Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 12
12 Polaroid - Myndavél og vasadiskó LAUGARDAGUR 21. NÖVEMBER 1987. Sælkerinn SAMAN í PAKKA á aðeins kr. 3.350,- Vasadiskóið er eitt hið minnsta á markaðinum. Cr02 metal. Polaroid er hrókur alls fagnaöar. iininiiimmmim] LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF Lauqaveqi 178 - Sími 685811 nimiiirtmnmMmnn Myndavélin er með innbyggt eilífðarflass. Rafhlaðan er í filmupakkanum. Sem sagt, filman í,og myndavélin er tilbúin. FATAFELLUGLÖS Símapantanir einnig um helgar Þegar ís er settur í glösin afklæðast stúlkurnar, sem glösin prýða, öllum til mikillar ánægju. Þegar ísinn bráðnar fara þær aftur í fötin. Ómissandi á gleðistundum. ATH. Þvoið glösin úr volgu vatni en ekki heitu. Aðeins kr. settið. Pöntunarsímar 91-651414 og 623535 Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00 Póstverslunin Príma, Box 63, 222 Hafnarfirði Fótóhúsið, Bankastræti, sími 91-21556 Opið kl. 10-18, laugard. 10-14. S VISA S EUROCARD Avocado heitir lárpera á íslensku og er það ágætis nafn. Bragðmikill forréttur Lárpera með greip- aldini og kavíar Avocado mun víst heita lárpera á íslensku. Þessi réttur er sérlega frískandi og bragðgóður, að auki er fljótlegt að búa hann til. Fljótt á litið virðist þurfa mikið af ávöxtum í þennan forrétt en ykkur er óhætt að treysta uppskriftinni. í réttinn þarf: 4 lárperur (avocado) 5 greipaldin 5 msk. kavíar hvítan pipar. Byrjið á því að skræla avocadoin og leggja í skál. Kreistið safann úr 2 greipaldinum yfir. Kjötið er svo skor- ið úr greipinu og allar himnur fjar- lægðar úr ávaxtakjötinu. Lárperurn- ar (avocado) eru látnar liggja í greipsafanum í 2 tíma. Lárperumar eru nú skornar í geira og skammtað- ar á 4 diska ásamt greipkjötinu. 1 msk. kavíar er sett á hvern disk til hliöar því annars kemst litur úr kaví- arnum í ávextina. í staðinn fyrir kavíar má nota laxahrogn. Hvenær kemur bjórinn? Enn á ný er komið fram bjórfrum- varp á Alþingi. Vonandi verður það samþykkt. Frumvarpið er vel undir- búið frá hendi flutningsmanna. Skoðanakannanir hafa sýnt að meirihluti þjóðarinnar vill að hafin verði framleiðsla og sala á áfengum bjór. Skoðanakannanir sýna einnig að það er unga fólkið sem vill bjór- inn. Það er því öruggt að ef bjórfrum- varpiö verður fellt að þessu sinni mun ekki líöa langur tími þar til nýtt framvarp verður lagt fram. Hér á landi er-hægt að kaupa allar teg- undir af áfengi nema bjór. Hægt er að brugga hann hér, ferðamenn mega takgi hann með sér inn í landiö. Farmenn og flugliðar mega taka með sér bjór og töluvert af þessum bjór er selt á almennum markaði. Þá mega erlend sendiráð veita bjór. Þaö er því tiltölulega auðvelt að útvega sér hann hér á landi. Nú, svo má ekki gleyma að íslendingar eru dug- legir að ferðast og bjór er seldur í öllum þeim löndum sem íslendingar helst heimsækja. í stuttu máli eru ýmsir möguleikar til að útvega sér bjór, það eina sem ekki er hægt er að kaupa hann á venjulegan hátt eins og annað áfengi. Nútímamaðurinn lætur ekki bjóða sér svona rökleysur og höft, ekki heldur hræðsluáróður andstæðinga bjórsins. Þeir halda því fram að drykkja muni stóraukast hér á landi. Þessi áróður heldur ekki því nú þeg- ar er töluvert magn af bjór í umferð eins og áður hefur komið fram. Þá er mun betra að fólk drekki 5 prósent SæUceriim Sigmar B. Hauksson áfengan bjór en áfengi að 18-30 pró- sent styrkleika. Sem betur fer er það nú þannig að hjá velflestum fyrir- tækjum tíðkast ekki að hafa vín um hönd í vinnutíma og það er ólíklegt aö það muni breytast þó bjór veröi leyfður. Þegar hinir mörgu nýju veit- ingastaðir fengu vínveitingaleyfi spáðu bindindisfrömuöirnir því að allt myndi loga í fylliríi. Raunin varð önnur, reynslan hefur verið frábær- lega góð og er algjör undantekning að ölvaður maður sjáist inni á veit- ingahúsunum. Það yrði því mikill sigur fyrir lýðræðiö í landinu ef bjór- frumvarpið verður samþykkt á hinu háa Alþingi. Góðar síldarfréttir Eins og oft hefur komið fram hér á Sælkerasíðunni er ekki auðvelt aö fá góða síldarrétti hér á landi. Ef maður ætlar að fá góða síld þarf hún helst að vera dönsk eða sænsk. Þó eru, sem betur fer, nokkrar undantekningar. Það var því ánægjulegt að rekast á heitreykta sfid frá Seyðisfirði, sem reyndist vera einstaklega góð. Þessi síld er svipuö og hin fræga Borgund- arhólms-sfid sem margir kannst viö. Það er augljóst að hráefnið er sérlega gott enda er íslenska síldin úrvals- hráefni. Heitreyking á fiski er ævaforn aðferð. Síldin er flökuö, hengd upp og reykt við svo háan hita að fiskurinn soðnar í reyknum. Síld- ina má svo snæða á ýmsa vegu. Gott er að hafa með henni eggjahræru, piparrótarrjóma, graslauk og ýmis- legt annað góðgæti. Þá má raða síldinni í eldfast fat og raða ofan á hana fínt saxaðri, rauöri papriku, söxuðum lauk, saxaðri steinselju og harðsoðnu eggi sem er hakkað. Ofan á allt þetta eru svo settar nokkrar smjörklípur. Fatinu er svo stungið inn í 200 gráða heitan ofn og síldin bökuö með grænmetinu í 6-8 mín. Meö þessum rétti er haft ósætt sinn- ep og gróft brauð, það er fyrirtækið Reyksíld hf. á Seyðisfiröi sem fram- leiðir þessa úrvals heitreyktu síld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.