Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Side 26
26
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987.
Nútímaviðtöl
Um daginn las ég auglýsingu ein-
hvers staðar sem hljóðaði þannig:
Hvað gefur þú konunni sem kveik-
ir kertaljós á síðkvöldum, nuddar
á þér bakið og geymir ennþá fyrsta
bréfið frá þér?
- Það er nú það, hugsaði ég, -
ætli væri ekki reynandi að gefa
henni E-vítamín eða harðsoðin egg,
að minnsta kosti til að byija með?
Þetta dæmi um saurugan hugs-
unarhátt nefni ég hér fólki til
viðvörunar, það er nefnilega svo
komið í þjóðfélaginu að hér er yfir-
leitt allt farið að snúast um ein-
hvers konar kynlíf nema kannski
íjárlagafrumvarpið og landsfundur
Alþýðubandaiagsins.
Háaloft
Benédikt Axelsson
í langflestum viðtölum við fólk í
blöðum og tímaritum kemur að því
fyrr eða síðar að spurt er: - Og
hvernig er svo kynlífmu háttað hjá
þér og ef viðkomandi hefur gifst
oft verður viðtalið dálitið langt en
að sama skapi spennandi því að það
er alveg einstaklega gaman að vita
hvernig þekkt fólk og valdamikið
er, að eigin sögn, í bólinu.
Viðtöl verða að vera krassandi,
annars seljast þau ekki.
Hugsum okkur til dæmis aö
blaðamaðurinn og viðmælandinn
sitji inni í stofu þess síðarnefnda
og séu að sögn blaðabannsins að
sötra hvítvín, sem er svo sem ág-
ætt í sjálfu sér að vita, og þegar
þeir séu búnir úr hálfu glasi snúi
blaðamaðurinn sér að viðmælanda
sínum og spyrji hvort bíllinn hans
sé góður í gang á morgnana.
Viðtal sem byijaði svona myndi
ekki nokkur maður nenna að lesa
og menn myndu henda blaðinu frá
sér bölvandi og lofa því að kaupa
þetta helvíti aldrei aftur.
Ef áðurnefndur blaðamaður
hefði hins vegar spurt viðmælanda
sinn hvemig honum hefði gengið
að koma konunum sínum í gang á
kvöldin hefði málið horft öðruvísi
við og blaöið trúlega selst upp á
stundinni.
Svo er okkur sagt að þetta sé nú
það sem við viljum lesa, það séu
allir hættir að lesa íslendingasög-
urnar og Dalalíf, og með þessu sé
eingöngu verið að koma til móts
við markaðinn og allt er þetta sam-
kvæmt vísindalegum niðurstöðum
könnunar einhverrar stofnunar úti
í bæ sem hefur sérhæft sig í aö
hringja í fólk.
Markaðurinn
Auðvitað er það af hinu góða að
einhver skuli vita hvað maður vill
helst lesa úr því að maður veit það
ekki sjálfur og það er líka gott að
útvarpsstöðvamar skuli vita hvaða
plötu maður vill hlusta á allan
guðslangan sólarhringinn því að
þá þurfa þær ekki að vera að hafa
fyrir þvi að skipta um plötu og
stjórnendur þáttanna geta því ein-
beitt sér betur að því aö segja okkur
hvað klukkan er og hvenær von er
á flugvélinni frá Glasgow.
Hins vegar finnst mér einhvem
veginn að þaö hljóti að vera leiðin-
legt fyrir maka og böm að lesa
kynlífsviðtölin því að hingað til
hefur þetta yfirleitt verið talið til
einkamála og flestir litið svo á að
síkt ætti einungis heima innan
veggja svefnherbergisins.
- Kannski er maður bara orðinn
svona gamaldags, hugsaði ég um
daginn og spurði því konuna mína
hvernig henni litist á ef ég færi að
lýsa mínu kynlífi í viðtali í ein-
hverju blaði.
- Það yrði að minnsta kosti stutt,
svaraði konan mín en hafði ekki
skoðun á málinu að öðru leyti.
Kveðja
Ben.Ax.
Finnurðu
átta breytingar?
70
Þessar tvær myndir sýnast í íljótu bragöi eins. En á neðri
myndinni hafa falliö burt hlutar af myndinni eöa þeir
breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt aö finna
þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa
þetta trúum viö því aö allt komi þetta aö lokum.
Merkið meö hring eða krossi, þar sem breytingarnar eru,
og sendiö okkur neöri myndina. Skilafrestur er tíu dagar.
Að þeim tíma liðnum drögum viö úr réttum lausnum og
veitum þrenn verðlaun, öll frá versluninni Japis, Brautar-
holti 2. Þau eru Supertech ferðatæki (verömæti 3.860,-), LED
útvarpsvekjari (verðmæti 2.350,-) og Supertech útvarpstæki
(verðmæti 1.365,-).
I öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu
en ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkið umslagið:
„Átta breytingar- 70, c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík.
Verðlaunahafar 68. gátu reyndust vera: Sigmar Hávarðar-
son, Hólagötu 19, 900 Vestmannaeyjar (ferðatæki); Svan-
hildur Jónsdóttir, Víkurtúni 16,510 Hólmavík (útvarpsvekj-
ari); Dagný Hrund Ámadóttir, Fögrubrekku 36, 200
Kópavogur (útvarpstæki).
Vinningarnir verða sendir heim.
NAFN ........
HEIMILISFANG
PÓSTNÚMER ..