Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 42
54 LAUGARDAGUR 5. MARS 1988. LífsstíU Flug og sumarhús: Hvað er - í boði? Sum húsin og ibúöirnar hafa verið innréttuð af smekkvisi og eru með öll algengustu heimilistæki. Flestir ferðasalar sem starfa á ís- landi bjóða upp á þessar vinsælu feröir. Eftirspurnin eftir sumarbúða- ferðum hefur aukist jafnt og þétt lsíðustu ár og virðast fjölskyldur fylla þennan hóp viðskiptavina að mestu leyti. Þjónusta ferðasala við þessa viðskiptavini hefur aukist og batnað í réttu hlutfalli við aukna eft- irspurn. Ferðasalar reyna margir hverjir að sérliæfa sig í ákveðnum stöðum og löndum. Von er að sú sér- hæfni skih sér í bættri þjónustu og verði til neytenda. Helstu lönd sem boðið er upp á eru - Holland, Þýskaland, Danmörk og Austurríki. Það er ekki hægt að meta hvort einn staður sé öðrum fremri því það mat byggist á þörf og smekk hvers og eins. Náttúrufegurð er ein- um mikilvæg meðan annar vill hafa nóg af veitingastöðum í nálægð. Þaö verður því að vera svo að hver og einn geti vahð sér staði sem henta þörfum hans sem best. Einnig geta möguleikar á styttri og lengri skoö- unar- eða verslunarferöum haft áhrif á vahð. Húsnæði mjög mismunandi Húsnæði það sem boðið er upp á í ferðum þessum er auðvitað mjög mismunandi. íburður á einum stað og látleysi á öðrum. Sjálfsagt er fyrir kaupendur að fá að sjá myndir af væntanlegum híbýlum sínum áður en ferð er ákveðin. í flestum tilfellum hafa ferðasalarnir bækhnga og myndir af þeim svæöum sem boðið er upp á. í mörgum tiifehum er ekki hægt að fá úthlutað íbúðum eða hús- um áður en lagt er af staö en ef boðiö er upp á það þá er sjálfsagt að kynna sér hvort staðsetningin er kaupanda tii ama. Til dæmis gæti verið um- ferðargata hinum megin við garðinn eða diskótek á hæðinni fyrir neðan. Ef væntanlegir ferðalangar hafa ýmsar þarfir eöa væntingar þá er betra að orða þaö í byijun. Erfitt er að bera saman verð á flug og hús pökkunum þar sem um mjög mismunandi stærð á íbúðum og húsum er að ræða. Ekki er aðeins stærð mismunandi heldur er tölu- verður mismunur á útbúnaði. Á sumum stöðum er sjónvarp, útvarp og sími. Annars staðar er þetta ekki til staðar. Ef fólk ætlar að bera sam- an verð þá er nauðsynlegt að kynna sér einnig hvað það fær fyrir pening- ana sína. Yfirleitt fylgja þessum húsum og íbúðum nauðsynlegustu tæki og áhöld til að sinna daglegum þörfum. Það er misjafnt hvort ræst- ing er innifahn eða ekki og svo má lengi upp telja. í töflunni hér á síðunni er ekki lagt mat á ofangreinda hluti. Lesendur þeir sem hafa hug á kaupum á „flug og hús“ ferðapökkunum verða að athuga þá hluti sjáifir. Það er ekki hægt að greina frá öhum þeim aragrúa atriða sem hver staður hefur upp á að bjóöa. Einungis er reynt að gefa vísbendingu um verðlagningu á flug og hús ferðapökkunum. Margar íbúðimar eru til dæmis 1 svefn- herbergi og svefnaðstaða í stofu, önnur húsin taka allt að átta manns. Ferðasalar vom spurðir að því hvaö myndi kosta fyrir 4 manna fjöl- skyldu (þar af 2 böm undir 12 ára aldri) að dvelja 3 vikur í júní í sumar- húsi eða íbúð. Það er síðan persónu- bundið hvað mikið pláss fólk þarf og vih hafa í kringum sig. Þess ber hins vegar aö gæta þegar borið er saman verðið að verð á íbúð með einu svefn- herbergi getur verið svipað og húsi með 3 herbergjum. -EG Verð á sumarhúsum Samvinnuferðir Landsýn 3 svefnherbergi ö Samvinnuferðir Landsýn 2 svefnherbergi Flugleiðir 1 svefnherbergi D Flugleiðir 2 svefnherbergi □ Atlantik 1 svefnherbergi □ í Evrópu Atlantik 3 svefnherbergi Úrval 1 svefnherbergi Úrval 2 svefnherbergi Pólaris 1 svefnherbergi Pólaris 2 svefnherbergi Holland Frakkland Austurríki England Danmörk Þýskaland Miiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiii ■■■■■■■■■■■■■■ Rl LEIDBEINENDUR I SKYNDIHJALP Rauði kross íslands hefur gefið út nýtt námsefni í skyndihjálp. Kynningarfundir verða haldn- ir fyrir leiðbeinendur í sal Hótel Lindar, Rauðarárstíg 18, R. 10. mars kl. 20.00 16. mars kl. 20.00 22. mars kl. 20.00 Þátttaka tilkynnist á aðalskrifstofu RKí, Rauðarárstíg 18, Reykjavík, í síma 91 -26722. Rauði íslands spnBBMHHMniniHBnnannBu sumar- hús Þegar ferðast er tll dvalar í sumarhús erlendis vill fólk gjarn- an hafa bifreið til afnota einhvern eða allan tímann. í flestum tilfell- um er best að ganga frá þessum málum áður en haldið er af stað. Samningar þeir, sem ferðasalar gera við bílaleigur, eru í flestum tilfellum hagstæöari en þegar leigðir eru bilar á staðnum. Þá er yfirleitt trygging fyrir þvi að bíll sá, sem beðið var um, fáist. Það kemur stundum fyrir að bíla- leigur hafa ekki bíla í þeim veröflokki sem borgaö var fyrir í upphafi férðar. Ef það kemur fyr- ir er það siðferðilegur réttur leigjandans aö fá bíl i næsta verð- flokki fyrir ofan, án þess að þurfa að greiða mismuninn. í sumum tilfellum sjá feröasal- ar um að útvega bíla þegar komið er á staðinn. Þá er gott að vera búinn að athuga hvort vandamál verði aö útvega þann bíl sem hugurinn girnist og hver kostn- aður við hann verður. Stundum hefur borið á þvi að upp er gefið verð hérlendis sem síðan stenst ekki þegar út er komiö. Hvers konar aukagjöldum er bætt við þannig að ódýri bíllinn er farinn aö kosta meira en pyngjan geröi ráö fyrir. Ef ekki hefur veriö á dagskrá að leigja bíl, þegar ferðin hófst, en skyndileg löngim grípur um sig til aksturs, er gott að bera saman tilboð nokkurra bílaleigu- fyrirtækja, sem leigja bíla, þvi aö verð er svo sannarlega mismun- andi. Allir ættu í þaö minnsta aö taka með sér ökuskírteinið því að án þess fær enginn leigðan bíl. -EG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.