Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987.
11
Anna Dóra Guðmundsdóttir og Sæunn Erlingsdóttir voru búnar að gera
góð kaup í Glasgow að eigin sögn. Labbið er þreytandi og þær vom dauð- •
uppgefnar stelpurnar að kvöldinu þegar blaðamaður DV ræddi við þær.
„Frábært að
versla hér“
Þær Sæunn Erlingsdóttir og Anna
Dóra Guðmundsdóttir fóru í fjögurra
daga ferð til Glasgow einungis til að
versla fyrir fjölskyldur sínar. Þær
sögðust ekki hafa komið áður en
heyrt frá öðrum hversu hagstætt
væri að fara í slíka innkaupaferð.
Þær voru búnar aö ganga á milli
verslana í Glasgow og einnig
skruppu þær til Edinborgar og sögðu
ekki verra að versla þar. „Það er
mjög gott að versla hér og við höfum
gert góð kaupsögðu þær. „Sérstak-
lega er hagstætt að versla á börn, t.d.
í Mothercare er rosalega ódýrt. Við
ætlum að reyna að kaupa líka allar
jólagjaíir því við sjáum að það borgar
sig fyrir okkur.“ Ekki sögðust þær
hafa fundið mikið á sig sjálfar. „Læt-
ur maður ekki hina alltaf ganga
fyrir.“
Þær fóru þó ekki allslausar heim
því Sæunn keypti sér leðurjakka og
Anna fór einnig í nýjum fötum heim.
Hún sagðist hafa fundið verslun með
mjög fallegum barnafatnaði og ódýr-
um. „Eg keypti tvo pífukjóla á dóttur
mína á fjögur pund hvorn en ég var
búin að sjá svipaða kjóla heima á
fimm þúsund krónur."
- Hvar verslið þið helst?
„Það er mjög misjafn fatnaður hér
í búðunum. Stóru magasínverslan-
irnar eru meira fyrir eldri konur og
börn en við höfum farið í tískubúðir
fýrir okkur. Til dæmis Top Shop þar
sem munar helmingi ef ekki meira á
fatnaði og heima. Við fáum buxur
hér á eitt þúsund krónur og dýrastar
á átján hundruð. Einnig munar mjög
miklu á leikföngum og við ráðleggj-
um fólki að kaupa þau hérsögðu
þær.
- Vitið þið hvað þið hafið verslað
fyrir mikið?
„Nei, við höfum ekki tekið það
saman,“ svöruðu þær og Anna bætti
við að systir hennar hefði farið til
Glasgow í september og gert svo góð
kaup að Anna stóðst ekki freisting-
una og fór líka.
-ELA
„Ætlum að kaupajólafót og gjafir“
Nína Guðmundsdóttir er frá
Reykjavík eins og hinir viðmælendur
DV. Hún kom í ferðina ásamt eigin-
manni sínum og systur. Nína sagðist
ekki hafa komið áður til Glasgow.
„Ég kom til að sjá hvað aðrir væru
að gera hér. Ég hef heyrt að það sé
gaman aö versla hér. Það sem ég hef
séð sýnist mér vera mjög ódýrt og
ég reikna með að hægt sé að gera góð
kaup. Ég hef hugsað mér að kaupa á
börnin og eitthvað af jólagjöfum."
Eiginmaður Nínu, Grétar Júlíus-
son, sagði að honum þætti ekki
skemmtilegt að ganga milli verslana
en ætlaði engu að síður að láta sig
hafa það í þetta skiptið. Þau sögðust
aldrei fyrr hafa farið í verslunarferð,
hvorki til Glasgow né London. „Við
höfum verið í Kaupmannahöfn og
það er miklu ódýrara hér en þar.“
Þau keyptu vikuferð, töldu sig ekki
geta verið styttri tíma þar sem þau
væru ókunnug í borginni. „Maður
verður að átta sig á umhverfmu"
-ELA
Nína Guðmundsdóttir ætlaði að vera í viku og versla fyrir jólin í Glasgow.
GRAFARVOGUR
Sundakaffi opnar útibú í
Grafarvogi laugardaginn 21. nóvember kl. 7.00
Við bjóðum upp á meðal annars: * Heimilismat í hádeginu
Hamborgara og franskar * Grillaðar samlokur * • '
Kaldar samlokur *
Heitar pylsur Glæsilega*kaffiteríu
Opið alla virka daga frá kl. 7.00-20.30.
Laugardaga frá kl. 7.00-18.00.
Sunnudaga frá kl. 9.00-18.00.
SUNDAKAFFI
v/Dyrhamra, Grafarvogi
W»*£S'*«‘i’***
Wétetum
HARSNYRTISTOFAN
GREIFIM
HRINGBRAUT 119 «22077
ATH! Noregsmeistarinn Kaare Nielsen kynnir þessa nýju hártoppa 28. og 29. nóvember. Tímapantanir.