Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 5. MARS 1988.
-segir
Eysteinn
Helgason,
fyrrverandi
forstjóri
Iceland
Seafood
,Þaö var ákaflega sérkennileg til-
finning að sjá samstarfsmann hjá
fyrirtæki sem ég haföi ekki verið
formlega rekinn frá, í því hlutverki
að bægja mér frá fyrirtækinu. Hann
var einfaldlega að sinna sínu starfi
þannig að ég ásaka hann ekki og
álasa ekki. .
Ég gekk frá formsatriðum sem
væntanlega verða notuð síðar. Lög-
fræöingur fyrirtækisins greiddi götu
mína að fyrirtækinu og ég tók það
skýrt fram að ég væri ennþá starf-
andi forstjóri Iceland Seafood og ég
bæri enn ábyrgð á rekstrinum og liti
ekki svo á að ég væri hættur fyrr en
formleg tilkynning bærist. Mér barst
formleg tilkynning 25. febrúar, tæp-
um sólarhring eftir að ákvörðunin
hafði verið tekin."
Frægð fyrir
brottrekstur
Það er Eysteinn Helgason sem er
að segja frá brottrekstri sínum úr
starfi hjá Iceland Seafood, dótturfyr-
irtækis Sanbandsins í Bandaríkjun-
um. Þetta hefur verið helsta
fréttaefnið siðustu daga og brott-
reksturinn þegar einn sá frægasti í
viðskiptum Islendinga. Sjálfsagt
verður álitamál í framtíðinni hvort
Sverrir Hermannsson lendir ekki í
öðru sæti á eftir Guðjóni B. Ólafssyni
á afrekalistanum yfir að „gefa mönn-
um sparkið".
Eysteinn fer varlega í að velja sér
orö - vill ekki ganga of langt. Hann
vill ekki ræöa hugsanir sínar á ýms-
um stundum þessa máls og segist
vera kominn heim til aö skýra málin
frá sínum sjónarhóli „og undirstrika
vítaverða málsmeðferð af hálfu
meirihluta stjórnar fyrirtækisins11,
eins og hann orðar það.
„Ég gerði mér grein fyrir því um
leið og lét ekki undan hótunum Guð-
jóns B. Ólafssonar um að reka Geir
Magnússon á ólöglegan hátt án
ástæöna að 'þetta gæti haft þær af-
leiðingar sem raun varð á,“ svarar
Eysteinn því hvort brottreksturinn
hafi komið honum í opna skjöldu.
„Þetta átti sér langan aðdraganda.
Eysteinn Helgason - útilokar ekki að koma aftur til starfa hjá Sambandinu. DV-mynd GVA
Bj ■