Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 5. MARS 1988.
Sama hugarfar réöi þegar ég hafn-
aði tilboðum um önnur störf innan
samvinnuhreyfmgarinnar í Reykja-
vík og var beðinn um að hætta með
góðu. Ég ályktaði sem svo aö rétt
væri réft og ég ætlaði að standa fast
á mínu og hvika hvergi frá. Að yfir-
lögðu ráði ákvað ég að berjast í þessu
máli.“
Ekki reiður
Það hefur komið fram að í Banda-
ríkjunum skipti menn mjög snöggt
um störf en í Bandaríkjunum gerist
það ekki að menn séu reknir án skýr-
inga nema um sakamál eða veruleg
afglöp í starfl sé að ræða. Það er
mjög algengt að menn missi sína
vinnu þegar fyrirtæki sameinast,
skipta um eigendur eða stjórnendur
en ekki á þennan hátt. Það er samið
við menn og ástæður tilgreindar."
- Ertu reiður maður eftir þessa at-
burði?
„Nei, sem betur fer get ég ekki sagt
að ég sé reiöur og því síður aö ég finni
fyrir haturstilfinningu. Ég er fyrst
og fremst vonsvikinn yfir þessari
meðferð sem beinst hefur gegn mér
og minni íjölskyldu."
Eysteinn telur sig ekki harðan í
viðskiptum. „Harður er ekki rétta
orðið til að lýsa mér en ég vil ná ár-
angri,“ segir hann og kannast heldur
ekki við að hafa verið einráöur um of.
„Ég get ekki séð að ég hafi verið
einráöur. Það er ekki hægt að segja
að sá maður hafi verið með ofríki
sem aftur og aftur hefur beðiö stjórn-
arformanninn um að hafa samráð
og halda stjórnarfundi eins og ég
gerði í þessu máli. Ég held að sú stað-
reynd svari þessu best.
Ég er kominn heim meö það eina
takmark að reyna að skýra málið frá
mínu sjónarhorni, málið eins og ég
sé það. Ég tel mig hafa verið órétti
beittan og vil koma þeim skilaboöum
til réttra aðila þannig að ég veröi
ekki ranglega dæmdur. Það er mjög
mikilvægt fyrir mig á þessu skeiði
ævinnar að mín sjónarmið komist til
skila. Það skiptir miklu fyrir atvinnu
í framtíðinni.“
*Þá reyndist
Guðjón vel
Eysteinn fór fyrst til starfa í
Bandaríkjunum árið 1984 þegar hann
hætti sem framkvæmdastjóri hjá
Samvinnuferöum-Landsýn. „Ég fékk
ársleyfi frá störfum og hafði áhuga á
að skipta um starfsumhverfi," segir
Eysteinn. „Ég fór þá út á vegum Sam-
bandsins og tók að mér að vinna
ýmis verkefni. Mál æxluðust þannig
að ég fór að taka aö mér fleiri og
fleiri verkefni fyrir Iceland Seafood,
mismunandi verkefni á mismunandi
sviðum.
Dvöl min vestra varð því 15 mánuð-
ir og síðasta mánuðinn sótti ég
nánskeið fyrir stjórnendur hjá Penn
State University og ætlaði eftir það
heim. Ég var byrjaöur að pakka nið-
ur þegar Guðjón B. Ólafsson bað mig
um aö taka að mér sitt starf Sem ég
eftir umhugsun tók að mér með því
skilyrði að ég mundi flytja heim engu
að síöur í tæpt ár og fá þannig tæki-
færi til að kynna mér starfið hjá
sjávarafurðadeild Sambandsins. Um
leið fékk ég tækifæri til að ferðast
um landið og heimsækja þau frysti-
hús sem eru innan vébanda Sam-
bandsins. Þetta var mjög lærdóms-
ríkur og ánægjulegur tími þar sem
ég kynntist mörgu mætu fólki.
Ég var ekki béint undir stjórn Guð-
jóns en hafði mjög nána og góða
samvinnu við hann og þar bar aldrei
skugga á. Hann kom þar vel og
drengilega fram við mig og mína fjöl-
skyldu.
Þótt það sé ekki tiltekið í samning-
um þá er frekar gert ráð fyrir að
lágmarksdvöl standi ekki skemur en
fjögur ár eða svo. Við vorum viöbúin
því.
Viö seldum því íbúðarhúsið okkar
og kvöddum vini okkar og ættingja
og höfðum áform um að vera vestra
næstu árin. Við vorum búin að koma
okkur fyrir, byggja hús og leggja í
fjárfestingar. Það er Ijóst aö þegar
svona óvæntir atburðir gerast þá
breytast allar áætlanir. Fjölskyldan
verður þó áfram úti þar til skólaári
lýkur í surnar."
Laun forstjóra
Forstjórar í Bandaríkjunum hafa
há laun og háar tölur hafa veriö
nefndar um laun Guðjóns B. Ólafs-
sonar meðan hann var vestra.
Eysteinn vildi ekki segja hvað hann
haföi í laun meðan hann var for-
stjóri Iceland Seafood. Sagði aðeins
aö þau þættu ekki há á bandarískan
mælikvarða. Risna forstjóra er einn-
ig mikil og launin taka mið af því.
„Það er mikið um móttökur fyrir
viðskiptamenn, bæði bandaríska og
héðan frá íslandi," sagði Eysteinn.
„Það er því gestkvæmt á heimili for-
stjóra. Starfið útheimtir líka mikla
vinnu, sérstaklega fyrstu mánuðina
meðan verið er að kynnast því og
viðskiptavinunum. Það var þetta
tímabil sem ég var að ganga í gegnum
þegar kallið kom.“
Eysteinn býr með fjölskyldu sinni
í Camp Hill í Harrisburg. Þar er verk-
smiðja Iceland Seafood og þarna búa
þeir íslendigar sem starfa við fyrir-
tækið. Þeir eru þó ekki margir því
erfitt er að fá atvinuleyfi í Bandaríkj-
unum nema um mjög sérhæfð störf
sé að ræða. Því hefur ekki myndast
í borginni íslendinganýlenda líkt og
í Luxemburg.
Kona Eysteins heitir Kristín Rúts-
dóttir og þau eiga þrjú börn, 16, 11
og 6 ára. Þau sækja skóla vestra í
vetur en enn sem komið er er ekkert
ákveðið um hver verður næsti viö-
komustaður fjölskyldunnar. Ey-
steinn er á förum út aftur. „Ég kom
heim til að koma mínum viðhorfum
á framfæri og til að kanna minn rétt.
Um framtíðina er allt óráðið."
Óvenjulegurframi
Leið Eysteins til frama innan
Sambandsins var óvenjuleg. Hann
kom þar til starfa fyrir tæpum 10
árum þegar hann var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Samvinnuferða h/f
sem síðar varð að Samvinnuferðum-
Lándsýn. Þá var til þess tekiö að
maöur, sem ekki var alinn upp innan
hreyfingarinnar og var ekki einu
sinni framsóknarmaður, réðst í
ábyrgðarstöðu hjá Sambandinu.
Aður en Eysteinn hóf störf fyrir
Sambandið var hann hjá Sölustofn-
un lagmetis. Staða framkvæmda-
stjóra hjá Samvinnuferðum var
upphefð þótt Eysteinn segi að „fyrir-
tækið hafi aðeins veriö lítil skrifstofa
með sáralitla markaðshlutdeild". En
hvað um það, þetta var fyrsta skrefið
til frama innan Sambandsins. „Ég
hafði þó engin áform um að fara
hærra,“ segir Eysteinn þegar hann
er spurður hvort hann hafi litiö á
stöðuna sem stökkpall.
„Við hófum þarna samstarf viö
verkalýðshreyfinguna og fyrstu
áþreifanlegu tengsl þessara hreyf-
inga í fyrirtækjarekstri. Þetta var
fyrst og fremst ánægjulegur tími og
ég hafði gaman af uppbyggingunni.
Við áttum þátt í að gera orlofsferðir
til útlanda að almenningseign. Það
er gaman að sjá hvað þetta er vel
stætt fyrirtæki í dag. Það er nú óum-
deilanlega stærsta ferðaskrifstofan
hér á landi.“
Þegar kom að því að Eysteinn tók
við forstjórastöðunni hjá Iceland
Seafood var um það rætt manna á
meðal aö þarna væri nýr erfðaprins
í Sambandsveldinu kominn fram.
Eysteinn hlær að þessari sögu og
kannast reyndar ekki við að hafa
heyrt hana. „Þetta er fásinna og ég
held að ég reyni að halda mig frá slík-
um tilgátum," segir Eysteinn.
Eysteinn kannast heldur ekki við
aö afstaða hans í stjórnmálum, því
hann er hvergi flokksbundinn, hafi
haft áhrif á atburði síðustu daga. „Ég
held að þaö væri mjög langsótt að
fara að skýra brottrekstur minn i
stjórnmálalegu samhengi."
Alinn upp
í Víkingi
Áköfustu handboltaunnendur
kannast við Eystein sem Víking en
hann var um árabil formaöur hand-
knattleiksdeildar félagsins. Það var-
á þeim árum þegar Pólverji að nafni
Bogdan Kowalczyk kom til landsins.
„Ég ólst nánast upp á Víkingssvæð-
inu,“ segir Eysteinn. „Mér er
minnistætt þegar við sömdum við
Bogdan í gegnum síma og töluðum á
ensku, þýsku, íslensku og væntan-
lega pólsku. Það tókst þrátt fyrir
tungumálavandræðin og Bogdan
vann hjá Víkingum mjög farsælt
starf sem félagið býr enn að. Það á
nú handknattleikslið á heimsmæli-
kvarða. Hjá Víkingi hef ég eignast
marga góða og trausta vini.“
Meiri harka?
Eysteinn hefur verið innanbúð-
armaður í íslensku viðskiptalífi í
fjölda ára. Finnst honum að deila
hans við Sambandið bendi til að
meiri harka sé að færast í íslenskt
viðskiptalíf?
„Ég veit ekki hvort þetta er dæmi
um að harka sé að færast i viðskipta-
lífið,“ svarar Eysteinn. „Svona
vinnubrögð, eins og þarna voru við-
höfð, lýsa ekki hörku heldur mis-
heppnaðri ákvarðanatöku, sem ekki
er byggð á rökum eða eðlilegum leik-
reglum. Ég hef hins vegar tekið eftir
að samkeppni hefur aukist hér og
það er af hinu góða. En ég vona að
þær aðferðir, sem hafðar voru við
brottrekstur okkar Geirs, séu ekki
það sem koma skal.
Ég verð að viðurkenna að mér er
óskiljanlegt hvers vegna svona var
staðið að málum. Af hverju rak Guð-
jón ekki Geir sjálfur meðan þeir
unnu saman fyrst hann er svona
slæmur? Þaö er ljóst að stjórn fyrir-
tækisins réð Geir og því ekki lagaleg-
ur réttur fyrir að reka hann með
þeim hætti sem Guðjón vildi.
Ég var að firra fyrirtækið fjár-
hagstjóni því skaðabótakrafa gat
legið á borðinu við svona aðfarir. Þá
er ótalinn sá réttur hvers manns aö
fá gefnar upp ástæður fyrir brott-
rekstri.“
Aftur til
Sambandsins?
Eysteinn útilokar ekki þann
möguleika að heíja aftur störf hjá
Sambandinu. „Ég hef ekki hugleitt
framtíðaratvinnu og hvort hún verð-
ur innan eða utan samvinnuhreyf-
ingarinnar," segir Eysteinn. „Eitt er
vist að að fráteknu þessu atviki hef
ég átt mjög ánægjulegan tíma innan
hreyfingarinnar og er þakklátur fyr-
ir þau störf sem mér hefur verið
treyst fyrir að leysa.“
Eysteinn er einnig bjartsýnn á að
brottreksturinn frá Iceland Seafodd
hafi ekki varanleg áhrif á möguleika
hans í framtíðinni. „Eins og undir-
tektir viö mínum málstaö hafa verið
hér heima óttast ég það ekki,“ sagði
Eysteinn Helgason. -GK
U
HAGPORT S/F - Keflavík - auglýsir
Þeir eru á leiðinni:
Mazda 626 2000 árg. 1988
Daihatsu Charade árg. 1988
Subaru Sedan árg. 1987
Á ótrúlega góðu verði!
Mazda 626 2,0
- 4 dyra - sjálfskiptir
- 5 dyra - vökvastýri
- 5 gíra - sóllúga
- rafmagnsrúður
Daihatsu
- 3 dyra TS
- 5 dyra CS
- Turbo
Subaru
- fjórhjóladrif- rafmagnslæsingar
- 5 gíra - rafmagnsspeglar
- vökvastýri - topplúga (rafmagns)
- rafmagnsrúður
Til afgreiðslu strax.
- ALLIR SELDIR MEÐ EINS ÁRS ÁBYRGÐ
- Söluaðili:
æ
BÍLASALAN BUK
Opið virka daga
og laugardaga
kl. 10-19
SKEIFUNNI 8.
SÍMAR 686477, 687177, 687178 OG 686642