Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987. 29 Sérstæö sakamál Sabine Flötzinger. nokkra ábyrgð á dauða Sabine en þó kom fram við frekari yfirheyrslur aö Barbara hafði margsinnis hótað því að hún skyldi hefna sín á Sabine. Barbara var lágvaxin og heldur óá- sjáleg, að minnsta kosti í samanburði viö Sabine. Lögreglan gat því ekki litið framhjá þeim möguleika að Bar- bara væri sú sem bæri ábyrgð á dauða Sabine en vildi þó kanna fleiri möguleika. Sambandið á milli Sabine og Helmuts Grunurinn, sem fallið hafði á Bar- böru, varð til þess að hún var aftur tekin til yfirheyrslu. Hún neitaði sem fyrr öllum ásökunum en skýrði þó frá því að hún vissi til þess að náiö samband hefði verið á milli Sabine og Helmuts og heföi Sabine látið að því liggja að hún ætlaði að slíta sam- bandinu viö Theodor Habereder til þess jafnvel að fara að búa með Helmut. „Og þú varst svo hrifm af Helmut að þú fylltist afbrýðisemi og myrtir Sabine?“ spurði þá einn rannsóknar- lögreglumannanna. „Nei, nei,“ hrópaði hún þá. „Ég gerði það ekki en ég er viss um að Theodor gerði það.“ „Áhugaverð tilgáta,“ sagði rann- sóknarlögreglumaðurinn. „Það er greinilega tími til kominn að við ræðum aftur við hann.“ Yfirheyrslan Theodor neitaði öllum ásökunum þegar á hann var gengið. Hann gat gert grein fyrir ferðum sínum mest- an hluta dags þann 17. janúar og rannsókn á bílnum hans leiddi ekki í ljós neina blóðbletti eða annað sem gæti tengt hann við verknaðinn. Þó fundust í honum hár af Sabine og þræðisagnir úr fótum hennar en á því var auðvitaö sú skýring að hún hafði svo margoft verið í bíl hans. Þótt Theodor gæti að mestu gert grein fyrir ferðum sínum daginn sem Sabine var myrt gat hann ekki gert grein fyrir öllum ferðum sínum þennan dag. Vitað var að morðið hafði verið framið um ellefuleytið um morguninn og það var einmitt sá tími sem hann hafði enga fjarvist- arsönnun. Hann hefði því getað ekið Sabine út í skóginn og myrt hana. En hver hafði þá ástæðan verið? Rætt við Helmut Grobius Yfirheyrsla yfir Helmut Grobius leiddi í ljós að hann hafði staðið í nánu sambandi við Sabine og hafði hún haft á orði við hann að slíta sam- bandi sínu við Theodor og taka upp laust samband við Helmut en að hans sögn höfðu hvorki hann né Sabine lýst sig reiðubúin til þess að ganga í hjónaband eða trúlofast. Helmut sagði lögreglunni ennfrem- ur að Sabine hefði sagt sér að Theodor væri sjúklega afbrýðisamur og að hún vissi ekki hvemig hún ætti að losna við hann. Theodor handtekinn Næsta skref lögreglunnar var að heimsækja unga manninn sem haföi verið náinn vinur Sabine svo lengi. Eftir að yfirheyrslan yfir Theodor hófst leið ekki á löngu þar til hann fór að hágráta og sagði að hann hefði drepið einu stúlkuna sem hann hefði. nokkru sinni elskað. Theodor sagði að Sabine heföi ætl- að að snúa við sér bakinu. Hann sagðist hafa bent henni á að Helmut væri í raun ekki ástfanginn af henni, honum gengi það eitt til að fá að njóta blíðu hennar. Samband þeirra hefði reyndar fengið svo mikið á sig að tveimur mánuðum áður hefði hann reynt að fremja sjálfsmorð. Frá því segði hann fyrst nú. Hitti Sabine um morguninn Theodor sagðist hafa hitt Sabine að morgni 17. janúar er hún var á leið í skólann. Hefði hann ekið með hana út í skóginn fyrir sunnan Reg- ensburg en þangað hefðu þau oft verið búin að fara til að elskast þar í bílnum. Hann hefði haldið að stað-' urinn myndi vekja meö henni ljúfar endurminningar og hann gæti fengið hana til þess aö hætta við aö slíta sambandinu við sig og snúa sér frá Helmut Grobius. Þess í stað hefði hún hlegið að sér og þá hefði hann misst stjórn á sér. Hefði hann þá brugðið trefli sínum um háls hennar og hert að uns hann hefði haldið að hún væri látin. Skildi hana eftir í skóginum Theodor skildi hana svo eftir í skóginum en sneri aftur til bílsins til þess að sækja skólatöskuna hennar. Þegar hann kom aftur, sagði hann, var hún farin að hreyfa sig. Þá brá hann treflinum aftur um háls henn- ar. Herti hann svo að þar til hann taldi sig vissan um að nú væri hún ekki lengur á lífi. En hún fór aftur að hreyfa sig og þá sagðist hann hafa stungið hana i hálsinn og úlnliðina. Svo hefði hann tekið hana úr síð- buxunum og undirbuxunum til þess að láta líta svo út að um kynferðis- glæp hefði verið að ræða. Málið var nú upplýst og þótti lög- reglan hafa staðið sig vel því hún hafði haldið rannsókninni nær sleitulaust áfram allt frá því fyrst var til hennar leitað. Voru ekki liðnir nema tæpir tveir sólarhringar frá því Sabine Flötzinger var saknað og þar til játning Theodors Habereder lá fyrir. Níu ára fangelsi Theodor var ekki orðinn tuttugu og eins árs þegar hann framdi morð- ið. Hámarksrefsingin, sem hann gat fengið, var því tíu ár. í janúar 1985 var hann dæmdur og fékk hann þá níu ára fangelsi. LEÐUR- HVÍLDARSTÓLAR Verðið er hreint ótrúlegt! Stóll með skammeli, aðeins kr‘. 21.100 (stgr.). Opið laugardag kl. 10—16. Sunnudag kl. 14-16. fIoír[m Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði. s. 54100. BILEIGENDUR BODDIHLUTIR! Biltegund: Varahlutur: Verð: Biltegund Varahlutur: Verð MAZDA 929, árg. 1973-77 bretti 4.900 POLSKY 929, árg. 1978-81 bretti 5.800 Polonez frambretti 5.000 818, árg. 1972-- bretti 4.900 323,árg. 1977-80 bretti 4.900 frambretti 5.800 Pickup 1977-81 bretti 4.900 afturbretti 6.800 do svunta SUBARU 2.200 GMC USA Chevrolet Blazer frambretti 7.500 1600 4WD, árg. 1977-79 bretti 4.900 1973-1982 brettakantar 1600 FWD, árg. bretti 4.900 do stærri gerð 15.000 1977-79 do skyggni 6.000 do svuntur 2.300 brettakantar 1600,árg.1980-84 bretti 4.900 do minni gerð 10.000 VOLVO Ch. Blazer Jimmy 1986 brettakantar 10.000 242-2651980-83 bretti 5.500 Ch. Van 1973 — brettakantar 10.000 Lapplander brettakantar (sett) 10.000 AMC USA Volvo vörub. sólskyggni 6.500 AMC Concord bretti 8.000 F88 bretti 5.500 AMCEagle . bretti 8.000 FORD UK FORD USA Ford Esc. 1974 bretti 4.800 F. Econoline 1976-86 brettakantar 10.000 Ford Esc. 1975-80 bretti 4.900 skyggni Ford Cort/Taunus bretti 5.800 F. Econoline st. gerð 8.000 1978-79 skyggni NISSAN DATSUN F. Econoline F.Bronco 1965-77 m. gerð bretti 6.000 7.500 Datsun280C 1978-83 bretti 9.600 brettakantar Datsun 220-2801976 bretti 7.800 do stærri gerð 9.900 79 brettakantar Datsun180B 1977-80 bretti 4.900 do minni gerð 8.900 D. Cherry Pulsar bretti 4.900 Bronco I11986 brettakantar 12.000 1977-82 Bronco Rangerog brettakantar 10.000 Dats. 120Y-140Y- bretti 4.900 pickup B3101978-81 do skyggni 6.000 Nissan Patrol brettakantar 10.000 do bretti 7.500 do siisalistasett TOYOTA 7.000 CHRYSLER Dodge Dart 1974 bretti 8.000 T. LandCruiser, 1. gerð brettakantar 12.000 Dodge/Aspen T. LandCr., minni gerð brettakantar 12.000 Pl. Volaré 1976 — bretti 8.000 1986 Chrysler Baron Toyota Tercel 1979-82 bretti 4.900 D. Diplomat 1978 - - bretti .8.000 Toyota Tercel 1977-78 bretti 4.900 brettak. Toyota Carina bretti 4.900 Dodge Van 1978 — með spoiler 13.000 1970-77 do skyggni 6.000 Toyota Cressida 1977-80 bretti 5.900 JEEP Toyota Hi Lux skyggni 5.500 Gj-5 bretti, styltri gerö 5.900 do brettak., breiöir 12.000 Gj-7 bretti. lengri gerð 6.900 do brettak., mjóir 9.000 Gj-5 samstæöa traman 32.500 LADA do brettakantar, breiðir 10.000 Lada 12001972 station bretti 3.900 HONDA Lada 1300-1500 1973 bretti 4.900 Honda Accord 1981 bretti 4.900 LadaSport do trambretti brettakantar 3.900 6.800 ISUZU do Iramstykki 4.800 IsuzuTrooper bretti 7.500 DAIHATSU BENZ Charmant 1978-79 bretti 6.000 Charmant1977-78 brelti 6.000 Vörubill (húddlaus) bretti 11.000 Charmant 1977-79 Charade 1979-1983 svunta bretti 2.800 6.500 SCANIA VABIS MITSUBISHI Scania, atturbyggð bretti 30.000 Lancer1975-79 bretti 5.000 Scania brettab. f. framb. 5.000 GalanM 978-77 bretti 5.800 Scania kassi f. kojubil 5.600 Galant 1977-80 bretti 6.800 Scania hlif f. aftan Pajero brettakantar 10.000 Scania 80 framhjól. 4.800 frambretti 6.800 Scania frambretti 6.800 Scania ** sólskyggni 6.000 Póstsendum BILAPLAST Vagnhöfða 19, 110 Reykjavík, sími 688233, box 161. Póstsendum Nauðungaruppboð þriðja og síðasta, á fasteigninni Kársnesbraut 90, hluta, þingl. eigandi Árni Helgason, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 23. nóvember kl. 11.00. Upp- boðsbeiðendur eru Róbert Árni Hreiðarsson hdl., Ólafur Thoroddsen og Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi. ________________________Bæjarfógetinn i Kópavogi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.