Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Side 13
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987. 13 Veitingahús Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús „Það er maður að skrifa upp úr matseðlinum“ Leifturárás starfsliðs „Þaö er bannað að skrifa upp úr matseðlinum,“ var sagt við hlið mér, þar sem ég sat við súpuna í Sjanghæ í hádeginu og var að skrifa niður minnisatriði úr mat- seðli, sem ég hafði fengið lánaðan. Þjónustan var mjög ákveðin, að ég skyldi ekki komast upp með moð- reyk, svo að ég sagði, til að róa manneskjuna, að þetta væri allt í lagi, hún gæti fengið matseöihnn rétt strax. Þá fór hún fram í eldhúsgætt og kallaði: „Það er maður að skrifa upp úr matseðlinum“, svo að hinir fáu gestir staðarins máttu skýrt heyra. Síðan kom hún með kokk- inn, sem virtist vera valdamaður á staðnum, og klagaði mig fyrir hon- um; Hann brosti vandræðalega og horfði á mig með ásökunarsvip, en baðst engrar afsökunar, og hvarf, þegar ég rauf þögn mína og tjáði þeim, að þau væru að spilla matar- lyst minni. Sem var laukrétt. Ekki stafaði þessi leifturárás starfsfólks á gest af því, að matseð- ilhnn væri eins konar viðskipta- leyndarmál. Hann er nákvæmlega eins og aðrir hversdagslegir mat- seðlar í vestrænum veitingahús- um, sem þykjast vera með kínverska matreiðslu. Og ekki gat tiltölulega hátt verðlag hans heldur verið leyndarmál, því að seðilhnn er birtur með verði og öllu utan á húsvegg Sjanghæs. Og loks vantaði ekki seðla handa öðrum gestum, þvi að húsið var nærri autt. Að baki árásarinnar hlýtur að hggja andrúmsloft staðarins, þar sem sjálfkrafa ræktast óbeit eða fyrirhtning á gestum. Sjálfur man ég aðeins einu sinni eftir að hafa áður orðið fyrir aðkasti starfsfólks í veitingahúsi og það var mun væg- ara en þetta. Enda er bundið í háttvisisheföum veitingarekstrar, að viðskiptavinir eru taldir sak- lausir, unz sekt þeirra er sönnuð. Skömmu síðar kom ég að kvöld- lagi í Sjanghæ og fékk eðlilegar viðtökur. Þá var stofnandi veit- ingastaðarins í eftirliti á staðnum og starfsfólk að mestu leyti annað en í hádeginu nokkrum dögum fyrr. Ógnarlangur matseðill Matseðilhnn er ógnarlangur, að vestrænum hætti Kínahúsa. Þar er fyrst ein síða með ýmsum fóstum hádegisréttum, svo og súpu og rétti' dagsins. Almenna framboðið er næst, á mörgum síðum. Það skipt- ist í ýmsar deildir eftir grundvall- arhráefnum. Matreiðsluaðferðim- ar endurtaka sig svo í sífellu milli deilda. Til dæmis er boðið upp á súrsæta sósu með nærri öllum rétt- um. Aftast em loks nokkrar síður með ýmsum samsetningi heilla máltíða fyrir hópa, til dæmis fyrir fjóra saman. Sjanghæ hefur flutzt úr kjallara upp á jarðhæð, þar sem áður var Café Gestur og einu sinni Askur. Ég hef áður sagt frá efasemdum mínum um innréttingar Gests, sem hafa haldizt að mestu leyti, þar á meðal óþæghegu og ljótu básarnir fremst í húsnæðinu. Til að sýna, að veitingastaöurinn sé kínverskur, hefur verið bætt of- an í innréttingarnar ýmsu dóti úr plasti, svo sem drekasúlum miUi salarhluta, gyUtum ferningum í lofti, rauðum skrautrenningum við í? Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. veggbrún, kínverskum ljósakrón- um og vegglömpum, svo og fleiru í slíkum dúr. Stíllinn var mun hreinlegri og betri í kjallaranum, þar sem Sjanghæ var áður tU húsa. Gólfteppið var afar óhreint í há- deginu, þótt ekkert væri vott að veðri úti, en í kvöldheimsókninni var svo skuggsýnt inni, að ég sá ekki, hvort teppið var óhreint. Á borðum eru þær efnisrýrustu þurrkur, sem ég hef komizt í tæri við, fremur óhentugar í kínversku borðhaldi. Grænt te ekki til Fyrri metnaður Sjanghæs hefur dofnað á fleiri sviðum. í einni heim- sókninni var ekki unnt að fá 'grænt te og hlýtur sá skortur að vera heimsmet eða jöfnun á heimsmeti í kínverskum veitingarekstri. Á gamla staðnum man ég eftir margs konar te. Og þar voru líka bornar fram kertaljósaplötur til að halda te heitu, en ég varð ekki var við slíkt á nýja staðnum. Hitaplöturn- ar, sem settar voru á borðið, voru ekki ætlaðar tenu og komu ekki til skjalanna fyrr en að áhðnu borð- haldi og köldu te um kvöldið og alls ekki í hádeginu. Prjónar eru fáanlegir, ef óskað er eftir. Krupuk nefnist stökkt brauð með votti af rækjubragði, sem gott er að nota sem lystauka fyrir mat. Það var frambærilegt í Sjanghæ, borið fram með miklu af súrsætri sósu rauðri, sem bar braúöiö ofurliöi. Þykk maíssúpa var undarlega sæt hveitisúpa með miklu af smábitum kjúklinga og maís. Soðin hrísgrjón, sem fylgdu öllum aðalréttum, voru rétt elduð og snarpheit. Vorrúllur staðarins voru snarp- heitar og góðar, með þunnri og stökkri skurn, bomar fram meö súrsætu sósunni, sem áður er nefnd, svo og ýmiss konar græn- meti. Steikt hrísgrjón með eggi voru vel heppnuð. Súrsætar rækj- ur, stórar og meyrar, voru bezti matur staðarins, í fylgd með anan- as úr dós. Nauta-sjopsúei var fremur seigt; hlaðið breiðum sveppahlemmum, kúlusveppum og öðru grænmeti. Kjúklingur með bambusspírum, sveppum, papriku og möndluflög- um dró í bragði einkum dám af flögunum, en var samt frambæri- legur. Lambakarrí var meyrt og gott, en rosalega kryddað. Peking- önd var betri, enda var hún í senn afar meyr og hóflega krydduð. Fjórar tegundir kínverskra ávaxta úr dósum voru á boðstólum sem eftirréttir. Guava var bezt, síð- an lichee, en mango var sæmilegt og rambuteau sízt. Leyndarmálið varðveitt í Sjanghæ kostar kvöldmáltíð með te 1.480 krónur, ef samsettu seðlarnir eru notaðir, og 1.425, ef fólk raðar sjálft saman þremur réttum. Súpa, te og einn réttur dagsins kosta í hádeginu 795 krón- ur. Eurocard er ekki tekið gilt. Á kvöldin fylgdu ágætar málshátta- kökur með reikningnum. Af tillitssemi við óupplýst leynd- armál staðarins verður hér ekkert birt úr matseðlinum aö þessu sinni. Jónas Kristjánsson - BESTU MYNDIRNAR í BÆNUM VIDEOTÆKI FRÍTT MEÐ 2. SPÓLUM 5 Q) u mm nkw k ummxi n* x am mmm tsnruiu km b EIKEÍ iíiSSTÖK ímáu tofeca m HKSTIK Mm ky STTíE ItfTl m ma m ^ imt m%m m m \m. jr. « * m ur INTERNATtONALViDEO DÆMI UM TOPPMYNDIR TOP GUN BIG TROUBLEIN LITTLE CHINA CROCODILE DUNDEE THE GOLDEN CHILD BESTSHOT HEARTBREAK RIDGE MORNING AFTER RUNNING SCEARD OVER THE TOP ALIENS STAND BY ME LEAGEL EAGLE RUTHLESS PEOPLE PEGGY SUE GOT MARRIED STJÖRNUVIDEO SNÆVARSVIDEO SOGAVEGI 216 HÖFÐATÚNI 10 SÍMI 687299 SÍMI21590

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.