Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 5. MARS 1988. 29 Ivor Bergin. Næsti þáttur áætlunarinnar Nú var Lovísa undir þaö búin aö halda áfram framkvæmd fyrirætlun- ar sinnar. Hún klæddi sig í baðslopp og notaði naglaþjöl til þess að rispa sig á handleggjum og lærum. Þá sló hún handleggjunum við dyrakarm til þess að fá fram marbletti. Loks hellti hún vatni yfir sig rétt áður en von var á manni hennar heim og þannig útlítandi tók hún á móti hon- um. „Hann nauðgaði mér,“ sagði hún. „Hann sagðist vera kominn til þess að líta aftur á þvottavélina og... og svo... “ Svo lést hún fara að gráta. „Hvar býr þessi óþokki?“ spurði Tom Ramsey með saman- bitnar varir. Lovísa sagði að hann byggi í Droitwich. Tom hringdi á upplýsingar og fékk að vita hvar Ivor Bergin ætti heima. Svo tók hann bíl- lyklana sína og sagði Lovísu að það væri óþarfi fyrir hana að hringja á lögregluna. Hann myndi sjá um aö refsa Ivor Bergin. Allt hafði nú farið eins og Lovísa haföi reiknað meö því hún haföi þóst viss um að afbrýðisemin myndi ná afar sterkum tökum á manni sínum þegar hún segði honum að henni hefði verið nauögað. Og þvi fengi óþokkinn Ivor Bergin nú að gjalda fyrir framkomu sína við Phyllis. Þá væri líka hugsanlegt- aði iá ' hanti dæmdan fyrir nauðgun. Dyrabjallan hringir Lovísa var þó ekki búin að taka um það ákvörðun hvort hún ætlaði að kæra Ivor Bergin þegar hringt var á dyrabjölluna. Hún þóttist viss um að það gæti ekki verið Tom sem væri að koma aftur því hann heföi lykla að húsinu. Er hún lauk upp stóðu tveir lög- regluþjónar fyrir utan. „Ert þú frú Lovísa Ramsey?“ spurði annar þeirra. Hún játaði því. Þá var hún spurð að því hvort Ivor nokkur Berg- in hefði nauðgað henni. Hún játaði því einnig. Svo bætti hún því við að hún hefði ekki gert lögreglunni að- vart af því maður hennar hefði tekið málið í sínar eigin hendur. Já, það er enginn vafi á því að hann gerði það," sagði þá annar lögreglu- þjónanna. „Maöurinn þinn er búinn að drepa Ivor Bergin." Réðst á Ivor Bergin Tom Ramsey hafði í bræði sinni haldið á fund Ivors Bergin. Er Ivor opnaði dyrnar fyrir honum sló Tom hann í höfuðið með skrúflykli sem hann hafði tekiö með sér. Bergin lést í sjúkrabíl á leið til sjúkrahúss en Tom Ramsey var skömmu síðar handtekinn á götunni skammt frá. Er Lovísa hafði verið færö til yfir- heyrslu á lögreglustöðina í Droitwich endurtók hún söguna sína en féllst ekki á að gangast undir læknisrann- sókn til staðfestingar á því að framburður hennar væri réttur. unnar Phyllis Palmer. Var þessi framburður hans og sagan af því hvernig fór fyrir Phyllis borin undir Lovísu sem gat ekki annað en lýst yfir því að maður sinn hefði sagt satt. Var Lovísa nú send heim. Lögreglankemurí aðra heimsókn Daginn eftir kom lögreglan í aðra heimsókn til Lóvísu Ramsey. Rann- sókn hafði þá leitt í ljós að saga hennar af nauöguninni gat ekki verið rétt. Ivor Bergin hafði verið aö gera við þvottavél síðdegis daginn áður og var ljóst að hann hafði þá hvorki haft tíma né tækifæri til þess að heimsækja Lovísu. Henni varð nú ljóst að ekki var lengur hjá því komist að segja sann- leikann. Málalok Lögreglan gerði Lovísu grein fyr- ir því eftir frásögn hennar að í raun og veru bæri hún ábyrgð á morðinu á Ivor Bergin. Að visu hefði hún ekki unnið á honum með eigin hendi og þvi yrði hún ekki ákærð, en hún hefði sagt aíbrýðisömum eiginmanni sínum sögu sem hefði nægt til þess aö fylla hann af lifshættulegum hefndarhug. Tom Ramsey bíður nú ákæru. Er talið að hann veröi sóttur til saka fyrir manndráp en ekki morð. Hann hefur snúið baki við konu sinni og sótt um skilnað frá henni því hann segist ekki geta fyrirgefið henni aö hafa att sér út í þann verknað sem hann bíður nú dóms fyrir. Lýkur svo frásögninni af vinkon- Tom Ramsey sagöi,lögregluiani.fcá j,öunum._tvmnur ng Júónabondum ynnum Ivors Bergin og látnu kon- þeirra. BASAR Færeyska sjómannakvinnuhringsins verður í Sjómannaheimilinu, Brautar- holti 29, á morgun, sunnudag 6. mars, og byrjar kl. 14.00. Heimabakaðar kökur, handprjónaðar peysur og margt, margt fleira. Sjúkrahúsið á Húsavík sf. Hjúkrunarfræöingar óskast til starfa nú þegar og til sumarafleysinga. Ljósmóðir óskast til sumarafleys- inga. Frá Húsavík er stutt til margra sérkennilegra og fag- urra staða. Er ekki tilvalið að koma til okkar og njóta jafnframt þingeyskrar náttúrufegurðar? Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333. ÚTBOÐ Finnastaðavegur 1988 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i ofan- greint verk. Lengd vegarkafla 3,0 km, magn 29.000 m3. Verki skal að fullu lokið 1. nóvember 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rikisins á Akureyri og i Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 8. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 21. mars 1988. Vegamálastjóri AÐAL- FUNDUR Aðalfundur Iðnaðarbanka íslands hf. árið 1988 verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu föstudaginn 25. mars 1988 og hefst kl. 14:00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf skv. ákvæðum 35. gr. samþykkta bankans. 2. Tillagaumútgáfujöfnunarhlutabrófa. 3. Tillaga um hækkun hlutafjár með sölu nýrra hluta, að fjárhæð kr. 40.000.000.-. Lagt verður til, með vísun til 4 mgr. 28. gr. laga um hlutafélög, að allir hluthafar falli frá forgangsrétti sínum til áskriftar, í því skyni að auðvelda almenningi hlutaflárkaup í bankanum. 4 Önnurmál, löglegauppborin. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í Iðnaðarbankanum, Lækjargötu 12,2. hæð frá 18. mars n.k. Reikningar bankans fyrir árið 1987 ásamt tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað. Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fundinn, þurfa að hafa borist bankaráðinu skriflega í síðasta lagi 17. mars n.k. Reykjavík, 24. febrúar 1988 Bankaráð Iðnaðarbanka íslands hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.