Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1987, Side 41
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987.
53
Endurbætur og uppbygging
í hugum margra hefur þessi iðnaö-
arborg verið huhn kolareyk og
mengun. Fyrir áratug eða svo var
þessi borg alls ekki 1 hópi þeirra
glæsilegustu í Évrópu en hún siglir
með hraðbyr í það því markvisst er
unnið að endurbótum og uppbygg-
ingu í borginni. Borgaryfirvöld og
einstaklingar hafa lagst á eitt um að
gera borgina fegurri, rífa gömul hús
og byggja ný og endurbyggja önnur
gömul hús. Þar, sem og víða annars
staðar í borgum Evrópu, virðist vera
hægt að lagfæra gamlar byggingar
og byggja nýjar við hlið þeirra gömlu
átakalaust og ekki annað aö sjá en
að gamli og nýi tíminn „harmoneri"
vel saman. Gífurlegt átak hefur veriö
gert af hálfu yfirvalda til aö laða
ferðamenn tii borgarinnar og hefur
það átak skilað miklu.
Nýbyggð er sýninga- og ráðstefnu-
höllin „Scottish Exhibition and
Conference Centre“ sem dregur til
sín sýningar og ráðstefnur. Þar er
hægt að halda ráðstefnur og fundi,
tónleika og íþróttaviðburði í fimm
mismunandi stórum sölum.
í stærsta salnum héldu Simple
Minds tónleika nýlega og voru tíu
þúsund manns viðstödd. Tina Turn-
er hélt tónleika þama á þessu ári að
viðstöddum álíka íjölda. Og á sýning-
arsvæðinu er verið að byggja nítján
hæða hótel, The Fomm Hotel, sem
verður tekið í notkun á næsta ári.
Sýningahöllin stendur við ána Clyde
og á árbakkanum gegnt sýninga-
svæðinu veröur Glasgow Garden
Festival haldin á næsta ári og er
áætlað að sú sýning laði til sín þús-
undir. Mikill undirbúningur er fyrir'
þá sýningu, reist hafa verið gróður-
hús og þúsundir plantna hafa verið
gróöursettar.
Sá hugur, sem hefur verið í borg-
arbúum við endurreisn Glasgow, er
eflaust af ýmsum toga, til dæmis til
betra efnahagslífs, en eitt atriði má
telja fullvist að skipti miklu máU.
Borgin hefur verið tilnefnd menning-
arborg Evrópu árið 1990 og að því
marki hefur verið unnið sleitulaust
í nokkur ár að borgin standi undir
nafni og verði í stakk búin til að taka
á móti auknum ferðamannastraumi
sem þessari útnefningu fylgir.
Einkenni íbúanna
Flug frá KeflavíkurflugveUi til
RenfrewflugvaUar í Glasgow tekur
aöeins um tvær klukkustundir og í
boði eru hjá ferðaskrifstofunum
vikuferðir fyrir rúmar tuttugu þús-
und krónur (frá kr. 21.700-26.900) og
helgarferðir frá tæpum sextán þús-
und krónum. Það er því ekki óeðU-
legt að sUkar ferðir freisti vinnu-
glaðra íslendinga sem geta notið
þjónustu á góðum hótelum og um
leið „gert góð kaup“ sem allt að því
borga ferðina upp þegar þannig er
Utið á dæmið. En við ætlum ekki hér
í ferðamáladálki DV að líta á Glas-
gow sem verslunarborg, það er gert
á öðrum stað í þessu laugardags-
blaði, heldur ætlum viö að Uta á
aðrar hUðar borgarinnar og einnig
að huga að því sem er í næsta ná-
grenni við hana.
Sagt er um Glasgowbúa, sem eru
rúm miiljón talsins, að þeir hafi
þrennt til að bera: séu vitrir, fyndnir
og hlýir og að þessi blanda geri þá
aUsérstaka. Þeir eru góðir heim að
sækja en gestkomandi fær það á til-
finninguna að það sé samstillt átak
allra að taka vel á móti ferðalöngum.
Testofa yfir verslun
Til að fá góða yfirsýn yfir borgina
er ráðlegt að fara upp í Háskólaturn-
inn. í háskólahverfmu er Museum &
Art GaUery í Kelvingrove-garðinum
en þaö Ustasafn var opnað árið 1902.
í forsal safnsins eru haldnir tónleik-
ar á sunnudagsmorgnum en þar er
orgel eitt mikiö og hljómburður góð-
ur. Þar er sögusafn Skota, vopn frá
bronsöld og verk eldri og yngri
meistara. Skotar sýna víöa verk arki-
tektsins Charles Rennie Mackintosh
og sjá má. verk eftir hann á þessu
Ustasafni. Annars er sérstök álma í
Hunteriansafninu, sem einnig er á
háskólasvæðinu, tileinkuð Mackin-
tosh. í Ustaskóla borgarinnar má sjá
handbragð listamannsins, svo sem
húsgögn o.fl. Og fyrst minnst er á
Mackintosh ættu áhugamenn um list
hans og verk ekki aö láta hjá líöa aö
fá sér tesopa í lítilli testofu við
Sauchiehallgötu (nr. 217) sem er að-
alverslunargata borgarinnar. í te-
stofunni eru Mackintosh-húsgögn og
-innréttingar. Testofan er á annarri
hæð og þarf að ganga í gegnum versl-
im, sem er á götuhæðinni, til að
komast í tesopann. Fleira minnir á
Mackintosh, t.d. Queens Cross-kirkj-
an.
Ráðhúsið við
hjarta borgarinnar
Frá háskólahverfinu Uggur leiðin í
hjarta borgarinnar sem er George
Square. Viö það torg stendur ráðhús
borgarinnar sem er glæsileg bygging
og þess virði að skoða hana. Við það
torg eru aðrar merkar byggingar, t.d.
pósthúsið og styttur af merkisfólki.
Iðandi mannlíf er á Georgetorgi allan
ársins hring. Á sumrin er blóm-
skrúðið mikiö og fjölbreytt og ljósa-
skreytingamar við torgið í desember
eru víðfrægar. Verslunargötur eru í
nálægð torgsins og má nefna Buch-
anan Street sem ásamt Sauchiehall
Street og Bath Street eru götur sem
ferðalangar í verslunarleiðangri
leggja leið sína um. í Bath Street eru
margar fornminjaverslanir.
Burrellsafnið
Það getur varla nokkur maður yfir-
gefið Glasgowborg kinnroðalaust ef
hann hefur látið hjá líða að skoða
Burrellsafnið. Sagt er að safnið sé sá
staður í borginni sem flestir sækja
heim og á fyrsta ári kom þangaö
rúmlega ein milljón gesta.
Víst er að safnið er stórmerkilegt.
Forsaga þess er merkileg, byggingin
stórkostleg og siðast en ekki síst eru
þeir munir, sem þar eru sýndir, ein-
stakir. Þetta merkilega safn var
opnað af Bretadrottningu árið 1983.
Aðgangseyrir að safninu er enginn
og auðvelt er að komast þangað rneð
strætisvagni eða lest (u.þ.b. tíu mín-
útna akstur í leigubíl).
William Burrell sá, sem safnið er
kennt við, gaf borgaryfirvöldum í
Glasgow safnmuni, um átta þúsund
talsins, árið 1944. Gjöfmni fylgdi að
byggt yrði yfir munina, helst í ákveð-
inni fjarlægð frá borgarkjarnanum,
m.a. vegna mengunar. Burrell var
fæddur í Glasgow árið 1861 en dó
1958 og kona hans dó þremur árum
síðar. Þaö var ekki fyrr en 1967 sem
staðsetning var ákveðin en þá fengu
borgaryfirvöld að gjöf PoUock-land-
areignina rétt utan við Glasgow. Þar
er Pollocksafnið sem er einnig skoö-
unarvert. Burrellsafniö var lengi í
byggingu en síðan hafa milljónir lagt
leið sína þangað. Arkitekt safnhúss-
ins hefur verið verðlaunaður (Barry
Gasson heitir hann) fyrir hönnun
hússins. Safnið hefur hlotiö ótal
verðlaun á þessum fiórum árum sem
liðin eru frá opnun þess.
Safnmunir BurreUhjónanna eru
ótrúlega fiölbreyttir. Það eru mál-
verk, höggmyndir, tréskurður,
steind glerlistaverk, blúndur og hús-
göng hvaðanæva úr heiminum og frá
löngu Uðnum tímum í bland við nú-
tímaverk. BurreU var aðeins fiórtán
ára gamaU er hann hóf störf við fy rir-
tæki fiölskyldunnar sem var skipa-
smíðastöð. Um fertugt var hann
orðin sterkríkur maður og sigldi um
öU heimsins höf og leitaði uppi Ust-
muni. Hann safnaöi öllum þessum
munum sjálfur og flutti til Glasgow.
Ópera og leikhús
Menningarlífið er með miklum
blóma í Glasgow og borgarbúar eru
stoltir yfir Óperunni, leikhúsunum,
hljómsveitum og ballet borgarinnar.
Sá sem hyggst sækja á þau mið fær
örugglega eitthvað við haéfi því frám-
boð er fiölbreytt
Matsölustaðir eru margir og fiöl-
breyttir, margir með austurlensku
yfirbragði. Einn matsölustaður, sem
hiklaust er hægt að mæla með, heitir
Ambassador og státar staðurinn af
því að yfirkokkurinn er Spánveiji.
Skosku krámar eru víða og mismun-
andi. Það er ódýr og góður matur sem
framreiddur er á kránum í hádeginu,
matur sem einkennist af siðum þjóð-
arinnar. Sem dæmi má nefna haggis
sem er hakkaður innmatur og bragð-
ast álíka og slátur. Ein dæmigerð
skosk krá er við Waterloogötu og
heitir Admiral. Andrúmið og matur-
inn þar ber af öðrum álíka stöðum.
Kaffihúsastemning er í Glasgow sem
þreyttir ferðalangar í verslunarleið-
angri ættu að gefa sér tíma til að
ifióta.
Ferðamál
Margir kastalar eru í nágrenni borgarinnar og fyrir áhugamenn er um mjög auðugan garð að gresja i Skotlandi.
Hér er kastali við Loch Lomond-vatn og er hann hótel.
Úr nýju sýninga- og ráðstefnuhöllinni í Glasgow, „The Scottish Exhibition
and Conference Centre.
Nágrenni borgarinnar
Borgin hefur upp á margt að bjóða
en fleira veröur ekki tíundað hér.
Áhugasamur ferðalangur leitar
þangað sem hugurinn fer. En vart
verður skilið viö þessa skosku borg
svo ekki sé minnst aðeins á ferða-
möguleikana í nágrenninu. Þá skal
fyrst telja höfuðborg Skotlands, Ed-
inborg, sem er aðeins í rúmlega eitt
hundrað kílómetra fiarlægö. Þá er
það vatnið Loch Lomond þar sem
boðið er upp á siglingar um vatnið
þvert og endilangt og gönguferðir í
nágrenninu. í kringum vatnið eru
víða svæöi fyrir húsvagna og tjöld
fyrir sumarferðamenn. Þangað er
um klukkutíma akstur frá Glasgow.
Þá eru það Hálöndin með höfuð-
borgina Invemess sem stendur við
ósa Loch Ness. Þangað er um fiög- ,
urra tíma akstur. Hálöndunum, með
sínum fiölbreytileika, er hiklaust
hægt að mæla með. Það er auðvelt
og þægilegt að aka um vegi Skotlands
og bílaleigubílar eru ekki dýrir. En
það tekur smátíma að venjast
vinstrihandarumferðinni. Látum við
frekari lýsingar á Hálöndum bíða
betri tíma.
Benda má ferðamönnum, sem
dvelja nokkra daga í Glasgow, á kast-
ala sem eru víða í nágrenni borgar-
innar. Og fyrir sportunnendur býöur
Glasgow og nágrenni upp á ýmislegt,
til dæmis golfvelli. Það fer ekki á
milli mála að Glasgow hefur upp á
meira að bjóða en verslunarleið-
angra. Hún á að baki langa menning-
arsögu sem íbúarnir hafa lagt mikla **
rækt við og vilja kynna hana ferða-
löngum. Og þeir leggja einnig mikla
rækt við nútímann.
-ÞG
Italshir spariskór
— leðurfóðraðir með leðursóla
Svart lakk,
kr. 1.950.
★
Svart rúskinn,
blátt leður,
kr. 1.790.
Skóbúðin
Snorrabraut 38, sími 14190
Svart leður
m/svörtu lakki,
kr. 2.290.
★
Svart, brúnt,
kr. 2.290.
Lipurtá
Borgartúm 23, sími 29350
*