Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987. Fréttir Jarðgöng í Olafsfjarðarmúla: <ki hagkvæmur vegur sam- kvæmt arðsemÉsútreikningum Samþykkt hefur verið að hefja gerð jarðganga í Ólafsfjarðarmúla og er áætlað að verja til þess 530 milljónum króna en göngin verða 3 km á lengd. Þessi tala byggir á grófri kostnaðaráætlun sem var gerð síðasta vor. Endanleg kostn- aðaráætiun liggur fyrir næsta vor, 1988, þegar verkið verður boðið út. Má búast við að hún boði verulega hækkun. Samkvæmt mælingum frá 1981-85 fara um 160 bílar á dag um þennan veg. Jarðgöngin, sem eiga að vera komin í notkun 1991, munu leysa af hólmi veg fyrir Ólafsfjarðarmúla sem hefur verið í notkun síðan 1965. Sá vegur hefur þótt erfiður yfirferðar og mörg slys hafa orðið á honum. Að meðaltali hafa orðið 2-3 slys og óhöpp á ári undanfarin 10 ár, þar á meðal fjórir látnir og nokkrir slasaðir. Ekki hagkvæmur vegur samkvæmt arðsemisreikn- ingum Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Hreini Haraldssyni, jarðfræðingi vegageröarinnar, er ákvörðun um vegalagninguna ekki byggð á arðsemissjónarmiðum. Það eru fyrst og fremst buggða- og öryggissjónarmið sem hér ráða. Þegar jarðgangagerðin var sett í arðsemisútreikninga, sem byggðu á hreinum stærðum sem nú liggja fyrir, kom í ljós að á 30 árum mun vegurinn vera búinn að gefa til baka 50% af stofnkostnaði. „Venju- lega er miðað við að vegagerð gefi 5% raunvexti á þessum árafjölda. Reyndar gefa slitlagsverk 5-15% arðsemi en það eru mjög arðsamar aðgeröir," sagði Hreinn. Samvinna við erlenda verktaka Verkið veröur boðið allt út í ein- um áfanga og má búast við að margir verktakar, bæði hér innan- lands og erlendis, verði til að bjóða í það. Vafasamt er að íslenskir verktakar bjóði einir í verkið en í því felst auk jarðganganna sjálfra vegur að göngunum og forskálar. Við Blönduvirkjun hefur verið unnið að svipuðum framkvæmd- um en þar hefur íslenskur verk- taki, Ellert Skúlason, unnið í samvinnu við erlendan verktaka og stofnað fyrirtækið Krafttak. Samkvæmt upplýsingum hjá Tryggva Jónssyni verkfræðingi hefur fyrirtækið mikinn hug á að bjóða í jarðgöngin og kvað hann tæki þau sem notuð hafa verið við Blöndu henta vel. Jarðfræðin á hreinu „Það er búið að kanna flest það sem lýtur að jarðfræði ganganna og þetta lítur þokkalega út. Þetta eru ekki ósvipaðar aðstæður og við Strákagöng og Blönduvirkjun,“ sagði Hreinn. Göngin eiga að vera ein akrein og með útskotum á um 160 m millibili. Vörubílar af stærstu tegund eiga að geta farið í gegn. -SMJ Helgi Hallgrímsson aðstoðarvegamálastjori: Jarðgöng koma illa út úr arð- semismælingum „Mannvirki eins og jarðgöng eiga erfitt uppdráttar í arðsemisútreikn- ingum vegna þess að þau eru dýr og mælikvarðinn er þannig að hann tekur ekki tillit til þeirra þátta sem jarðgöngin eiga að bæta úr,“ sagði Helgi Hallgrímsson aðstoðarvega- málastjóri aðspurður um arðsemi jarðganga í Ólafsfiarðarmúla. „Það má nefna sem dæmi að veg- skálar viö Óshlíð, sem kosta tugi milljóna, geta komið ruglað út í arð- semismælingum. Dýrar fram- kvæmdir, sem tryggja vegfarendum öryggi, eiga erfitt uppdráttar í arð- semi.“ Helgi sagði að lagning bundins slit- lags væri hins vegar framkvæmd sem gæfi mikla arðsemi og þá jafnvel talað um 20-30% raunvexti á 30 ára tímabili. Ekki sagði Helgi að þessi jarðgöng skæru sig úr varðandi arð- semi því flestar hugmyndir um jarðgöng sýndu svipaðar tölur. Þó mætti nefna aö t.d. jarðgöng um Breiðadalsheiði og Botnsheiði á Vest- fiörðum, sem hafa verið töluvert til umfiöllunar, gefa um 50-60% til baka af stofnkostnaði á 30 árum á meðan jarðgöngin í Ólafsfiarðarmúla gefa 47% til baka. Ef tekið er dæmi af brúarmann- virkjum nefndi Helgi brýr á Vatns- dalsá og Straumfiarðará sem ná ekki að skila stofnkostnaði á 20 árum sem er hinn venjulegi afskriftatími fyrir almenn mannvirki. Varðandi jarð- göng er þessi tími 30 ár. -SMJ Jarðgöng í Olafsfjarðarmúla: Fowal auglýst í næstu viku Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þetta mál stendur þannig hjá okk- ur að við munum strax um næstu helgi auglýsa í blöðum forval vegna þessa verks,“ sagði Jón Birgir Jóns- son, yfirverkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins, er DV spurði hann hver væri staða undirbúningsvinnu hjá Vegagerðinni vegna fyrirhugaðrar jarðgangagerðar í Ólafsfiarðarmúla. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í vikunni að jarðgangagerð í Ólafsfiarðarmúlanum skyldi hafin á næsta vori. Þá á að vinna fyrir um 90 milljónir króna. Jón Birgir Jónsson sagði að venjan væri að viðhaía slíkt forval þegar um meiri háttar verkefni væri að ræða og sérhæföa vinnu. „Ef það væri ekki gert myndum við fá mjög mikinn fiölda tilboða og jafnvel frá fyrirtækj- um sem ekki eru í stakk búin til að vinna vérkið," sagði Jón Birgir. Forvalinu á að vera lokið um miðj- an janúar. Þá tekur Vegagerð ríkis- ins ákvörðun um hvaða aðilum verða send útboðsgögn og gefur tæki- færi á að bjóða í verkið. I beinu framhaldi af því er svo áætlað að samningum við verktaka verði lokið næsta vor og framkvæmdir hefiist þá þegar. Ekkert íslenskt fyrirtæki hefur yfir að ráða þeim tækjabúnaði sem þarf til að vinna slíkt verk sem þessi jarð- gangagerð er. Því má telja víst að þeir aðilar sem gera tilboð muni verða erlendir, en í samvinnu við íslensk fyrirtæki. Talsvert er rætt um norska fyrirtækiö Jernbeton, sem vann við jarðgangagerð við Blönduvirkjun, í þessu sambandi. Það fyrirtæki er enn með tæki sín við Blöndu og er talið að það tengist væntanlegu útboði á göngunum í Ólafsfiarðarmúla. Ellert Skúlason í Keflavík var sam- starfsaðili norska fyrirtækisins við Blöndu og var fyrirtækið Krafttak stofnað í því sambandi. Ólafsfirðingar eru í sjöunda himni vegna þess að ríkisstjórnin hefur ákveðið að ráðist verði í verkið næsta vor en nokkurrar óvissu hafði gætt varðandi það. JARÐGÖNG undir Ólafsfjardarmúla Jarðgöngin verða alls 3100 metra löng og klædd að innan. ____________________________ ÓLAFSFJARÐARMÚLI 900 m.y.s. núverandi vegur' ' væntanlegt vegarstædi' Múlakolla Tófugjá Jarðgöng ÓLAFSFJÖRÐUR DV-kort: JRJ Ólafsfjörður Eyjafjörður Vegalengd ...'■■■■■■' 'pa 1000 2000 ...I " 3000 m JARÐGÖNGIN (Þversnid) 0^0,5 1,5 2,5 Km Á þessum kortum eru fyrirhuguð jarðgöng undir Ólafsfjarðarrnúla sýnd. Göngin verða alls 3100 metrar að lengd og klædd að innan. Hæð þeirra er 5,2 metrar en breidd vegarins í göngunum 3,5 metrar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.