, er fimmtug á morgun.
Ásgeir Sigurðsson skipasmiður,
Urðarvegi 60, ísafirði, er fimmtug-
ur í dag.
Garðar Sigurðsson, Bergþóragötu
31, Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Hekla Ragnarsdóttir, Suðurbyggð
2, Akureyri, er fimmtug á morgun.
40 ára
Ágúst I. Ágústsson, Hafraholti 16,
ísafirði, er fertugur á morgun.
Hörður Davíðsson, Efri-Vík,
Kirkjubæjarhreppi, er fertugur á
morgun.
Grétar Ástvald Árnason, Birkihlíö,
Þorkelshólshreppi, er fertugur á
morgun.
Þröstur Eyjólfsson, Möðrufelh 5,
Reykjavík, er fertugur á morgun.
Ingileif ögmundsdóttir, Skaftahlíð
33, Reykjavík, er fertug á morgun.
Petrína Pétursdóttir, Þórufelli 12,
Reykjavík, er fertug í dag.
Andlát
SísíTryggvadóttir,ráðgjafiaðSogni, Sigurður Sigfússon andaðist í
lést í Landspítalanum 19. nóvemb- sjúkradeild Vopnafjarðar 19. nóv-
er. ember.
Magnfiíður Sigurbjömsdóttir >
Magnfríður Sigurbjörnsdóttir
húsmóðir, Hofteigi 16, Reykjavík,
verður áttræð á morgun. Magnfríð-
ur fæddist á Hellnum á Snæfells-
nesi og ólst þar upp í foreldrahús-
um en fóður sinn missti hún ung
aö árum. Um sextán ára aldur fór
hún austur í Hreppa í kaupavinnu
og þaðan í vist í Hafnarfirði en
starfaöi síðan á saumastofu í
Reykjavík.
Magnfríður giftist 1934 Tryggva
Bjarna sjómanni, Kristjánssyni, f.
2.9.1900, en hann lést 1964. Magn-
fríður og Tryggvi Bjarni bjuggu
lengi á Vesturgötunni í Reykjavík
en 1947 flpttu þau inn á Hofteig þar
sem Magnfríður býr enn.
Starfsmenn DV senda Magnfríði
hugheilar afmæliskveðjur en hún
er eldri starfsmönnum blaðsins aö
góöu kunn enda lagaði hún kaffi
hjá dagblaðinu Vísi frá 1964 og síð-
an hjá Blaðap'renti til ársins 1982.
Dóttir Magnfríðar og Tryggva
Bjarna: Sveinsína Tryggvadóttir,
ráðgjafi á Sogni hjá SÁA, f. 30.11.
1935, en hún lést 19. þ.m. Börn
Sveinsínu eru: Lára Stefánsdóttir,
forritari hjá Tölvölum hf., f. 9.3.
1957, gift Gísla Gíslasyni, fram-
kvæmdastjóra i Reykjavík, en þau
eiga tvö böm; Fríður Birna Stef-
ánsdóttir, sölumaður í Reykjavík,
f.4.10. 1960, gift Óskari Jónssyni
blikksmíðameistara, en þau eiga
tvö böm; Jóhann Gunnar, f. 21.4.
1964, er sölustjóri hjá Olís en hann
á eitt barn og býr í Reykjavík.
Sambýlismaður Magnfríðar um
Magnfriður Sigurbjörnsdóttir.
tuttugu ára skeið, eftir að hún
missti Tryggva Bjama, var Guð-
mundur Sæmundsson, sjómaður
frá Hólmavík, en hann lést 1985.
Magnfríður átti íjögur systkini
en einn bróðir hennar dó ungur og
systir hennar er látin fyrir nokkr-
um árum.
Foreldrar Magnfríðar voru Sig-
urbjörn, útgerðarbóndi á Hellnum,
Friðriksson og kona hans, Jakob-
ína Þorvarðardótir.