Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987., 7 pv_________________________Sljómmál Davíð Oddsson borgarstjóri: Einhver mesta frelsisskerðing sveitarfélaga „Þetta gerir afgreiðslu fjárhagsá- ætlunar mikju þrengri og erfiðari en elia,“ sagði Davið Oddsson borgar- stjóri um ákvörðun félagsmálaráð- herra um að 6,7% verði innheimt í staðgreiðslukerfi til sveitarfélaga. Reykjavíkurborg hafði við undir- búning fjárhagsáætlunar miðað við 7,5% útsvar, eins og samband sveit- arfélaga lagði tií. Borgarstjóri var spurður hvort Reykjavíkurborg myndi nýta sér heimild til að leggja á hærra útsvar: „Það er erfitt fyrir mig að svara því. Það er ákvörðun borgarstjórnar. Um þetta vil ég hins vegar segja að þessi regla um að sveitarfélög geti sent skattgreiðendum bakreikning, ef innheimt útsvar er lægra en þau óska, er í raun ónothæf. Það þýðir að ríkisvaldið er í raun að ákveða útsvarsprósentuna fyrir sveitarfé- lögin sem er einhver mesta frelsis- skerðing sem þau hafa orðið fyrir,“ sagði Davíð. Hann tók þó fram að félagsmála- ráðherra hefði sagst ætla að beita sér fyrir því að þessi ákvörðun yrði færð til sveitarfélaganna. -KMU ^HÚSGÖGN í barna- og unglingaherbergið Sveitarfélög hækka almennt ekki útsvar - telur Siguigeir Sigurðsson Opið til kl. 16 í dag í öllum deildum EUOOCARD JIE KORT VISA JIS Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 „Ég óttast að þetta komi helst nið- ur á þeim sem síst skyldi, minnstu sveitarfélögunum. Það er annað en gaman ef mörg sveitarfélög lenda í greiðsluvandræðum," sagði Sigur- geir Sigurðsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, um ákvörð- un félagsmálaráðherra um að innheimt skuli 6,7% útsvar í stað- greiöslukerfi skatta á næsta ári. Sigurgeir bjóst þó við að sveitarfé- lög myndu almennt ekki notfæra sér heimild til leggja á hærra útsvar. Hann kvaðst skilja aðstöðu félags- málaráðherra. Ráðherrann hefði verið klemmdur á milli þess annars vegar að þurfa að gæta hagsmuna sveitarfélaga sem ráðherra sveitar- stjórnarmála og hins vegar sjónar- miða fjármálaráðherra sem sótt hefði sitt mál af miklu offorsi og not- að til þess nokkuð grófar aðferðir. „Við skiljum viðleitni stjórnvalda til þess að halda niðri skattbyröi og sveitarfélögin hafa aldrei látið sitt eftir liggja til að kveða niöur verð- bólgu," sagði Sigurgeir. „Sveitarfélögin tóku þátt í þjóðar- sáttinni í fyrra og gáfu eftir 10% af útsvarinu á þeim forsendum að verð- bólga yrði ekki meiri en 10% og launaþróun í landinu yrði 14-16%. Verðbólgan fór hins vegar upp í 20% og launin hækkuðu um 35-37% sem gerir það að verkum að sveitarfélög- in verða líklega með halla í árslok upp á einn milljarð króna,“ sagði formaður Sambands íslenskra sveit- arfélaga. Sem bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, sem tíðkað hefur lægra útsvar en önnur sveitarfélög, sagði Sigurgeir að ekki væri farið að ræða það ennþá hvort útsvar ætti að vera lægra. „Ákvörðun ráðherra er sennilega í svipuðum dúr og heföi orðið ofan á í okkar sveitarfélagi," sagði Sigur- geir. -KMU Vatnsendanefnd Kópavogsmanna sprakk: Settu sjálfstæðis- manninn út fýrir Viðræður bæjaryfirvalda í Kópa- vogi og borgaryfirvalda í Reykjavík um kaup borgarinnar á spildu úr Vatnsendalandi tóku nokkra vend- ingu á fimmtudag. Sjálfstæðismenn í bæjarráði Kópavogs lögðu til aö bærinn notaði forkaupsrétt sinn. Því var frestað en fulltrúi sjálfstæðis- mannáí viðræðunefndinni settur af. Richard Björgvinsson bæjarfull- trúi staðfesti að hann hefði verið settur út úr nefndinni. Hann sagði að hún hefði raunar ekki komið fram sem slík nema allra fyrst eftir að hún var skiþuð. Fulitrúar meirihluta bæjarstjórnar, sem eru Rannveig Guðmundsdóttir, formaður bæjar- ráðs, og Kristján Guðmundsson bæjarstjóri, hefðu farið með málið ásamt öðrum í meirihlutanum. Samt var Heimir Pálsson formlega skipað- ur í nefndina í gær í stað Richards, en Heimir er oddamaður Alþýöu- bandalagsins í meirihlutasamstarf- inu við Alþýðuflokkinn. Borgin samdi um þessi landakaup 7. október við Vatnsendabónda með fyrirvara um að Kópavogsbær félli frá forkaupsrétti og eignarnáms- heimild með lögum frá Alþingi. Bæjaryfirvöld í Kópavogi vildu nota tækifærið og hreinsa landamörk milli sveitarfélaganna frá Elliðaárdal og upp úr og um það snúast viðræð- umar. Þau hafa tekið sér frest ítrekað til þess að taka afstöðu til forkaupsréttar, nú síðast til 25. nóv- ember. Samkvæmt heimildum DV standa mál þannig að Reykvíkingar vilja láta ána Bugðu ráða landamörkum en Kópavogsmenn vilja láta svokall- aðan Ofanbyggðarveg, sem tengist Arnarnesvegi síðar, skera löndin. Nú mun komin upp sú hugmynd hjá meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs að bjóða Reykvíkingum að áin marki landareignir hvors aðila um sig en lögsagan skiptist um veginn. Ætlunin er að ljúka málinu af hálfu Kópavogs á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag og þá verður væntanlega úr því skorið hvort þessi 41 hektari úr Vatnsendalandi verður eign Reykjavíkur eða Kópavpgs. Kaup- verðið er 23 milljónir króna. -HERB SÝNING SJÓNTÆKJA Sífellt er unnið að þróun hjálpartækja fyrir sjónskerta og blinda. Nú gefst kostur á að njóta aðstoðar stærsta framleiðanda heims á þessu sviði. VTEK i r KALIFORNÍU Dagana 22.-24. nóvember verður haldin sýning á ýmsum tækjum fyrirtækisins í húsakynnum Sjónstöðvar íslands, Hamrahlíð 17, Reykjavík, kl. 14-18 hvern dag. Allir sem eiga við vandamál að búa vegna skertrar sjónar eru hvattir til að nota þetta einstaka tækifæri til að kynnast möguleik- um til aðstoðar. JÓN BRYNJÓLFSSON HF BOLHOLTI 6, 105 REYKJAVÍK UMBOÐSMENN FYRIR VTEK Á ÍSLANDI.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.