Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 5. MARS 1988. Fréttir Vestmannaeyjar Her er að skapast alvaríegt ástand - segir Hilmar Rósmundsson hjá Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja „Bátarnir halda áfram að róa þótt frystihúsin stöðvist vegna verkfalls og því er að skapast hér alvarlegt ástand. Það er þegar búið að ráðstafa togurunum og panta fyrir þá löndunardaga erlendis en varðandi netabátana verður söltun eflaust aukin verulega og eins gá- maútflutningurinn,“ sagði Hilmar Rósmundsson hjá Útvegsbændafé- lagi Vestmannaeyja í samtali við DV. Hilmar benti á að sú hætta væri fyrir hendi að siglingar skipa og aukinn gámaútflutningur yrði til þess að verð félli á erlendu mörk- uðunum. Þá væri varla um annað að ræða en að reyna að landa fisk- inum í öðrum höfnum hér á landi, svo sem í Þorlákshöfn eða Grinda- vík, ef ekki kemur til verkfalla þar. Varðandi söltunin sagöi Hilmar að í Vestmannaeyjum væri hægt að auka hana verulega en hún gæti þó aldrei leyst vandamálið. Hann benti einnig á að nú hefði verið hætt við alla loðnufrystingu í Eyjum þar sem menn hefðu ekki talið borga sig að setja upp öll þau tæki sem til hennar þarf fyrir að- eins tvo daga. Ef verkfallið dregst á langinn sagði Hilmar að frysting loðnuhrogna myndi líka falla niður en bæði frysting loðnu og hrogna hefði undanfarin ár verið umtals- verð búbót fyrir verkafólk og stöðvarnar. -S.dór Bdur í timburtiúsi: sjúkrahús Slökkviliöið var kallað út um há- degi í gær vegna elds í gömlu timburhúsi við Kleppsveg. Þegar slökkviliösmenn komu inn í húsið sáu þeir meðvitundarlausan mann liggjandi á gólfinu. Maðurinn var fluttur á Landspítalann og liggur hann á gjörgæsludeild. Ekki var mikill eldur í húsinu og greiðlega gekk að slökkva hann. Ein- hverjar skemmdir urðu af völdum elds, reyks og vatns. Eldsupptök eru ókunn. -sme Tólf árekstrar Maður, sem var i húsinu þegar eldurinn kviknaði, var fluttur meðvitundar- laus á gjörgæsludeild Landspitalans. DV-mynd S Tólf árekstrar voru tilkynntir til lögreglunnar í Reykjavík í gærdag. Flestir árekstrarnir voru vægir og slysalausir. í einum þeirra varð slys á farþega. Var hann fluttur á slysadeild. Sá árekstur varð um klukkan 13.30 á mótum Flókagötu og Lönguhlíðar. -sme Meðvitundar- laus maður fluttur á Verkamannafélagið Hlvh Atikvæðagreiðslan í fyrrakvöld kæið Fjórir félagar f Verkamannafé- laginu Hlif í Hafnarfiröi hafa kært atkvæðagreiðsluna á fundi félags- ins í fyrrakvöld þegar atkvæða- greiðsla um nýju samningana var endurtekin eftir að atkvæði féllu jöfn, 32-32, f þeirri fyrri. Menn greinir mjög á um hvort formaður félagsins hafi fariö rangt að þegar hann lét endurtaka at- kvaeðagreiðsluna. Lögmenn sem DV hefur rætt viö eru ekki á einu máli. Sumir segja að ekkert sé til í lögum sem bannar að fundur taki ákvörðun um að endurtaka at- kvæðagreiöslu. Aðrir segja að fyrri atkvæðagreiðslan sé endanleg og því hafi samningamir verið felldir. Kæra fjórmenninganna barst til Alþýðusambandsins í gær og verð- ur tekin fyrir með sama hætti og kæra sú sem barst á atkvæða- greiðsluna hjá Dagsbrún á dögun- um. S.dór Kjaradeilan í Vestmannaeyjum: Svartsýni ríkjandi í Karphúsinu í gær í gær var samningafundur h)á ríkissáttasemjara í kjaradeilu Snótar í Vestmannaeyjum og við- semjenda félagsins en boðað verkfall verkakvenna í Eyjum átti að koma til framkvæmda í gær- kvöldi. Þeir aðilar, sem DV ræddi við í Karphúsinu í gær, voru afar svart- sýnir á lausn deilunnar og því útlit fyrir að til verkfalls kæmi. Hætt hefur verið við alla loðnu- frystingu sem og frystingu loðnu- hrogna í Vestmannaeyjum vegna verkfallsboðunarinnar. Þá munu fiskiskipin í Vestmannaeyjum lenda í erfiðleikum með að losna við afla sinn og útlit fyrir að sá vandi verði leystur með auknum gámaútflutningi sem aftur gæti leitt til verðfalls á erlendum mörk- uðum. -S.dór Teljarar á Dagsbmnarfundinum: íhuga að fara í meiðyrðamál gegn Páli Amarssyni „Það er rétt að við höfum rætt um að fara í meiðyröamál við Pál Arn- arsson. Það er ekki hægt að sitja undir svona ásökunum, svo alvar- legar sem þær eru,“ sagði Ólafur Ólafsson einn af teljurunum á Dagsbrúnarfundinum á dögunum. Ólafur sagði að engin ákvörðun heföi enn verið tekin í málinu. í dag yrði haldinn sljómarfundur í Dagsbrún þar sem þetta mál yrði rætt. Ásakanir Páls voru á þann veg að teljararnir og fundarstjóri á Dagsbrúnarfundinum hefðu falsað tölur varðandi atkvæðagreiösluna. Hann notaði býsna stór orð í sam- tölum við fjölmiðla um jþetta mál. Samkvæmt öruggum heimildum DV mun vera áhugi fyrir því innan sljómar Dagsbrúnar að reyna að ná sáttum í þessu máli. S.dór Faðir fangans á Utia-Hrauni: „Hið opinbera beitir son minn andlegu ofbeldi" „Eiginkona sonar míns og ég höfum bæði haft samband við Jón Sigurðsson dómsmálaráðherra um að koma manninum á stofnun fyrir geðsjúka þar sem við teljum fang- elsislæknana ekki geta sinnt máli hans. Við teljum það vera brot á mannréttindum að hann fái ekki viðeigandi læknismeðferð hjá sér- fræðingum eftir að hann hefur ekki getað nærst að ráði í næstum tvo mánuði. Það opinbera er að beita drenginn andlegu ofbeldi með því að hindra að hann komist á geð- sjúkrahús til að athuga hvort hægt sé að hiálpa honum þar. En því miður virðist mál hans hafa stran- dað einhvers staðar í kerfinu þó ráöherra hafi komið með tilmæli um að koma honum á stofnun," segir Hálfdán Ingi Jenssen, faðir fangans á Litla-Hrauni sem DV greindi frá í fréttum í gær. Faðir hans segir hann ekki hafa haldiö fæðu niðri síðan 10. janúar. „Þegar þetta vandamál kom upp hafði sonur minn verið á Litla; Hrauni í einn og hálfan mánuö. í byrjun febrúar var hann lagður inn á Borgarspítalann og fékk þar nær- ingu í æð auk þess sem hann borðaði svolítið en eftir fjögurra eða fimm sólarhringa dvöl var hann settur inn á Litla-Hraun aftur þar sem engin líkamleg ástæða fannst fyrir veikindum hans. Þegar austur kom byrjaði sama sagan aftur," segir Hálfdán. Hann segir þyngd sonar síns nú vera undir 48 kílóum en hann er um 180 sentí- metrar á hæð. „Við höfum fengið úrskurð sál- fræðings um að sonur minn geri þetta ekki með vilja heldur virðist andlegt ástand hans mjög slæmt og kemur það fram á þennan hátt. Hann er orðinn mjög slappur og kvíðinn. Auk næringarvandamáls- ins á hann erfitt með svefn en óskum hans um aukaskammt af svefnlyfjum hefur ekki verið sinnt. Fór svo fyrir nokkru að hann gerði tilraun til sjálfsvígs og var hann þá fluttur á sjúkrahúsið á Selfossi. Skömmu síðar fór hann aftur í fangelsið og reyndi hann þá aftur að svipta sig lífi. Þá var hann flutt- ur á sjúkrahús í Reykjavík. Við þessar fréttir fékk konan hans taugaáfall. Það tekur virkilega á mann að horfa upp á þetta.“ -JBj „Mjóg orðum aukið“ - segir fangelsislæknir Gylfi Haraldsson, læknir á Litla- nærst síðan í byijun janúar. Hann Gylfi vildi ekki tjá sig meira um Hrauni, sagði það mjög orðum sagöi fangann undir stöðugu máiið í gær. aukið að fanginn hefði ekki getað lækniseftirliti. -JBj „Mjög prúður í vera slnni hér“ segir forstoðumaður Utia-Hrauns „Umræddur maður hefur verið mjög prúður í veru siftni hér og ekkert undan honum að kvarta. Ég tel mig einnig geta fullyrt að hann sé líkamlega hraustur en ég vil þó taka fram aö ég get ekki gef- iö neina nákvæma skýrslu um þetta mál auk þess sem það er ekki á færi leikmanna að dæma um heilsufar rnanna," sagöi Gústaf Lilliendal, forstöðumaður Litla. Hrauns, í samtali við DV í gær. Gústaf vildi ekki tjá sig meira um líðan fangans og sagði þaö alfarið í valdi lækna hans hvernig læknis- meöferð haim fengi á næstunni. Hann sagðist ekki hafa fengið nokkur tilmæli um að flytja mann- inn á aðra stofnun. -JBj Beðið eftir læknaskýrslum í dómsmálaráðuneyti „Tilmæli frá dómsmálaráðherra orgsson, lögfræðingur hjá dóms- umaðfanginnverðiflutturáviðeig- málaráöuneyti, í samtali við DV í andistofnunefþörferáhafaborist gær. Bergsteinn sagði ráðuneytið mér en engin ákvörðun hefur enn nú bíða eftir frekari skýrslum frá verið tekin um hvaö gert verður í læknum og veröur ákvöröun tekin máli hans,“ sagði Bergsteinn Ge- eftir að þær berast. -JBj
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.