Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987. 55 Ferðamál og eins handan fiaröarins þar sem heitir á Seleyri. Annars er fjöröurinn girtur háum hlíðum og hömrum. Frá Hesteyri hggja ýmsar góðar göngu- leiðir, m.a. til Fljótavíkur og Kjaran- svikur. Þverhníptir hamraveggir Næst komum við í Veiðileysufjörð. Hann er um 11 km langur og nokkru stærri er Hesteyrarfjörður. Milli þeirra er LásfjaU, 400-600 m hátt. Fremst er Lás, þverhníptur hamra- veggur. Byggð var nokkur í firðinum áður fyrr en lagðist af snemma á öld- inni. Þar voru jarðimar Marðareyri og Steinólfsstaðir að vestan en Steig að austan við íjöröinn. Sagnir og óljós tóttarbrot segja þó frá fleiri bæjum eþa byggingum en hér hafa verið nefndar. Fyrir botni fjarðarins er Hafnarskarð. Um það lá íjölí'arin gönguleið til Homvíkur. Hún er nú oft gengin af ferðamönnum sem leggja leið sína um þessar slóðir. Lónafjörður er austan við Veiði- leysufjörð. Hann er um 8 km langur. Nesið milli fjarðanna er hátt og þver- hnípt og endar í Kvianúpi er gengur hömmm girtur í sjó fram. Stórbýlið Kvíar var í mynni Lónafjaröar. Þar var lengst byggð í norðurhluta Jök- ulfjarða. Inn úr úr botni Lónafjarðar ganga þrír stuttir vogar, Rangali vestast, þá Miðkjós og Sópandi. Góð- ar gönguleiðir eru úr Hornvík um Rangalaskarð og ofan í Rangala og eins frá Sópanda til Barðsvíkur og Bolungavikur. Fjalhð Einbúi er á milli Miðkjósar og Sópanda. Gengur það hömrum girt í sjó fram. Loka þeir með öllu fjöruleiðinni því fæstir hafa hug eða fæmi til að kÚfa hamr- ana til að komast leiðar sinnar. Og ekki bætir þaö úr skák að upp að hömrum Einbúa liggja hyldjúp lón, 3-4 talsins. Þau eru pottlaga og það stærsta ca 400 m í þvermál. En utan við barma þeirra em sveigmynduð rif sem koma næstum upp úr á fjöru. Þegar ég fór þar um sl. sumar var smástreymt. Á fallaskiptum náði sjórinn í hné og veröur enn grynnri á stórstraumsfjöru. Lónin eru eitt af mörgum furðuverkum skaparans á þessum slóðum. Óefað hefur fjörður- inn fengið nafn sitt af þeim. Útsýni yfir stórbrotið land Þá skal komið við í Hrafnsfirði. Nesið milli fjarðanna er hátt en á- gætt yfirferðar, a.m.k. milli fjarðar- botna. þar rís Mánafell hæst, 677 m. Af því er ágætt útsýni yfir þetta stór- brotna land. í austri blasir við Drangafjökuilinn sem setur sinn svip á umhverfið. Hrafnsfjörður er um 9 km langur. Fyrir botni hans ber hæst Skarðsöxl (740 m) og Hattarfell (645 m). Sunnan við það er Skorar- heiði, lágur háls milli Hrafnsfjarðar og Furufjarðar. Þar var mjög fjölfar- in leið áður fyrr þegar menn af Austur-Ströndum fóru í viðskiptaer- indum til ísafjarðar. í Hrafnsfirði er sögusvið Fóst- bræðrasögu. Á Hrafnsfjarðareyri sunnan fjarðar bjó ekkjan Sigurfljóð en á Sviðnisstöðum á móti hinum megin bjuggu feðgarnir Ingólfur sviðinn og Þorbrandur sonur hans. Sýndu þeir ekkjunni mikinn yfir- gang. Fóstbræður, Þorgeir og Þormóður, urðu skipreika skammt frá bæ Sigurfljóðar. Tók hún á móti þeim hröktum og hressti þá við. í greiðaskyni sóttu þeir þá feðga heim og drápu. Nú er Hrafnsfjarðareyri helst þekkt fyrir að þar bjó Halla, fylgikona Fjalla-Eyvindar, og í tún- inu á Eyvindur að vera grafinn. Telja menn sig vita hvar leiði hans er. Þar er áletraður steinn með nafni hans og trékross hjá. Hér hefur verið stikl- að á stóru og mörgu sleppt sem rétt hefði verið að geta um. Ekki hefur verið minnst á Leirufjörð sem geym- ir mikla sögu en rúmsins vegna verður hún ekki sögð hér. Hafi einhver, sem þetta greinar- korn les, gælt við þá hugsun að kynnast Jökulfjörðunum ætti hann fyrr en síðar að láta þann draum rætast. Hann mun ekki sjá eftir því. Á leiö út með Rangala í Lónafirði. Fjallið Einbúi framundan. til hægri sést á norðurenda Hvanneyrarhlíðar, austan Lónafjarðar. Innihurðir Verð frá 10.630,- PARKET Ljóst og dökkt eikarparket. Góð vara. Verð frá kr. 1.595,- m2 PAiyiLL Furu- og grenipanill, ofnþurrkaður og fullpússaður. LOFTBITAR Falskir loftbitar, 8, 10 og 12 cm. Verð frá kr. 450,- Im. W ► US TRE ÁRMÚLA 38, sími 681818. Fjallið Einbúi og vogurinn Sópandi. Myndin er tekin frá Hvanneyrarhlið. SJALFSA FGREIÐSLA Allan sólarhringinn, - alla daga í ruesta Hraðbanka getur þú: 1. Tekið út reiðufé, allt að tíu þúsund krónum á dag. 2. Greitt gíróseðla t.d. orkureikninga og símareikninga, með peningum eða millifærslu af eigin reikningi. 3. og millifært af sparireikningi á tékkareikning eða öfugt. um stöðu tékkareiknings og sparireiknings. Opið allan "eð bankakort í hendi ertu kominn með lyklavöldin að hvaða afgreiðslustað Hraðbankans sem er. Hraðbankinn er sjálfsafgreiðslubanki þar sem þú sinnir algengustu bankaerindum þínum á þeim tíma sólarhringsins sem hent- ar þér best. Þú borgar ekkert aukalega því nú hefur færslugjaldið verið fellt niður. - þegar þér hentar best! Afgreiðslustaðir Hraðbankans: Landsbankinn: Hótel Loftleiðum, Borgarspítala, Breiðholti, Akureyri. Búnaðarbankinn: Austurstræti, Landspítala,Hlemmi, Kringlunni. Sparisjóðurinn í Keflavík, Sparisjóður vélstjóra, Borgartúni. Samvinnubankinn, Háaleitisbraut. Útvegsbankinn, Hafnarfirði. SPRON, Skólavörðustíg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.