Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Page 17
Horst Tappert vakti mikla athygli þegar hann kom hingað til lands fyrir nokkru. LAUGARDAGUR 5. MARS 1988. Ásgeir Eggertsson, DV, Miinchen: Hvað er sameiginlegt með þýskum bílum og Derrick? Jú, bæði er þetta ágætis útflutningsvara. Jafnvel Jap- anir, sem leggjast mjög gegn inn- flutningi á sjónvarpsefni, sýna Derrick á besta tíma. Þetta er atriði sem Horst Tappert er stoltur af. Hvar sem hann stígur niður fæti ber fólk kennsl á hann. Þegar sjónvarpsáhorfendur á Ítalíu sneru baki við ríkissjónvarpinu vegna fjölmargra einkastöðva, sem skutu upp kollinum, var brugðið á það ráö aö hefja sýningar á Derrick og árangurinn lét ekki á sér standa. „Derrick er hreinn og beinn götusóp- ari,“ sögðu ítalirnir um þættina og ríkissjónvarpið brá á það ráð að sýna 26 daga í röð. Bætir álitið á Þjóðverjum Og orðstírinn hefur borist víðar. Nú er Derrick sýndur í um 90 löndum og samningar standa yfir við sovéska sjónvarpið. Skoðanakannanir í Nor- egi sýndu að þar í landi hafa þættim- ir náð að bæta verulega álit Norðmanna á Þjóðveijum. Það þykir undarlegt þegar haft er í huga hve Derrick er alvarlegur í leik sínum. í sjónvarpsþáttunum hefur Derrick ekki sýnt neinar breytingar í gegnum tíðina nema helst það að hann og Harry Klein em orðnir nokkuð þybbnari en í upphafi. Áhorfandinn hefur varla fengið nokkrar upplýs- ingar um einkalíf lögregluforingjans. Stundum er hann settur í smóking og sendur í leikhús. Þar hittir hann Harry og þeir skiptast á nokkrum innantómum orðum. Derrick á gamaldags heimili, kannski fullíburðarmikið fyrir mann í hans stöðu. Oftast er Harry látinn elta afbrotamennina. Ef hann lendir í klípu kemur Derrick og bjargar honum úr vandræðunum. Sjaldan sést ofbeldi eins og við eigum aö venj- ast úr öðmm lögreglumyndum heldur fjalla þættirnir um afleiðing- ar ofbeldisins. Aðeins tvö hundruð þættir Hér í landi nýtur Derrick ekki minni vinsælda en á íslandi eða ítal- íu eða hvar sem hann er sýndur. Um 40% landsmanna safnast saman fyrir framan sjónvarpsskjáina þriðja Sennilega yrðu það eridalok þáttanna því varla væri hægt að hækka Harry Klein í tign og kalla þættina Litla Derrick. Horst Tappert er mjög umhugað um viðbrögð áhorfendanna. Fyrir hann er ekkert óvenjulegt að fá ást- arbréf frá ungum stúlkum. Hann lítur svo á að bréfm til sín bendi til að ungt fólk vilji eiga sterkan og ör- uggan vin. Einu sinni fékk hann líka bréf frá níræðri konu sem mat kurt- eisi og hegðun Derricks mikils. í þáttunum eru lögreglumennirnir alltaf ekta. Jafnvel rannsóknarlög- reglumennimir, sem birtast með ýmis dularfull tæki, em fengnir að láni hjá lögreglunni svo allt líti fag- lega út. Öll kvikmyndahandrit eru send lögreglunni sem fer yfir þau og leiðréttir. Og æth Tappert hafl einhvern tíma komist í kast við lögin? Jú, einu sinni var hann tekinn fyrir of hraðan akst- ur sem kostaði hann jafnvirði 460 íslenskra króna. Eina breytingin, sem sést hefur á Derrick síðustu árin, er að hann hefur fitnað svo- lítið. hvert fostudagskvöld þegar þættirnir er sýndir. Þrátt fyrir allar þessar vin- sældir er þegar farið að ræða um endalok þáttanna. í viðtah fyrir nokkru sagði Horst Tappert að hann langaði varla að leika í fleiri en tvö hundruð þáttum. Það þýðir að árið 1990 verður síðasti þátturinn gerður. Kurteis og ákveðinn. Þannig birtist Derrick okkur á skjánum. Derrick og Klein komnir aftur á skjáinn: Derrick er götusópari - það er líkingin sem Italir nota um vinsældir hans í Lifsstíl DV á mánudaginn verður farið nánar ofan í „kartöflu- striðið". En eins og kunn- ugt er hækk- aði landbún- aðarráðherra jöfnunargjald á innfluttum frönskum kartöflum úr 40% í 190%. Þetta gæti dregið á eftir sér einhvern dilk og vakna margar spurningar um hvort aðrar vörur gætu ekki farið sömu leið. / Kaup og kjör hafa verið mjög til umræðu að undanförnu. Kjarasamnlngar hafa sem kunn- ugt er verið í gangi og nýgerð- ur samningur Verkamanna- sambandsins og vinnuveitenda ekki allt of vin- sæll. Þá hafa kaup og kjör for- stjóra Sambandsins einnig verið mikið til umræðu manna á meðal, svo og annarra forstjóra. í Lífsstii á mánudag er gerður samanburður á kjörum nokkurra vel laun- aðra forstjóra þessa lands annars vegar og verkafólks hins vegar. Munurinn er óneitanlega sláandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.