Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 5. MARS 1988.
49
IþróttapistiU
Spennandi á
toppi og botni
Webster iékk þungan dóm hjá dómstóli KKI. Hann segir að í dómstólnum hafi setið menn sem tengd-
ust þeim félögum sem keppa við Hauka um sæti í úrslitakeppninni. Slæmt er ef satt er.
15. vetrarólympíuleikarnir í
Calgary í Kanada eru nú afstaðnir
og þeir íslensku keppendur, sem
þar kepptu, eru komnir heim. Sjálf-
sagt eru margir óánægðir með
þahn árangur sem íslensku kepp-
endurnir náðu á leikunum þótt
ekki hafl verið búist við miklum
afrekum fyrirfram. Einar Ólafsson
keppti í 30 km göngu og 50 km
göngu. í 30 km göngunni varð hann
í 65. sæti og í 50 km göngunni kom
hann númer 44 í mark. Einar gat
ekki keppt í 15 km göngunni vegna
meiðsla í baki. Guðrún H. Kristj-
ánsdóttir keppti í stórsvigi og féll
úr keppni. Flensa hertók hana fyrir
keppnina í sviginu og þar gat hún
ekki keppt. Daníel Hilmarsson varð
í 42. sæti í stórsviginu og 24. í svigi.
Árangur Daníels í sviginu
kom verulega á óvart
Það verður að segjast eins og' er
að árangur Daníels Hilmarssonar
í sviginu kom mörgum verulega á
óvart og mér er til efs að íslenskur
skíðamaður hafi náö betri árangri
á vetrarólympíuleikum. Árangur
Daníels er enn iperkilegri fyrir þær
sakir aö hann varð fyrir óhappi i
síöari ferö svigsins og missti þar
dýrmætan tíma. Hafði Daníel að-
eins um tveimur sekúndum lakari
millitíma í sviginu en sjálfur
Ingemar Stenmark frá Svíþjóð.
Heföi verið fróðlegt að sjá hvar
Daníel heföi hafnað ef hann hefði
komist klakklaust í gegnmum síð-
ari ferð svigsins.
Mistök sem mega ekki end-
urtaka sig
Mikið hefur verið rætt og ritað
um þátt íslensku keppendanna í
ólympíuleikunum að þessu sinni
og bar þar auðvitaö hæst er Daníel
var bannað að keppa í bruni alpat-
víkeppninnar. Lesendur DV þekkja
þá sögu. Mörg mistök voru gerð
fyrir þessa leika og auðvitað eru
þau ófyrirgefanleg. Þessi mistök,
og er þá sérstaklega átt við það að
íslensku keppendurnir mættu of
seint til leiks, verða vonandi til
þess að slíkt endurtaki sig ekki.
Og ef menn læra af þessu öllu sam-
an mun þetta ekki koma fyrir aftur.
Rétt er að líta framhjá þessum leið-
indamistökum og vonast til þess
að þetta komi aldrei fyrir aftur.
Einvígi Vals og FH orðið
æsispennandi
Svo virðist sem ekkert lið geti nú
ógnað Val og FH í baráttunni um
íslandsmeistaratitilinn í 1. deild
karla í handknattleik. Lið þessi
heyja nú mikið einvígi og bæði lið-
in hafa veriö aö tapa stigum í
síöustu leikjum. Ekkert annað fé-
lag virðist geta ógnað Val og FH
og segja má að vonir Víkinga hafi
beðiö mikið skipbrot er höið tapaöi
illa fyrir KA á dögunum.
Fallbaráttan ekki síður
spennandi og þar getur allt
gerst
Ein fimm félög eiga enn í mikilli
fallbaráttu. Auðvitað eru Þórsarar
fallnir en spurningin er hvaða hð
fylgir þeim niður. Staða ÍR og KA
er sýnu verst en Framarar og KR-
ingar eru ekki sloppnir ennþá.
Líklegast verður þó að telja að ann-
aðhvort ÍR eða KA fylgi Þór í 2.
deild og yrði það sannarlega mikið
áfall fyrir handboltann á Akureyri
ef bæöi liðin þaðan féllu í 2. deild.
Liðin eiga þó eftir að leika þrjá leiki
þannig að ýmislegt getur gerst enn-
þá. Þaö er ljóst að sþennan í ís-
landsmóitinu er óvenjumikil að
þessu sinni og það á mikið eftir að
ganga á. á lokamínútum íslands-
mótsins.
Sama spennan í körfunni
Sigur ÍR-inga gegn Keflvíkingum
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
dögunum kom mörgum á óvart en
þó ekki þeim sem vel fylgjast með.
Lið ÍR er mjög efnilegt en að sama
skapi reynslulítið. Sigur ÍR-inga,
sem eru í neðri hluta deildarinnar,
sýnir þó betur en margt annað hve
liðin hér á landi eru jöfn að getu.
Það geta alhr unnið alla og það er
langt frá því að Njarðvíkingar séu
öryggir um að hljóta íslandsmeist-
aratitilinn í ár. Úrslitakeppnin er
eftir og þar getur allt gerst.
Mikil vonbrigði hjá ívari
Webster
Sá þungi dómur, sem ívar Webst-
er, leikmaður meö Haukum, fékk á
dögimum fyrir aö slá mótherja sinn
niður utan vallar, hefur vakið
mikla athygli. ívar Webster hefur
greint frá vonbrigðum sínum á síð-
um dagblaðanna og það er á
margan hátt hægt að skilja þau.
Webster hefur dvalið hér á landi í
tæpan áratug og aldrei orðið upp-
vís að neinu misjöfnu. Webster
sagði í viötali við DV að hann væri
hættur aö leika með íslenska lands-
liðinu vegna þess dóms sem hann
hlaut og það er miður. Webster
sagði einnig í viðtali viö DV að þessi
strangi dómur heföi komið sér
mjög á óvart vegna þess mikla
starfs sem hann hefði innt af hendi
fyrir KKÍ. Vitanlega skiptir það
ekki máli hvort hann hefur unnið
gott starf fyrir KKÍ eða ekki. Það
er ekki hægt að ætlast til þess af
dómstóli KKÍ að þeir menn, sem
þar sitja, taki tillit til þess hvort sá
leikmaður, sem kærður er, hafi
unnið gott eða slæmt' starf fyrir
KKÍ.
Athuga þarf málin vel
Hitt er rétt og vægast sagt at-
hyghsvert sem fram kemur hjá
Webster í viðtalinu í DV að í dóm-
stólnum sitja menn sem tengdir eru
þeim liðum sem Haukar eru að
berjast við um sæti í úrslitakeppni
úrvalsdeildar og það er mín skoðun
að þeir hinir sömu hefðu átt að
víkja er mál Websters var tekið
fyrir.
í vetur hefur gætt mikils mis-
ræmis í dómum í kærumálum hjá
KKÍ. Leikmaður, sem sló annan
innan vallar, fékk aðeins eins leiks
bann og leikmaður, sem rekinn var
af leikvelli fyrir að rífast viö dóm-
ara, fékk sömuleiðis eins leiks
bann. Síðan er Webster dæmdur í
leikbann í sjö vikur fyrir að slá
leikmann. Ég tel nauðsynlegt að
allir aðilar, sem hlut eiga að máli,
taki sig á áður en erlendu leik-
mennirnir koma hingað til lands
næsta vetur. Þá verða þessi mál að
vera á hreinu.
Stefán Kristjánsson
Veiðivon
Sigurður Benjamínsson, formaður Ármanna. DV-mynd G.Bender
*
Armenn 15 ára:
Hafa skapað sér
merkilega sögu í
stangaveiðinni
- Sigurður Benjamínsson formaður í stuttu spjalli
Á sunnudaginn síðasta héldu Ár-
menn upp á 15 ára afmæli sitt aö
Dugguvogi og var fjölmennt en Ár-
menn munu vera 250 í dag. Það má
segja að Ármenn hafi skapað sér
merkilega sögu í stangaveiðisögu ís-
lendinga með því að veiða eingöngu
á ilugu þar sem þeir fara th að renna
fyrir lax og silung. Við fengum Sig-
urð Benjamínsson, formann Ár-
manna, í smáspjall í tilefni þessara
tímamóta.
„Það var í desembermánuði 1972
að Jón Hjartarson auglýsti í dag-
blöðum eftir mönnum sem vildu taka
þátt í stofnun félags áhugamanna um
náttúruvernd og stangaveiði meö
flugu og 72 gáfu sig fram,“ sagði Sig-
urður er við spurðum um upphaf
Veiðivon
Gunnar Bender
félagsins, og hann heldur áfram: „11.
janúar 1973 var svo haldinn undir-
búningsfundur undir kjörorðinu
ísland fyrir íslendinga. Þessi fundur
kaus sérstaka undirbúningsnefnd
sem lauk störfum 26. febrúar 1973 og
hafði þá gengið frá drögum að lögum
og siðareglum fyrir félagið. Einnig
hafði þessi nefnd undirbúið jarðveg-
inn fyrir samninga við eigendur
veiðiréttinda í Laxá í Mývatnssveit
og Kálfá. Samningar um þessar ár
voru svo gerðir skömmu síðar. Hinn
28. febrúar 1973 voru svo Ármenn
stofnaðir, landsfélag um þjóðlega
náttúruvernd og stangaveiði með
flugu; stofnendur voru 122. Þetta var
upphafið að stofnun félagsins okkar.
15 ára félag telst varla gamalt félag
en á sér þó sína sögu og hefur margt
gerst í gegnum tíðina. Skipst hafa á
skin og skúrir, erjur og sættir, góð
ár og slæm ár. Segja má með nokkr-
um sanni að vegna tilveru þéssa litla
félags, sem nú telur 250 félaga, hafi'
þeim sportveiðimönnum íjölgað sem
veiða með flugu og hnýta ílugur sjálf-
ir. Virðing fyrir veiðiskap og útivist,
bráð og landi hefur aukist verulega
þótt enn vanti mikið á að állt sé eins
og best getur oröið í þessum efnum.
Það sem vel hefur tekist í sögu Ár-
manna er svo mikils virði að þeir sem
stóðu að stofnun félagsins og studdu
það fyrstu skrefm geta litið stoltir
um öxl. Það bíöa okkar mörg verk-
efni í félaginu og við ætlum að búa
svo um hnútana að þeir sem taka við
af okkur geti haslað félaginu völl í
nýjum verkefnum. Það mættu á milli
60 og 70 manns í afmælishóffö okkar
sem tókst vel í aha staði,“ sagði Sig-^
urður formaður í lokin.
-G.Bender
jyjjÉ HAGTRYGGEVG HF
Aðalfundur Hagtryggingar hf. fyrir árið 1987 verður
haldinn að Suðurlandsbraut 4, 8. hæð, fimmtudaginn
10. mars og hefst kl. 17.15.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta félagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðlar verða
afhentir í skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 4,
Reykjavík, dagana 7.-10. mars á venjulegum skrif-
stofutíma.
Stjórn Hagtryggingar hf.