Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 5. MARS 1988. Georg Guðni - Eiríksjökull, olía á striga, 1987. Fjöllin eru minn sálarr eitur4 ‘ - svipmynd af Georg Guðna Haukssyni list- málara sem hlaut Menningarverðlaun D V fyrir myndlist 1988 Georg Guðni Hauksson. (DV-mynd KAE) Georg Guöni Hauksson listmálari er soldiö eins og myndirnar sem hann málar, íhugull, kyrrlátur og blátt áfram. Og eins og fábrotin málverk hans af fjöllum láta smátt og smátt uppi ólíklegustu litbrigöi við grandskoðun leiöast samtöl við Georg Guöna smám saman út í orðræðu um tím- ann, andlegar viddir, gildi sérvisk- unnar, mismunandi halla í landslagi pg ýmislegt fleira sem iistmálarar á íslandi hafa hingað til ekki haft hátt um í viðræðum. Og það sem mundi hljóma hjá- rænu- eða hégómlega í munni annars listamanns veröur einhvern veginn eðliiegt og sjálfsagt þegar Georg Guðni á í hlut. Ekki síst hefur hann lag á því að draga úr þeim hátíðleika sem stund- um vill fylgja samtölum um andans mál, með góölátlegri sjálfshæðni og hreinlyndi. Georg Guðni hefur í öðrum við- tölum skýrt frá því hvers vegna hann leiddist út í að mála fjöll og aftur fjöll, en það gerðist meöan hann var nemandi við Myndlista- og handíða- skólann 1980-85, þegar nýja málverk- ið gagntók unga listamenn. Einn daginn leit hann út um gluggann þar sem Esjan blasti viö og ákvað í bríaríi að festa hana á striga. í opna skjöldu Sá verknaöur veitti honum ánægju sem hann hafði ekki fundið fyrir áður. Einhvem veginn fann hann sjálfan sig í fjallamyndum í rík- ari mæli en í nokkrum öðrum við- fangsefnum. í framhaldi af þeirri uppgötvun sneri hann baki við hinu ákafa og ágenga nýja málverki, mörgum félögum sínum til undrunar og skelfingar. „Þetta kom þeim auðvitað í opna skjöldu engu síður en sjálfum mér. Við höfðum öll verið sannfærð um að landslagsmálverk væri það vemmilegasta sem til væri,“ segir Georg Guðni á einum stað í viðtali. Freistandi er að ætla að þessi fjalla- baktería hafi blundað í listamannin- um allt frá þvi foreldrar hans báru hann um óbyggðir sem barn en faðir Georgs Guðna er jarðfræðingur. En þrátt fyrir þessa sérstöðu Ge- orgs Guðna í íslenskri myndlist („sérviskumálverk" kallar hann verk sín), sérstöðu sem meðal annars aflaði honum Menningarverðlauna DV fyrir myndlist í ár, er hann eng- inn einangrunarsinni í sér. „Ég hef orðið var við aö sumt fólk misskilur það sem ég er að gera, kannski af ásettu ráði. Ég er alls ekki að prjóna viö íslensku lands- lagsheföina eða ítreka einhver þjóð- leg gildi þó svo ég máli íslensk fjöll. Ég tel mig vera nútímalistamann í víöasta skilningi, ekki sérstaklega „íslenskan“ listamann,“ segir hann. Útskagastefha „Ég gæti ekki gert það sem ég er að gera ef ég hefði ekki upplifaö ýmsa strauma í erlendri myndlist, mínímalismann - naumhyggjuna - jafnvel rómantíkina í gamla þýska málverkinu. Ég reyni að fylgjast með öllu sem er að gerast úti í löndum og læra af því, sama hver liststefnan er. Ég held að varasamt sé fyrir lista- mann og menningu að einangra sig frá því sem er að gerast um kring. Þannig koðna menn niður í útskaga- stefnu - sem þýðir ekki að listamenn eigi að gleypa nýjungarnar hráar. Það er mikilvægt að flnna sér sinn eigin sálarreit að rækta, einhvern reit sem enginn annar getur ræktað eins vel og þú. Fjöllin eru minn sálar- reitur.“ Ég minnist einkunnarorða sem Georg Guðni hefur oftar en einu sinni látið fljóta með í sýningar- skrám sínum: ,,Ég mála fjallið með sjálfum mér. Ég mála sjálfan mig í fjallið. Ég mála fjallið úr huganum.“ Lykilorðin þarna eru fjallið og hug- urinn. Því hversu lengi sem Georg Guðni nostrar við að gefa fjallamyndum sínum þyngd, nánd og efniskennd - í sumum þeirra liggur margra mán- aða vinna, lag eftir lag af málningu - þá er tilgangur hans ævinlega sá að yflrstíga landamæri efnisheims- ins, festa á-strigann einhver algild sannindi um stöðu okkar í veröld- inni, okkur til íhugunar. Að þroskast með málverkinu Umfram allt eru þau honum sjálf- um ihugunarefni, bæði meðan hann málar verk sín og lengi á eftir. „Mér finnst ég þurfa óratíma með hverju málverki til að átta mig á því og fá að þroskast meðan ég vinn það.“ Hins vegar vefst okkur báðum tunga um tönn þegar við reynum að skilgreina þessi sannindi sem nefnd eru hér á undan. „Það er tengt því sem gerist þegar við stöndum andspænis einhveiju sem er bæði hluti af okkur sjálfum og því umhverfi sem við hrærumst í og óendanlega miklu æðra okkur. Við verðum gagntekin tilfinningum sem spanna allt frá hrifningu til ótta,“ segir Georg Guðni. „Til þess að koma þessum tilfinn- ingum til skila nota ég oft gríðarstóra striga sem yfirgnæfa áhorfandann, ætla alveg að gleypa hann. Þetta er það sem ég á við þegar ég tala um málverkin mín sem nokkurs konar athvarf fyrir sálina, ekki sál- arspegil, eins og sumir hafa túlkað þau.“ Ekki vill Georg Guðni flokka þenn- an þankagang undir nein sérstök andleg vísindi, hvorki heimspeki né guðspeki. „Jú, ég spekúlera í svoleiðis hlut- um en alls ekki skipulega. Hins vegar skrifa ég dáldið niður af því sem ég er að hugsa, aðallega til aö átta mig á breytingum sem verða á sjálfum mér og samskiptum mínum við mál- verkin. En þetta er enginn skáldskapur, nema kannski óvart.“ Að samræma náttúrukraftana Viö höldum áfram sannleiksleit- inni. „Ég vil bara ítreka að þótt ég sé alltaf á höttunum eftir einhvers kon- ar algildu landslagi, landslagshug- mynd, þá er útgangspunkturinn alltaf ákveðið fjall, jökull eða drangi sem ég þekki vel. Þótt ég sé búinn að hreinsa allt af striganum nema skáhallan flöt öðru megin á honum þá er sá halli - eða slakki - áþreifanleg staöreynd. Hann er til og ég hef séð hann, einhvers staðar ofarlega í Herðubreið eða Heklu. En um leið og ég byggi upp þessar fjallamyndir reyni ég að samræma alla þá krafta sem í mótífinu búa þannig að ég sitji uppi með málverk á mörkum kyrrðar og ókyrrðar. Það jafnvægi ber með sér undar- lega og smitandi ró. Ég er ekki sáttur við málverkin mín fyrr en ég finn fyrir. þessu jafnvægi." Fleiri íslenskir listamenn virðast nú leggja meir upp úr hugrænu lík- ingamáli en formfræði. Eg minnist til dæmis grafíkmynda Sigrid Valt- ingojer og Kristbergs Péturssonar. „Það er eitthvað í samtímanum, kannski efnishyggjan, sem kallar í auknum mæli á íhugunarefni í myndlistinni." Þótt Georg Guðni hafi ekki málað fjöll nema í tæp fimm ár hafa þegar örðið umtalsverðar breytingar á af- stöðu hans til þessa viðfangsefnis. „Fyrstu árin var ég mjög háður mótífmu, reyndi aö sýna öllum að- stæöum á hverjum stað fullan trúnað, bæði landslagi og veðri. Ég er að vísu ekki búinn að gefa þennan trúnað upp á bátinn en til viðbótar reyni ég að gera úr landslag- inu margræöa heild, uppfulla bæði af ró og sprengikrafti." Að lokum spyr ég Georg Guðna hvort honum detti nokkurn tímann í hug að setja manneskjur inn í mál- verk sin. „Það er fullt af manneskjum í mín- um myndum. Þær sjást bara ekki. Ég er búinn að samsama þær mynd- efninu svo ekkert er eftir af þeim nema tilfmningarnar." -ai
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.