Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 5. MARS 1988. Fréttir lceland Seafood: Valur bauð Eysteini árslaun í sárabætur var einnig boðið starf hjá Alafossi Eíns og fram hefur komið í DV var Eysteini Helgasyni boöiö starf hjá Sambandinu ef hann segði sjálfur upp starfi sínu sem forstjóri Iceland Seafood Corporation. Sam- kvæmt heimildum DV var hér um að ræða starf að sölumálum hjá Álafossi í Bandaríkjunum. Þegar Eysteinn hætti hjá Samvinnuferð- um fór hann einmitt til Bandarikj- anna að vinna að markaösmálum fyrir iðnaðardeildir Sambandsins. Þá hefur komiö fram að Valur Arnþórsson, stjórnarformaður Sambandsins, hafi leitað sátta í deilu Eysteins og Guöjóns B. Ólafs- sonar, forstjóra Sambandsins. Sáttatilboð Vals var það að Ey- steinn léti af störfum en fengi greidd árslaun við brottfór sína. Þegar þetta tilboð kom fram var um hálft ár eftir af samningstíma Eysteins svo tilboö Vals hefur hljóðað upp á hálfs árs laun í sára- bætur fyrir starfiö. Eysteinn hefur margsinnisneitaö aö gefa upp laun sin hjá Iceland Seafood. Eysteinn sagöi í samtali viö DV í gær að eitt af þeim gögn- um, sem hann hafði til hliösjónar þegar hann gerði kröfur um endur- skoðun á launamálum sínum hafi verið upplýsingar um meöallaun bandarískra forstjóra í matvæla- iðnaði en upplýsingar um þau eru gefin út á hveiju ári. Samkvæmt þeim hefðu laun forstjóra Iceland Seafood átt að vera nálægt 700 þús- und krónum. Eysteinn segist hafa haft lægri laun. Tilboö Vals hefur því verið lægra en 8 milljónir króna. í samtali viö DV vildi Eysteinn ekkert segja um tilboð Vals. „Valur reyndi að leysa málið fyrir Guðjón eins og fieiri valinkunnir Sam- bandsmennf sagði Eysteinn. -gse Á meðan Guðjón B. Ólafsson fundaði með „sinum mönnurn" í Sambandshúsinu við Sölvhólsgötu voru hinar höfuðpersónurnar i SÍS-deilunum á aðalfundi Osta- og smjörsölunnar. Á myndunum má sjá þá Erlend Einarsson við háborðið og Val Arnþórsson meðal óbreyttra á aðalfundinum. 1 DV-mynd GVA Hafði Guðjón 1,5 milljónir á mánuði? Þær upplýsingar um laun Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra Sambands- ins, sem Erlendur Einarsson hefur greint frá, eru meðallaun Guðjóns hjá Iceland Seafood sex síðustu ár hans hjá fyrirtækinu. Erlendur segir Guðjón hafa fengið 1,1 milljón króna í heildarlaun á mánuði að meðaltali. Samkvæmt heimildum DV mun Erlendur hafa miðað við heildarsöl- una hjá Iceland Seafood í samning- um sínum við Guðjón. Síðustu sex ár Guðjóns jókst salan um ein 72 prósent. Það má því gera ráð fyrir að laun Guðjóns hafi hækkaö úr 830 þúsund krónum á mánuði í tæpa 1,5 milljónir króna árið 1986. í samtali við DV, sagði Eysteinn Helgason að í kröfum sínum um end- urskoðun á sínum launamálum hafi hann lagt fram máli sínu til stuön- ings upplýsingar um meðallaun bandarískra forstjóra í matvælaiðn- aði. Eysteinn sagðist jafnframt hafa gert sér að góðu helming launa Guð- jóns. Samkvæmt upplýsingum um meðallaun forstjóranna, sem DV hef- ur undir höndum, ætti forstjóri Iceland Seafood að hafa um 230 þús- und dollara í árslaun, eða um 9 milljónir króna. Tvöföld þessi laun myndu þýða um 1,5 milljón króna á mánuði. -gse Sambandsmál: Biðstaða, en spenna Mikil spenna er nú í Sambands- málum. Guðjón B. Ólafsson eyddi gærdeginum við að ráðfæra sig við samstarfsmenn sína. Hann las blöðin og horfði á myndbandsupptökur af sjónvarpsfréttum af sínum málum. Hann hefur ekki boðaö stjómarfund í Iceland Seafood til að ræða þessi mál. Valur Arnþórsson hefur heldur ekki boðað stjórnarfund hjá Sam- bandinu. Líkur eru til að báðir þessir fundir verði í næstu viku. Eysteinn Helgason hefur frestað ráðgerðri fór til Bandaríkjanna í dag. Sem sagt; biðstaða, en spenna í loftinu. -gse Ullarsamningur við Sovétmenn undirritaður á Akureyri í gær: . „Þessi samningur í sam- ræmi við okkar verðstefnu - segir Jón Sigurðarson, forsfjóri Alafoss kk Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyri: „Þetta er góð byrjun. Samning- urinn, sem við höfum nú undirrit- að, er þó aðeins við sovéska samvinnusambandið, Sojuz, en við eigum eftir að semja við sovéska ríkisfyrirtækið," sagði Jón Sigurð- arson, forstjóri Álafoss, eftir að undirritun samnings milli Álafoss og Sojuz hafði farið fram á Akur- eyri í gær. Samningurinn, sem undirritaður var, er um kaup Souz á 140 þúsund ullarpeysum og söluverðið er um 90 milljónir króna. Jón Sigurðar- son og Aðalsteinn Helgason undir- rituðu samninginn fyrir hönd Álafoss en Ljakichev, einn af að- stoðarforstjórum Sojuz, og frú Brailowskaja viðskiptafulltrúi fyr- ir hönd Sojuz. „Þetta er töluverð hækkun frá fyrra ári en við urðum að lækka okkur nokkuð frá okkar fyrstu til- lögum,“ sagði Jón Sigurðarson. „Þessi hækkun dugar okkur rúm- lega til þess að vega upp á móti verðbólgunni og ég held að við get- um veriö bjartsýnni á samning við sovéska ríkisfyrirtækið eftir undir- skrift þessa samnings,“ bætti Jón við. Jón sagði einnig að strax yrði hafist handa við framleiðslu upp í þennan samning en um er að ræða fimm tegundir af ullarpeysum. Eins og fram kom hér að framan eru frekari samningaviðræður við Sovétmenn döfinni og ástæða til meiri bjartsýni en áður eftir undir- ritunina í gær. Lögmaður Eysteins: Óskar eftir uppástungu um skaða- bætur Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Eysteins Helgasonar, hefur sent stjóm Iceland Seafood bréf þar sem hann óskar eftir upplýsingum um ástæður fyrir uppsögn Eysteins. Að sögn Marteins Friðrikssonar, stjórn- armanns í Iceland Seafood, nefnir Ragnar enga ákveðna upphæð í bréf- inu sem hugsanlegar skaðabætur til Eysteins. „Hann biður stjórnina eig- inlega um uppástungu,“ sagði Marteinn í samtali við DV. Eysteinn Helgason vildi sem minnst tjá sig um kröfur sínar við DV. Hann vildi heldur ekki upplýsa hver væru uppsagnarákvæði starfs- samnings hans.. -gse Valgerður Sverrisdóttlr: Valur ákvað rannsóknina án samráðs við stjómina „Þessi mál eru mikið áfall fyrir hreyfinguna. Allt þetta fjaðrafok hef- ur haft mikil áhrif, ekki síst á starfs- fólkið. Ég tel því eðlilegt aö stjórnin fái góöa yfirsýn yfir þessi mál. Mér fmnst að ekki sé hægt að ætlast til aö við komum inn í þessi mál án þess aö okkur verði kynntar allar hliðar þeirra,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður og stjómarmaður hjá Sambandinu í samtali við DV. Hafa þessi mál ekki verið tekin fyr- ir á stjómarfundum hjá Samband- inu? „Nei. Að minnsta kosti ekki á þeim fundum sem ég hef setið.“ Var rannsókn sú á einkahögum Guðjóns sem Valur Arnþórsson stj órnarformaöur óskaöi eftir ekki tekin með samþykki stjómar? „Ég veit ekkert um þessa rannsókn nema þaö sem ég hef lesið í blööun- um og ég veit ekki hverju er að treysta af því,“ sagði Valgerður. -gse Hörður Zóphaníasson: Verðumaðfá sem bestar upplýsingar „Við munum að sjálfsögöu reyna að fá sem gleggsta mynd af því sem er að gerast. Ég veit ekki hversu mikið er til af bókunum af fundum um þessi mál en menn verða að hafa sem haldbærastar upplýsingar um þessum, málum svo hægt verði að komast að sanngjarnri og réttlátri niðurstöðu,“ sagði Hörður Zóphan- íasson, formaður Kaupfélags Hafn- arijarðar og stjórnarmaður í Sambandsins í samtali við DV. -gse , Helgarpósturinn: Ólafur kemur í stað Halldórs Ólafur Hannibalsson hefur veriö ráðinn ritstjóri á Helgarpóstinn. Ól- afur mun stýra blaðinu ásamt Helga Má Arthúrssyni sem verið hefur rit- stjóri frá síðastliðnu hausti. Þar með eru ritstjórar blaðsins aftur orönir tveir. Olafur kemur í stað Halldórs Halldórssonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.